Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 45
RITFRCGNIR
Búkolla
V. bindi Sveita og jarða í Múlaþingi
Á árunum 1974-1978 kom út
ritverkið „Sveitir og jarðir í Múla-
þingi“ í fjórum bindum. Utgefandi
var Búnaðarsamband Austurlands
en ritstjóri Ármann Halldórsson á
Egilsstöðum, áður kennari við
Alþýðuskólann á Eiðum. 1 munni
hans og annarra var verkið jafnan
kallað Búkolla.
Tíminn er einn fugl sem flýgur
hratt, segir í Rugbíát, ljóðabálk-
inum, og nú 20 árum eftir að
ritverkið kom út er komið 5. bindi
þess með upplýsingum um öll
byggð býli á svæðinu miðað við
árið 1994. Að þessu sinni er það
ritnefnd sem annast útgáfuna, en
hana skipuðu Ármann Halldórsson,
Sigmar Magnússon og Þorsteinn
Bergsson, en útgefandi er hinn
sami, Búnaðarsamband Austur-
lands. Nú fær ritið að njóta þess
nafns sem það hefur alla tíð gengið
undir og heitir Búkolla.
Rit með lýsingum og myndum af
byggðum býlum hafa á síðustu
áratugum komið út á vegum flestra
búnaðarsambanda á landinu. Fyrst
reið á vaðið Bs. S.-Þingeyinga árið
1963. Á síðari árum hafa bæði Bs.
S.-Þing. og Bs. Eyjafjarðar og nú
Bs. Austurlands endurnýjað þessi
rit enda gerast bæði breytingar hratt
og miklar framfarir hafa orðið í allri
prenttækni.
Á engan er hallað þó að fullyrt sé
að ritverkið Sveitir og jarðir í
Múlaþingi I-IV hafi að geyma
mestar og ítarlegastar upplýsingar
um foman og nýjan fróðleik um það
svæði sem það nær yftr af öllum
sambærilegum ritum. Að sama
skapi hefur það mest gildi fyrir
framtíðina sem heimild. Þetta má
þakka ritstjóranum, Ármanni
Halldórssyni, söguþekkingu hans
og áhuga. Jafnframt er í ritverkinu
töluvert um notalega kímni, þó að
ætla mætti að ritverk sem þetta gæfi
ekki tækifæri til slíks. Þar gefur
Ármann tóninn, en fleiri fylgja á
eftir. Þar má nefna Pál Pálsson frá
Aðalbóli en sveitarlýsing hans á
Jökuldalshreppi hefst þannig:
„ Eins og Tékkóslóvakía erJökul-
dalshreppur umsetinn sveitaifélög-
um, sem öll hafa reynt að hafa að
hafa afhonum lönd og lausafé með
nokkrum árangri sum, hafandi þó
ekkert í höndunum nema ágirndina
eina. Bákhjarlinn Brúarjökull er að
Okkur, nokkrar sænskar bænda-
konur, langar til að eignast íslenskar
bændakonur að pennavinum. í
framhaldinu dreymir okkur um að
koma á gagnkvæmum heimsóknum
rnilli okkar.
Við stundum alls konar búskap,
erum með kýr og svín, ræktum korn
og grænmeti og sumar stunda líf-
ræna ræktun. Flestar okkar vinna
auk þess utan bús til að drýgja
tekjurnar.
Það má skrifa okkur bæði á
skömminni til skástur óvina, þó
dyntóttur sé. “
En á sama tíma og vel tókst til í
upphafi um efni Búkollu þá voru
myndir af bæjum og fólki í því
ritverki að hluta heldur lélegar. I V.
bindinu eru myndir hins vegar mjög
góðar, auk þess sem uppdrættir eru
af hverjum hreppi þar sem bæir og
ýmis kennileiti eru merkt inn. Eykur
það mjög gildi verksins. I þessu
bindi eru endurnýjaðar upplýsingar
um hverja byggða jörð með mynd af
íbúðarhúsi og llestum húsráð-
endum. Þá eru talin upp öll býli sem
farið hafa í eyði frá fyrri útgáfu og
rakin búskaparlok þeirra og einnig
er listi yfir jarðir sem lagst hafa í
eyði frá síðustu aldamótum.
Aftast í ritinu eru kaflar um
búskaparsögu landsfjórðungsins
síðustu 20 ára.
Búkolla, Sveitir og jarðir í
Múlaþingi V. bindi er 704 bls. og
kostar kr. 12.900 að viðbættum
sendingarkostnaði. Ritið er m.a. á
boðstólum á skrifstofu BSA á
Egilsstöðum og hjá Bændasam-
tökum Islands.
M.E.
sænsku og ensku og gott væri að fá
upplýsingar í fyrsta bréfi um aldur
ykkar auk aldurs barna ykkar og
hvernig bú þið rekið, til að auðvelda
val á pennavin.
Auk heimilisfangs er gott að fá
símanúmer.
Kær kveðja
Karin Sjöstedt
Aspö Hornudden
645 93 Strángnás
Sverige
Sími 00 46 152 32618
Bréfaskipti - heimsóknir
2 '96 - FREYR 85