Tuðran - 01.05.1977, Blaðsíða 17
1. tbl. 1. árg,
TUÐRAN
Queens Park
Rangers
Queens Park Rangers var stofnað árið
1885, en atvinnumennska
var tekin upp hjá félag-
inu árið 1898. Til að byrja
með hét félagið reyndar
St. Jude's en nafni þess
var breytt árið 1887.
Gælunafn félagsins er nú
„Rangers" eða „R“. Fá félög sem nú
leika í ensku 1. deildinni hafa verið á
öðrum eins hrakhólum með heimavöll
og Queens Park Rangers, þar sem
félagið hafði átt 16 heimavelli unz það
loks tók að leika fyrir fullt og fast á
Loftus Road. Þar er rými fyrir um 30.000
áhorfendur, en metaðsókn að vellinum
eru 35.353 áhorfendur sem komu á leik
Queens Park Rangers við Leeds United í
1. deildar keppninni 28. apríl 1974.
Queens Park Rangers hefur enn ekki
auðnazt að vinna Englandsmeistaratitil-
inn, en á síðasta keppnistímabjli
1975—1976 var liðið í öðru sæti í 1.
deildinni. Það hefur heldur aldrei sigrað
í bikarkeppninni, en sex sinnum komist í
sjöttu umferð. Hins vegar hefur liðið
einu sinni sigrað í ensku deildarbikar-
keppninni, það var árið 19þ7.
Stærsti sigur Queens Park Rangers í
leik er 9—2 í leik við Tranmere Rovers í
3. deildar keppninni 3. desember 1960,
en mesti ósigur liðsins í leik er 1—8 í leik
við Mansfield Town i 3. deildar keppn-
inni 1965 og 1—8 í leik við Manchester
Unitedí 1. deildar keppninni 1969. Flest
stig á keppnistímabili hlaut Queens Park
Rangers 1966—1967, 67 talsins í 3. deild
og flest mörk á einu keppnistímabili
skoraði liðið í 3. deildar keppninni
1961—1962, 111.
Sá leikmaður sem skorað hefur flest
mörk fyrir Queens Park Rangers á einu
keppnistímabili er George Goddard
sem skoraði 37 mörk í 3. deildar keppn-
inni 1929—1930. og hann er einnig sá
leikmaður sem hefur skorað flest mörk
samtals fyrir liðið. 172 á árunum
1926—1934.
Búningur Queens Park Rangers er blá
peysa með hvítum röndum, hvítar buxur
og hvítir sokkar.
Norwich City
Norwich City var stofnað árið 1905 og
hefur verið atvinnu-
mannafélag frá upphafi.
Liðið hefur einnig haldið
óbreyttu nafni frá því að
það var stofnað, en gælu-
nafn félagsins er „Canari- norwichcityfc
es“. Til að byrja með var
Newmarket Road heimavöllur Norwich
en frá árinu 1935 hefur Carrow Road
verið heimavöllur þess. Hann rúmar
33.000 áhorfendur, en metaðsókn að
vellinum eru 43.984 áhorfendur sem
komu á leik Norwich við Leicester í
sjöttu umferð bikarkeppninnar 30. marz
1963.
Norwich City hefur aldrei sigrað í
ensku 1. deildar keppninni, en bezti ár-
angur liðsins í 1. deild er þegar það hlaut
10. sæti í deildinni á síðasta keppnis-
tímabili 1975—1976. Aðeins einu sinni
hefur Norwich City komizt í undanúrslit
í ensku bikarkeppninni, en hins vegar
vann liðið enska deildarbikarinn árið
1962 og komst í úrslit i þeirri keppni
1973 og 1975.
Stærsti sigur Norwich í leik var er liðið
sigraði Coventry 10—2 í 3. deildar
keppninni 15. marz 1930, en mesti ósig-
ur Norwich í leik er 2—10 tap fyrir
Swindon í leik 5. september 1908. Hæsta
stigatala Norwich í deildakeppninni eru
64 stig, en þeim árangri náði liðið í 3.
deildar keppninni 1950—1951. Árið
1952 skoraði liðið svo flest mörk á einu
keppnistímabili, 99 talsins.
Ralph Hunt er sá leikmaður sem hef-
ur skorað flest mörk fyrir Norwich City á
einu leiktímabili, eða 31 1955—1956 er
Norwich lék í 3. deild. Sá leikmaður sem
skorað hefur flest mörk fyrir félagið er
hins vegar Johnny Gavin sem skoraði
122 mörk á árunum 1945—1958.
Búningur Norwich er gul peysa,
grænar buxur með gulum röndum og
gulir sokkar.
Newcastle
United
Newcastle United var stofnað árið
1882 og atvinnumennska ft
• var tekin upp hjá félaginu
árið 1889. Til að byrja með
hét félagið reyndar New-
castle East End, eða fram
til ársins 1892. Gælunafn 1
félagsins er „Magpies'*.
Heimavöllur Newcastle tekur 56.000
áhorfendur, en met aðsókn að vellinum
er 68.386 áhorfendur sem komu á leik
Newcastle og Chelsea í 1. deildar
keppninni 3. september 1930.
Newcastle United hefur fjórum sinn-
um orðið enskur meistari í knattspyrnu:
1905, 1907, 1909 og 1927. f ensku bikar-
keppninni hefur liðið verið mjög sigur-
sælt og hefur hreppt bikarinn alls sex
sinnum: 1910, 1924, 1932, 1951, 1952 og
1955, auk þess sem það hefur fimm
sinnum tapað úrslitaleik. f ensku
deildarbikarkeppninni náði liðið bezt-
um árangri á síðasta keppnistímabili
1975- 1976, er það komst í úrslit.
Stærsti sigur Newcastle United í
knattspymuleik er 13—0 sigur yfir
Newport í 2. deildar keppninni 5. októ-
ber 1946, en mesti ósigur Newcastle í
leik er 0—9 tap yfir Bolton Wanderes í 2.
deildar keppninni 15. apríl 1895. Hæsta
stigatala Newcastle í deildarkeppninni
eru 57 stig sem liðið náði í 2. deildar
keppninni 1964—1965 og hæsta marka-
tala liðsins á einu keppnistímabili eru 98
mörk sem skoruð voru er liðið lék í 1.
deild 1951—1952.
Hughie Gallacher er sá leikmaður
sem skorað hefur flest mörk fyrir New-
castle á einu keppnistímabili, en hann
skoraði 36 mörk í I. deildar keppninni
1926—1927. Sá sem hins vegar hefur
skorað flest mörk samtals fyrir New-
castle er Jackie Milbutn sem skoraði 178
mörk á árunum 1946—1957.
Búningur Newcastle United er
svart-hvítröndótt peysa, svartar buxur
og svartir og hvítir sokkar.
Middlesbrough
Middlesbroughfélagið var stofnað ár-
ið 1876 og tók upp at-
vinnumennsku árið
1889. Árið 1892 var
félaginu aftur breytt í
áhugamannafélag, en
tók upp atvinnu-
mennsku aftur árið
1899. Hefur félagið heitið sama nafni frá
upphafi, en gælunafn þess er „The
Boro.“ Heimavöllur félagsins tekur
42.000 áhorfendur en met aðsókn að
honum er hins vegar 53.596 áhorfendur
sem komu til þess að sjá Middlesbrough
leika við Newcastle United í 1. deildar
keppninni í desember 1949.
Middlesbrough hefur aldrei unnið
enska meistaratitilinn í knattspyrnu, en
sínum bezta árangri í 1. deild náði fé-
lagið 1913—1914 er það varð í þriðja
sæti. Félagið hefur heldur aldrei unnið
bikarkeppnina, en komizt þar í sjöttu
umferð, og undanúrslit er bezti árangur
Middlesbrough í deildabikarkeppninni.
Sinn stærsta sigur i leik vann
Middlesbrough 23. ágúst 1958, er liðið
vann Brighton 9—0, í 2. deildar keppn-
inni, en 6. nóvember 1954 tapaði liðið
með sömu markatölu 0—9 fyrir Black-
burn Rovers og er það mesti ósigur liðs-
ins frá upphafi. Hæsta stigatala
Middlesbrough á keppnistímabili eru 65
stig sem liðið náði í 2. deildar keppninni
1973—1974 og flest mörk sem liðið hef-
ur skorað á keppnistímabili eru 122 sem
það gerði í 2. deildar keppninni
1926—1927.