Tuðran - 01.05.1977, Síða 10

Tuðran - 01.05.1977, Síða 10
TUÐRAN 1. ttol. 1. árg, TUÐRAN SPYR Fylgist þú með leikjum yngri flokkanna? Einar Hansson: - Já, já, ég fer stundum og horfi á strákana mína. Marels Jónsson: - Eg geri lítið af því. Ég veit aldrei hvenær þeir eru að spila. Ég færi ef ég vissi af leik, því það er oft gaman að horfa á strákana. Guðmunda Auðunsdóttir: - Einstaka sinnum þegar strákurinn minn keppir. Otgefandi: Unglingaráð Knattspyrnudeildar Abyrgðarmaður: Björn Gíslason Ritnefnd: Gunnar Gunnarsson Hafsteinn Már Matthíasson Kristinn Marinó Bárðarson Sigurjón Bergsson Ljósmyndun: Trausti Gunnarsson Vélritun: Svanhildur Edda Þórðardóttir Umbrot: Kristinn Marinó Bárðarson og Gunnar Gunnarsson. Agæti lesandi. Með blaðaútgáfu þessari hefur verið stigið stórt framfara spor í starfsemi knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. F^lstu ástæður fyr- ir því að út í þetta er ráðist eru þær, að á undanförnum árum hefur það komið æ betrur og betur í ljós að starfsemi yngri flokka deildarinnar hefur verið mjög ábótavant. Einkum er það skortur á hæfum leiðbeinendum og leið- togum svo og þetta mikla starf sem fer í að afla fjár fyrir alla starfsemina, sem hefur óneitanlega bitnað á þeim yngstu. Á s.l. ári var sett á laggirnar unglingaráð sem hefur eingöngu með starfsemi yngri flokka deildarinn- ar að gera þ.e.a.s. 3., 4., 5., og 6. flokk. Það er alveg óhætt að fullyrða það hér að þessi ákvörð- un hefur náð tilgangi sínum, bæði hefur þetta auðveldað stjórn deildarinnar að einbeita sér að allri fjáröflun og unglingaráði að skipuleggja starf yngri flokkanna út af fyrir sig. Það er meira en að segja það, að hafa starf yfir eitt hundrað unglinga í lagi. Þessir aldursflokkar eru kröfu- harðir og vilja aga og festu og gleyma engu því sem lof- að er, það verður að efna öll loforð. Með útgáfu þessa blaðs sem unglingaráð sér um er verið að kynna fyrir foreldrum starf deildarinnar og jafnframt að fá þá til starfa á einhvern hátt. Það er ekki nóg að vita að börnin séu á æfingu eða í keppni þessa og þessa stundina. Það þarf lifandi tengsl á milli þessara aðila og betri upplýsingar TAm hvað verið sé að gera hverju sinni, allt þetta og meira til er verið að reyna að bæta með þessari útgáfu sem ég vona að verði selfyskri æsku og félagsstarfinu almennt til sóma. Björn Gíslason.

x

Tuðran

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.