Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 20

Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 20
TUÐRAN 1. ttol. 1. árg, Leicester City Leicester City er stofnað 1884 og hét liðið Leicester Fosse fram til ársins 1919, að nafni þess var breytt! Gælunafn Leicester City er „Filberts“ eða „Foxes“. Fyrsti leikvangur Leicester City nefndist Victoria Park, en árið 1891 var Filbert Street tekinn í notkun og hefur hann æ síðan verið heimavöllur félagsins. Þar er talið rými fyrir um 40.000 áhorfendur, en mest að- sókn að vellinum varð 18. febrúar 1928 er Leicester lék við Tottenham í 5. um- ferð ensku bikarkeppninnar, en þá keyptu sig 47,298 áhorfendur inn á völl- inn. Leicester City hefur enn ekki orðið enskur meistari í knattspyrnu, en einu sinni hefur liðið orðið í öðru sæti í 1. deild. Bikarmeistaratitill hefur heldur ekki fallið félaginu í skaut, en það hefur komizt fjórum sinnum í úrslit og alltaf tapað. Hins vegar hlaut Leicester City deildarbikarmeistaratitilinn árið 1964. Stærsti sigur Leicester í leik er þegar liðið vann Portsmouth 10—0, í l.deildar keppninni 20. október 1928, en mesta tapið er 0—12 fyrir Notthingham Forest í 1. deild 21. apríl 1909. Flest stig í deildakeppninni hlaut Leicester í 2. deild 1956—1957, 61 talsins og það keppnistímabil skoraði liðið einnig flest mörk á keppnistímabili, eða 109 alls. Arthur Rowley er sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk fyrir Leicester á einu leiktímabili, eða 44 mörk. Það var 1956—1957, er Leicester lék í annarri deild. Arthur Chandler er hins vegar sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk samtals fyrir Leicester en hann skoraði 262 mörk á árunum 1923-—1935. Búningur Leicester er blá peysa með hvítri rönd, hvítar buxur og hvítir sokk- ar. Leeds United Knattspymufélagið Leeds United var stofnað árið 1904 og hét þá Leeds City. Árið 1919 var nafni félagsins breytt og ári síðar var tekin upp atvinnu- mennska hjá félaginu. Heimavöllur Leeds tekur 50.000 áhorfendur, en mest að- sókn að vellinum hefur orðið 57.892 áhorfendur er Leeds lék við Sunderland í 5. umferð bikarkeppninnar 15. marz 1967. Leeds United á mikinn frægðarferil að baki í ensku knattspyrnunni þótt liðið hafi ekki nema tvívegis orðið enskur meistari, 1969 og 1974. Eigi sjaldnar en fimm sinnum hefur liðið orðið í öðru sæti í deildinni og oft hefur verið mjótt á munum á því og efsta liðinu. Enskur bikarmeistari hefur Leeds einu sinni orðið, 1972, en þess utan hefur liðið leikið þrisvar sinnum í úrslitum. Enskur deildarbikarmeistari varð svo Leeds United 1968. Sinn stærsta sigur í knattspyrnuleik vann Leeds United 17. september er liðið sigraði norska liðið Lyn frá Osló í fyrri leik þeirra í Evrópubikarkeppninni í knattspymu, en þá skoraði Leeds 10 mörk gegn engu. Mesti ósigur Leeds í leik er hins vegar er liðið tapaði 1—8 fyrir Stoke City í 1. deildar keppninni 27. ágúst 1934. Flest stig í deildarkeppn- inni hlaut Leeds 1968—1969 er liðið hlaut 67 stig í 1. deild. Flest mörk á keppnistimabili skoraði Leeds hins veg- ar 1927—1928 er liðið var í 2. deild, eða 98 talsins. John Charles er sá leikmaður félags- ins sem skorað hefur flest mörk á keppnistímabili, er hann skoraði 42 mörk þegar Leeds var í 2. d. 1953—54. Hann er einnig sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir Leeds, 154 sam- tals á árunum 1948—1957 og 1962. Búningur Leeds United er hvít peysa, hvítar buxur og hvítir sokkar. Ipswich Town Knattspyrnufélagið Ipswich Town var stofnað 1887, en það var il,IPSWICH,|| fyrst 1936 að atvinnu- \l*áAMr mennska var tekin upp hjá félaginu. hefur félagið alltaf heitið sama nafni, en gælunafn þess er „Town“ eða „Blues“. Heimavöllur Ipswich Town tekur 38.000 áhorfendur en metaðsókn að leik hjá félaginu eru 38.010 áhorf- endur sem voru að leik liðsins við Leeds United í 6. umferð ensku bikarkeppn- innar 8. marz 1975. Ipswich Town hefur einu sinni orðið enskur meistari í knattspyrnu. Það var árið 1962. Einu sinni hefur liðið komizt í undanúrslit í bikarkeppninni, og bezti árangur þess í deildarbikarkeppninni er fimmta umferð en svo langt komst liðið bæði 1966 og 1974. Stærsti sigur Ipswich Town í leik var er liðið sigraði Floriana frá Möltu með 10 mörkum gegn engu í leik liðanna í Evrópubikarkeppninni 1962. Mesti ó- sigur Ipswich er svo 1—10 tap fyrir Ful- ham í 1. deildar keppninni 26. desember 1963. Flest stig á keppnistímabili fékk Ipswich árið 1953—1954 og 1955—1956 er liðið hlaut 64 stig í 3. deildar keppn- inni, og flest mörk á keppnistimabili skoraði Ipswich 1956—1957, eða 106 talsins. Ted Phillips er sá leikmaður Ipswich sem skorað hefur flest mörk á einu keppnistímabili, 41 talsins 1956—1957 er Ipswich lék í þriðju deild. Markhæsti leikmaður Ipswich frá upphafi er hins vegar Tom Parker sem skoraði 428 mörk á þeim 11 árum sem hann lék fyrir félagið: 1946—1957. Búningur Ipswich Town er blá peysa, hvítar buxur og bláir sokkar. Everton Everton var stofnað árið 1878, og tók félagið upp atvinnu- knattspyrnu árið 1885. Hefur félagið frá upphafi heitið sama nafninu, en gælunafn þess er „Toffeemen" eða „Blues“. Heimavöllur Everton, Goodi- son Park var tekinn í notkun árið 1892, en áður hafði félagið m.a. haft Stanley Park og Anfield Road sem heimavöll sinn. Goodison Park tekur 58.000 áhorfendur en metaðsókn að vellinum eru 78.299 áhorfendur sem komu á leik Everton og Liverpool í 1. deildar keppninni 18. september 1948. Everton hefur sjö sinnum orðið ensk- ur knattspymumeistari: 1891, 1915, 1928, 1932, 1939, 1963 og 1970 og sex sinnum hefur félagið orðið í 2. sæti í deildar keppninni. Enska bikarmeist- aratitilinn hefur Everton unnið þ risvar sinnum til: 1906, 1933 og 1966 og fjórum sinnum að auki hefur Everton komizt í úrslit í þeirri keppni. Bezti árangur Everton í deildarbikarkeppninni er hins vegar sá að liðið komst í 5. umferð á keppnistímabilinu 1960—1961. Stærsti sigur Everton í knattspyrnu- leik var er liðið vann Derby County 11—2 í 1. umferð ensku bikarkeppn- innar 1889, en mesti ósigur Everton er 4—10 í leik við Tottenham í 1. deildar keppninni 11. október 1958. Mesti stigafjöldi Everton eru 66 stig í 1. deildar keppninni 1969—1970, en flest mörk á einu keppnistímabili skoraði Everton er liðið lék í 2. deild 1930—1931, 121 tals- ins. Sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk fyrir Everton á einu keppnistíma- bili er Dixie Dean sem skoraði 60 mörk á keppnistímabilinu 1927—1928 og sami leikmaður hefur skorað flest mörk fyrir Everton, 349 talsins á árunum 1925—1937.

x

Tuðran

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.