Freyr - 01.02.1996, Side 29
Tafla 1. Yfirlit um nautgriparœktarfélögin 1995
Búnciðarsamband Félagar Kýr Arskýr Mjólk Meðaltal kárskúa %Fita % Prót. Kjarnf kg
Kjalamesþings 1 251 171,1 3292 3,93 3,27 322
Borgarfjarðar 84 2546 1947.5 3967 4,02 3,33 449
Snæfellinga 32 895 658,2 4174 4,01 3,33 553
Dalasýslu 20 517 374.9 4266 4,03 3,36 596
Vestfjarða 46 944 709,3 3841 4,06 3,36 512
Strandamanna 2 42 27,2 4313 3,90 3,35 520
V.-Húnavatnssýslu 23 555 391,0 4377 4,06 3,33 721
A.-Húnavatnssýslu 39 1032 802,1 3915 3,93 3,34 665
Skagfirðinga 74 2259 1766,1 4238 3,91 3,37 657
Eyjafjarðar 153 5745 4463,2 4370 4,04 3,37 587
S.-Þingeyinga 83 1983 1540,3 4419 4,02 3,38 654
N.-Þingeyinga 2 60 52,1 4017 4,06 3,43 441
Austurlands 26 689 532,1 3765 3,94 3,37 530
A.-Skaftafellssýslu 13 358 274,6 4027 4,04 3,37 683
V.-Skaft.. Rang 138 4457 3213,2 3998 4,03 3,36 468
Ámessýslu 164 5830 4354,9 4049 4,07 3,35 574
Landið allt 906 28163 21277,8 4132 4,03 3,36 563
Árið 1994 888 26981 20317,4 4147 4,09 3,39 498
Árið 1993 886 26609 19586,0 4168 4,13 3,44 477
Árið 1992 875 26410 19515,1 4108 4,14 3,39 483
Árið 1991 821 24691 18795,4 4179 4,07 3,38 530
Árið 1990 821 23928 18711,2 4141 4,06 3,40 603
Skýrslufœrðum kúm fjölgar.
Búum sem skila skýrslu hefur
fjölgað um 18 frá fyrra ári og er slíkt
að sjálfsögðu ákaflega ánægjuleg
þróun. Þessi fjölgun kemur öll frain
í Húnavatnssýslum, á Suðurlandi og
í Austur-Skaftafellssýslu en þar er
hlutfallsleg fjölgun búa í þessu
starfi umtalsverð. Eg hef margoft
lagt áherslu á að í þessum efnum
verðum við að setja okkur það mark
að ná sama árangri og best gerist í
öðrum löndum. í þeim héruðum þar
sem starfið er í föstustu formi hefur
lengi nokkuð yfir 80% fram-
leiðslunnar komið frá búum með
skýrsluhald og nú virðist raunhæft
að ætla að ná slíku marki fyrir
landið í heild. Þetta gerist að vísu
því aðeins að starfið eflist á þeim
svæðum þar sem það er nú
hlutfallslega minnst vegna þess að
þar er að finna þau bú sem standa
utan við starfið í dag. Á það hefur
verið bent að þátttaka í slíku starfi
er sá mælikvarði sem víðast
erlendis er notaður til að meta
faglegan styrk mjólkurframleiðslu í
viðkomandi landi. Því þarf það
tæpast að koma að óvart að í þeim
löndum sem fremst standa, á
Norðurlöndunum og í Hollandi, er
þegar mikil umræða um að innan
örfárra ár verði skýrsluhald um
kúabúið skilyrði sem verður að
uppfylla fyrir alla mjólkurfram-
leiðendur í þessum löndum.
Skýrslufærðum kúm fjölgar enn
meira en búum í skýrsluhaldi og
voru þær samtals 28.163 eða á
annað þúsund fleiri en árið áður en
þá höfðu þær orðið flestar áður.
Reiknaðar árskýr voru samtals
21.277,8 og voru að meðaltali 0,6
árskúm fleira á hverju búi í
skýrsluhaldinu árið 1995 en árið
áður.
Til nánari glöggvunar á þróun
afurða á milli ára eru þær sýndar á
myndrænan hátt á mynd 1 fyrir þau
héruð þar sem fleiri en 10 bú standa
að baki meðaltali. Þar sést að
afurðir lækka á Suður- og Vestur-
landi nema í Dalasýslu en á Norður-
landi er aukning nema í Austur-
Húnavatnssýslu. I Austur-Skafta-
fellssýslu er um umtalsverða aukn-
ingu afurða að ræða, en eins og áður
hefur komið fram er umtalsverð
aukning á fjölda búa í skýrsluhaldi
þar, þannig að samanburður milli
ára er þar vafasamari en í öðrum
héruðum. I stórum dráttum er um að
ræða framhald þeirrar þróunar sem
var á árinu 1994 þannig að á þessum
tveim síðustu árum hefur afurða-
munur á milli héraða aukist umtals-
vert frá því sem þá var.
Aukin kjarnfóðurgjöf.
Eins og fram hefur komið og
glöggt sést í töfiu 1 er umtalsverð
aukning í kjarnfóðurgjöf í saman-
burði við undangengin ár þó að hún
sé enn lítil í samanburði við það sem
almennt var fyrir rúmum áratug.
Við framleiðslutakmarkanir hlýtur
það ætíð að verða keppikefli að geta
byggt framleiðslu eftir því sem
mögulegt er á gögnum búsins og
gæðum, á gróffóðri sem framleitt er
á búinu fremur en aðkeyptu kjarn-
fóðri. Þess vegna er þróun á árinu
1995 vart í jákvæða átt. Þessi þróun
kann að vísu að eiga sér nokkrar
eðliiegar skýringar. Slakt gróffóður
víða á fyrri hluta ársins, rúm
framleiðsluaðstaða vegna minnk-
andi framleiðslu sem gaf þeim
aukna möguleika til framleiðslu
2 '96 - FREYR 69