Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 19

Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 19
l.tbl. 1. árg TUÐRAN George Camsell er sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk fyrir Middles- brough á einu keppnistímabili, en hann skoraði 59 mörk í 2. deildar keppninni 1926—1927. Hann er einnig sá leik- maður sem skorað hefur samtals flest mörk fyrr Middlesbrough eða alls 326 á árunum 1925—1929. Búningur Middlesbrough er1 rauð peysa með hvítri þverrönd, rauðar buxur með hvítum röndum á hliðunum og rauðir sokkar. Manchester United 1878 var stofnað í Manchester knatt- spyrnufélag er nefndist Newton Heath og tekin var upp atvinnumennska hjá félagi þessu árið 1885. Árið 1902 var nafni félagsins breytt í Manchester Unit- ed og hefur félagið heitið það æ síðan. Gælunafn þess er „Red Devils". Frá ár- inu 1910 hefur heimavöllur félagsins verið Old Trafford með þeirri undan- tekningu að fyrsta árið eftir stríðið lék liðið heimaleiki sína á Maine Road. Old Trafford tekur 60.500 áhorfendur, en metaðsókn að vellinum eru 76.962 áhorfendur sem komu þegar Grimsby Town mætti Wolverhampton Wanderes í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar 25. marz 1939. Met aðsókn að heimaleik hjá Manchester United eru hins vegar 70.504 áhorfendur. Manchester United hefur hlotið enska meistaratitilinn t knattspymu alls sjö sinnum: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967 og sjö sinnum hefur liðið orðið í öðru sæti í 1. deild. Ensku bikar- keppnina hefur Manchester United unnið þrívegis: 1909, 1948 og 1963 og auk þess hefur liðið komizt þrisvar í úr- slitaleik. Þá hefur Manchester United einnig komizt þrívegis í undanúrslit ensku deildarbikarkeppninnar. Sinn stærsta sigur í knattspyrnuleik vann Manchester United 1956 er liðið sigraði belgíska liðið Anderlecht 10—0 í Evrópubikarkeppninni í knattspyrnu, en mesti ósigur Manchester United í leik var er liðið tapaði 0—7 fyrir Aston Villa í 1. deildar keppninni 27. desember 1930. Hæsta stigatala Manchester United á keppnistímabili eru 64 stig, sem liðið hlaut í 1. deildar keppninni 1956—1957 og á því tímabili skoraði liðið líka flest mörk á einu keppnistímabili, 103 talsins. Dennis Viollet er sá leikmaður Man- chester United sem skorað hefur flest mörk á sama keppnistímabilinu. Hann skoraði 32 mörk 1959—60. Sá sem skorað hefur flest mörk fyrir liðið sam- tals, er hins vegar enginn annar en hinn gamalkunni kappi Bobby Charlton sem skoraði alls 198 mörk meðan hann lék með liðinu á árunum 1956—1973. Búningur Manchester United er rauð peysa með hvítum röndum, hvítar buxur og svartir sokkar. Manchester City Árið 1887 var stofnað knattspyrnufé- lag í Manchester er nefndist Ardwick FC og var það atvinnu- mannafélag frá upp- hafi. Nafni félagsins var svo breytt í Man- chester City árið 1895 og hefur félagið heitið því nafni síðan. Gælunafn félagsins er hins vegar „Citi- zens". Frá upphafi hefur félagið haft fimm leikvelli sem heimavelli, en frá árinu 1923 hefur Manchester City leikið á Maine Road. Þar er rúm fyrir 52,500 áhorfendur. en met aðsókn að vellinum eru hins vegar 84.569 áhorfendur sem komu á völlinn 3. marz 1934 til þess að fylgjast með leik Manchester City og Stoke í 6. umferð bikarkeppninnar. Er það jafnframt met aðsókn að leik sem fram hefur farið utan Lundúnaborgar. Manchester City hefur tvívegis unnið enska meistaratitilinn, 1937 og 1968 og tvívegis hefur félagið verið í öðru sæti. Það hefur unnið fjórum sinnum sigur í ensku bikarkeppninni 1904, 1934, 1956 og 1969 og tvívegis hefur liðið sigrað í ensku deildarbikarkeppninni 1970 og 1976. Stærsti sigur sem Manchester City hefur unnið i leik var er liðið sigraði Lincoln City 11—3 í 2. deildar keppn- inni 23. marz 1895 en mesti ósigur sem Manchester City hefur beðið í leik var er liðið tapaði 1—9 fyrir Everton í 1. deildar keppninni 3. september 1906. Flest stig sem Manchester City hefur hlotið í deildakeppninni eru 62 en þeim árangri náði liðið 1946—1947, er það lék í annarri deild. 1926—1927 skoraði Manchester City hins vegar flest mörk á einu keppnistímabili, 108 talsins. Tommy Johnson er sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk fyrir Manchester City á sama keppnistímabilinu, en hann skoraði 38 mörk 1928—29. Hann er einnig sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk samtals fyrir liðið, eða 158 talsins á árunum 1919—1930. Búningur Manchester City er blá peysa með hvítum röndum, bláar buxur og bláir sokkar. Liverpool Knattspyrnufélagið Liverpool var stofnað árið 1892, og hefur verið atvinnu- mannafélag frá upphafi. Völlur félagsins rúmar 56.318 áhorfendur, en met aðsókn að leik hjá Liverpool eru 61.905 áhorfendur en þeir komu á leik Liver- pool og Wolverhampton Wanderes í 4. umferð ensku bikarkeppninnar 2. febrúar 1952. Liverpool á mikinn frægðarferil að baki í ensku knattspyrnunni. Ekkert Iið hefur jafnoft hlotið Englandsmeistara- titilinn, en alls hefur Liverpool hreppt hann níu sinnum:. 1901, 1906, 1922, 1923, 1947, 1964, 1966, 1973 og 1976. Fimm sinnum hefur liðið svo orðið í öðru sæti í 1. deild. Ensku bikarkeppn- ina hefur Liverpool svo unnið tvívegis, 1965, og 1974 og auk þess komizt þrí- vegis til viðbótar í úrslit. í ensku deildar- bikarkeppninni hefur Liverpool tvívegis komizt í fimmtu umferð. Stærsti sigur Liverpool í leik er 11—0 sigur yfir norska liðinu Strömgodset í Evrópubikarkeppni bikarhafa 17. sept- ember 1974, en mesti ósigur Liverpool í leik er þegar liðið tapaði 1—9 fyrir Birmingham City í 2. deildar keppninni 11. desember 1954. Flest stig í deilda- keppninni hlaut Liverpool á keppnis- tímabilinu 1961—1962 er liðið hlaut 62 stig í 2. deild og flest mörk á einu keppnistímabili skoraði Liverpool 1895—96 er liðið skoraði samtals 106 mörk. Liverpool á svo það met í ensku deildinni að hafa ekki fengið á sig nema 24 mörk á keppnistímabili, en það skeði 1968—1969. Roger Hunt er sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk fyrir Liverpool á einu keppnistímabili, en hann skoraði 41 mark er Liverpool lék í 2. deild 1961—1962. Hunt er einnig sá leikmað- ur sem skorað hefur flest mörk fyrir Liverpool, en alls skoraði hann 245 mörk á árunum 1959—1969. Búningur Liverpool er rauð peysa, rauðar buxur og rauðir sokkar.

x

Tuðran

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.