Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 15

Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 15
1. ttol. 1. árg TUÐRAN Enska knattspyrnan Flestireiga uppáhaldslfó og fylgja því gegnum súrt og sætt... að fer naumast á milli mála, að enska knattspyrnan nýtur gífur- legra vinsælda meðal islenzks íþróttaá- hugafólks. kemur þar margt til, en þó sennilega sérstaklega það, að fjölmiðlar hafa sýnt ensku knattspyrnunni mun meiri áhuga á liðnum árum en knatt- spyrnu annar.ra þjóða. og einnig hafa leikir ensku knattspyrnunnar verið not- aðir á getraunaseðla íslenzkra getrauna. Þar af leiðir að allir þeir sem taka þátt i getraunastarfinu hafa mikinn áhuga á ensku liðunum. gengi þeirra og úrslitum leikja. Fjölmargir íslendingar eru sannkall- aðir sérfræðingar í ensku knattspyrn- unni. og er þar bæði um að ræða unga og aldna. Þeir vita nákvæmlega hvaða leikmaður leikur með hverju liði, hver er seldur til þessa liðsins eða hins og hver er beztur hjá hinu liðinu eða þessu í þessarj og þessari stöðu á vellinum. Þegar hlustað er á tal slíkra sérfræðinga. ber það ósjaldan á góma hver skoraði fyrir þetta lið eða hitt í fyrra eða árið þar áður. Velflestir þeir sem fylgjast með ensku knattspyrnunni eiga þar sín uppáhalds- lið. Margir halda með þeim liðum komið hafa í heimsókn til Islands. en meðal þeirra má nefna Queens Park Rangers. Bury. Arsenal, Liverpool. Everton ogTottenham. Aðrir hafa tekið ástfóstri við ákveðinlið á velgengitímum þeirra og fylgja þeim síðan gegnum súrt og sætt. Iþróttablaðið fjallar hér á eftir stutt- lega um ensku knattspyrnuliðin sem leika í 1. og 2. deild á þessu keppnis- tímabili. Því miður er ekki tækifæri til þess að fjalla itarlega um hvert og eitt — aðeins tekin örfá atriði úr sögu þeirra. sem oft á tiðum hefur verið hin viðburðaríkasta. Vert er að rifja upp i þessu sambandi að enska deildakeppnin í svipaðri mynd og nú líðkast var tekin upp árið 1892.. en áður hafði verið keppt fjórum sinnum um enska meistaratitilinn. Enska bikar- keppnin á sér svo enn lengri sögu. þar sem hún hófst þegar árið 1872. Á heimsstyrjaldarárunum fór þó hvorki bikarkeppnin né deildarkeppnin fram. Yngsta bikarkeppnin er svo hin svokall- aða deildabikarkeppni, en hún fór fyrst fram árið 1961. West Ham United West Ham United var stofnað árið 1900 og hefur verið at- vinnumannafélag frá upp- hafi. Félagið hefur einnig alltaf heitið sama nafni, en gælunafn þess er „Hamm- ers“. Heimavöllur félags- ins, Boleyn Ground tekur 41.000 áhorfendur en met aðsókn að leik þar eru 42.322 áhorfendur sem komu til þess að sjá West Ham leika við Totten- ham Hotspur i 1. deildarkeppninni 17. október 1970. West Ham hefur aldrei unnið Eng- landsmeistaratitilinn í knattspymu og bezti árangur félagsins í 1. deild er 6. sæti, en því náði félagið 1927, 1959 og 1973. Hins vegar hefur West Ham tví- vegis orðið enskur bikarmeistari, árin 1964 og 1975, og árið 1966 komst West Ham í úrslit ensku deildarbikarkeppn- innar, en tapaði úrslitaleiknum. Stærsti sigur West Ham United í leik er 8—0 sigur yfir Rotherham United í 2. deildar keppninni 1958 og yfir Sunder- land í. 1. deildar keppninni 1968. Mesti ósigur félagsins í leik er hins vegar 2—8 tap yfir Blackburn Rovers í 1. deildar keppninni 26. desember 1963. Flest stig á keppnistímabili hlaut West Ham United 1957—1958 er félagið hlaut 57 stig í 2. deild og á því keppnistímabili skoraði liðið einnig riest mörk, 101 tals- ins. Wic Watson er sá leikmaður West Ham United sem skorað hefur flest mörk á einu keppnistímabili, en hann skoraði 41 mark í 1. deildar keppn- inni 1929—30. Hann er einnig sá leik- maður sem skorað hefur flest mörk samtals fyrir West Ham United, eða 306 talsins á árunum 1920—1935, og hafa aðeins fjórir leikmenn skorað fleiri mörk fyrir eitt lið í sögu ensku knattspyrn- unnar. Búningur West Ham United er fjólu- blá peysa með ljósbláum ermum, hvítar buxur og hvítir sokkar. West Bromwich Albion West Bromwich Albion félagið var stofnað árið 1879, og at- vinnumennska var tekin upp hjá því árið 1885. Til að byrja með, hét félagið West Bromwich Strolles, en nafninu var fljótlega breytt. Gælunöfn félags- ins eru: „Baggies“, „Throstles“ og

x

Tuðran

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.