Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 8
tuðhan
l.ttol.
SL
Val knattspyrnumanna ársins 1976
Hverjir eru hinir útvöldu?!
Vignir Rafn Gíslason var valinn knatt-
spyrntunaður ársins í 6. fl.
Vignir Rafn leikur stöðu miðvallarspil-
ara. Hann kveðst hafa verið 5-6 ára þegar
hann byrjaði að sparka bolta. Eftirminni-
legasti leikur hans var á móti Hveragerði
í fyrra. Hann átti mörg marktækifæri en
það var sama hvernig hann reyndi ekki vildi
boltinn inn. Vignir Rafn er ánægður með æ£->
ingarnar og finnst þeir íjS. fl. fá nógu
marga leiki. Honum finnst meistaraflokkur
hafa staðið sig sæmilega og vonar að Sel-
foss komist fljótlega í fyrstu deild.
Að lokum sagði Vignar Rafn að það væri
öruggt að hann héldi áfram að æfa.
Vignir Rafn er sonur hjónanna Gísla
Guðjónssonar og Sigríðar Magnúsdóttur.
Gunnar Garðarsson var valinn knattspyrnu-
maður ársins í 5. flokk.
Gunnar kveðst hafa verið 6-7 ára þegar
hann byrjaði að leika sér að fótbolta.
Hann er mikill markaskorari og hefur
skorað mest 6 mörk í leik. Gunnar er
ánægður með æfingarnar, en finnst að þær
megi vera oftar, helst 3 í viku. Um árang
meistaraflokks vildi hann hafa sem fæst
orð, en sagði að hann mætti gjarnan vera
betri. Um framtíðina vildi hann engu spá,
en sagðist örugglega ætla að halda áfram
að æfa.
Gunnar er sonur hjónanna Garðars Hólm
Gunnarssonar og Kristínar Þórarinsdóttur.
I 4. flokk var Guðbrandur Jónsson val-
inn knattspyrnumaður ársins.
Guðbrandur er fjölhæfur leikmaður.
Hann hefur leikið flestar stöður á vell-
inum, en síðastliðið sumar lék hann stöðu
miðvarðar.
Þegar ég ræddi við Guðbrand var hann úti
á velli. Ég spurði hann því fyrst hvernig
honum líkaði aðstaðan þar.
"Aðstaðan er léleg. Húsið er of lítið og
malarvöllurinn svo gott sem ónýtur. Mér
finnst að yngri flokkarnir megi nota gras-
völlinn meira, því hann er sæmilegur'.'
-Hver er eftirminnilegasti leikurinn sem
þú hefur spilað?
"Leikurinn á móti Leikni sl. sumar. Ef
við ynnum hann eða gerðum jafntefli kæmumst
við í úrslitakeppina á Akranesi. Gífurleg
taugaspenna fylgdi þessum leik, sérstaklegal
þar sem Leiknir komst tvisvar yfir, en rétt'
fyrir leikslok jöfnuðum viðV
-Hvað með framtíðina?
"Ja, ætli maður haldi ekki áfram að æfa'.'
Guðbrandur er sonur hjónanna Jóns Guð-
brandssonar og Þórunnar Einarsdóttur.
I 3. flokk kom valið engum á óvart. í
þriðja sinn var Bergur Heimir Bergsson
kjörinn knattspyrnumaður ársins. Heimir
er eitthvert mesta knattspyrnumannsefni
Selfyssinga í dag. Hann leikur stöðu mið-
vallarspilara. Síðastliðið sumar æfði
hann með ungilgalandsliðinu, en fékk ekki
náð fyrir augum landsliðsnefndarinnar.
-Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir
að sparka bolta?
“Eitthvað um 6 ára'.'
-Hver er eftirminnilegasti leikurinn?
"Þegar við kepptum við nýbakaða íslands-”
meistara Vals og gerðum jafntefli 2-2. Þá
var ég í 5. flokk'.'
-Hvernig finnst þér árangur meistara-
flokks?
"Þeir hafa nú alltaf haldið sér í annari
deildinni. Þetta hefur svona gengið hjá
þeim'.'
-Hvað viltu segja um framtíðina?
"Ég segi sem minnst'.'
Heimir er sonur Bergs Þórmundssonar og
konu hans Auðar Sigurjónsdóttur.
kmb.