Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 12
TXJÐRAN
1. ttal. l.árg
©
Unglingaráð lcnattspyrnudeildar Umf. Sel-
foss, var stofnað á aðalfundi deildarinnar
1975. - Unglingaráð hefur limsjón með mál-
efnum yngri flokka deildarinnar, þ.e.a.s.
3. fl., 4. fl., 5. fl. og 6. fl. Meðal
verkefna unglingaráðs er ráðning þjálfara,
útvegun á æfingaleikjum, undirbúningur
keppnisferðalaga, að standa fyrir skemmti-
ferðum, æfingabúðaferðum og skemmtifundum
o.fl.
Of lítil rækt hefur verið lögð við yngri
flokkana þ.e.a.s. með vel menntuðum þjálf-
urum og of lítið stuðlað að félagslegri
uppbyggingu meðal þeirra.
Það mun verða meginverkefni unglingaráðs
að bæta úr þessu. Mjög erfitt hefur verið
að fá hæfa þjálfara til starfa og hefur
því verið gripið til þess ráðs að ala upp
hæfa leiðbeinendur.
Starf vmglingaráðs síðasta keppnistíma-
bil tókst með ágætum, þó ekki væri geyst
af stað með offorsi heldur farið rólega
í sakirnar. Hefur unglingaráð þóft sanna
tilverurétt sinn.
Um verslunarmannahelgina var farið með
lim 30 stráka í æfingabúðir að Laugarvatni.
Var þar dvalist í góðu yfirlæti í hús-
næði íþróttakannaraskóla Islands. Heppn-
aðist þessi ferð í alla staði vel og er
það von okkar að við getum staðið fyrir
fleiri ferðum sem þessari.
Sá flokkur deildarinnar sem náði best-
um árangri 1976 var 4. fl. Þeir unnu sinn
riðil í íslandsmótinu og öðluðust þar með
rétt til þátttöku í úrslitakeppni íslands-
mótsins, sem haldið var dagana 12.-14.
ágúst á Akranesi. Þegar ljóst varð að flokk-
urinn átti möguleika á að komast í fyrr-
greinda úrslitakeppni, var fyrirsjáanlegur
minnst 100 þús. kr. kostnaður. Nú voru góð
ráð dýr og þó. Eitt ódýrt og gott ráð
fannst, en það var áheit á strákana. Var
Selfyssingum boðið að heita á strákana
kr. 500, sem margir gerðu. Söfnuðust þann-
ig 80 þúsund kr. og sannar það að margir
skilja fjárhagserfiðleika okkar og vilja
styðja okkur í starfsemi deildarinnar.
Unglingaráð vill koma fram þakklæti sínu
til Selfyssinga fyrir þessar góðu undir-
tektir. Utibú Landsbanka íslands á Sel-
fossi keypti auglýsingu á búningum 4. fl.,
en hann var eini yngri flokkurinn sem var
með auglýsingu á búningum sínum, og þökk-
\nn við Landsbankanum það.
Á Akranesi voru mætt til leiks 7 lið
víðsvegar að af landinu. Höfnuðu strák-
arnir í 4. sæti sem verður að teljast
ágætur árangur.
Akveðið var að verðlauna þá fyrir góð-
an árangur með ferð til Akureyrar, þrátt
fyrir mjög þröngan fjárhag. Þar tóku þeir
þátt í Norðurlandsmótinu í knattspyrnu,
sem gestir og höfnuðu í öðru sæti.
Á aðalfundi 1976 var kosið nýtt unglinga-
ráð, sem skipa þeir Kristinn M. Bárðarson,
formaður, Gunnar Gunnarsson, ritari, Sig-
urjón Bergsson, gjaldkeri og Hafsteinn
Már Matthíasson, varaformaður.
Þegar í stad var farið að leita eftir
þjálfurum og voru þessir ráðnir; 3. fl.
þjálfa þeir Halldór Sigurðsson og Einar
Jónsson, 4. fl. þeir Kjartan Jónsson og
Einar Brynjólfsson v 5. og 6. fl. Gylfi Þ.
Gíslason
Ráðíð tók upp þá nýjung að gangast fyrir
kvikmyndasýningum fyrir börn. Þrjár myndir
hafa verið sýndar og hefur aðsókn að þeim
verið ágæt. Þau leiðu mistök urðu á
annarri sýningunni að við fengum ranga
mynd, áttum að fá mynd um Bakkabræður,
en fengum mynd með Elvis Prestley, sem
var ekki beint við hæfi barna. Við viljum
biðja velvirðingar á þessum mistökum og
vonum að þau hafi ekki skaðað neinn.
Bingó var haldið 1. apríl. Margir héldu
að þar væri um aprílgabb að ræða, en svo
var ekki, enda mætti fjöldi ungra og efni-
legra pilta.
Svo sem sjá má af framansögðu er nóg að
starfa. Starf okkar í sumar verður ekki
ósvipað því sem var síðasta sumar; æfinga-
leikir,- stuttar keppnisferðir, æfingabúð-
ir, skemmtanir o.fl.
Það er von okkar að foreldrar sýni meiri
áhuga á leikjum barna sinna og taki þátt
í starfi okkar.
Unglingaráð.