Skátablaðið


Skátablaðið - 01.01.1947, Síða 14

Skátablaðið - 01.01.1947, Síða 14
ugluhreiður, hérabæli, íkornabú, tófugren eða aðrar dásemdir á leið sinni. Þeir gengu rösklega af stað og komu brátt í hinar snæviþökktu, þöglu hallir skógarins. Um hádegisbilið sáu þeir heldur sjaldgæfa sýn. En það var greifingi, sem yfirgefið hafði híði sitt og dragnaðist nú þvengmjór og glorhungraður niður brekkuna, skammt frá þeim. — Nú er liann náttúrlega að leita að rót- um eða músum, hvislaði Venni, — hann vaknar venjulega ekki af vetrardvalanum fyrr en í febrúar eða marz, eftir því hvernig veður er. Annars er það bara á örugg- r'* um stöðum, sem hann vogar sér svona út nema þá helzt á nóttunni. Þeir héldu nú áfram göng- unni og komu brátt að vatni einu, sem var þarna í skógin- um. Þar settust þeir niður og borðuðu morgunverðinn sinn. — Það var svei mér gott, að við höfðum ekki þessar stelp- ur með, sagði Frank og tróð upp í sig heilli pylsu. — Þær hefðu auðvitað æpt upp, hefðu þær séð greifingjann, og flæmt hann burtu. — Já, það var gott. Stelpur eru bara til óþæginda, sagði Venni og maulaði osta- kexið. — En heyrðu annars, við getum stytt okkur mikið leið með því að fara þvert yfir vatnið. ísinn heldur okkur ábyggilega, þótt ekki sé mcira frost. Vatnið er áreiðan- lega botnfrosið ennþá. — Þetta er allt í lagi, sagði Frank. — Ef við förurn gætilega, höfum við það leikandi yfir. Þeir luku við að borða og gengu svo út á ísinn. ísinn var farinn að þiðna. Þeir voru þess vegna ekki komnir langt, þegar Venni datt skyndilega niður í. Hann barð- ist um og tók traustu taki í skörina, en hún brotnaði jafnharðan undan þunga lians. Frank hljóp óðara til og ætlaði að rétta honum hjálparhönd, en þá brast ís- inn einnig undir honum og hann fór á bólakaf. Bræðurnir busluðu nú þarna í ís- köldu og hættulegu baðinu, svo skammt frá bakkanum — og þó svo fjarri. — Hjálp, hjálp! æptu þeir, þótt þeir væru næsta vonlitlir um að neyðaróp þeirra heyrðust, þar sem þeir voru svo langt Telpurnar veifuðu björgunarlinunni i áttina til vakarinnar. inni í skóginum. Samt sem áður var hjálp- in ekki svo langt undan. — Já, nú erum við alveg að koma, heyrð- ust tvær skærar telpnaraddir kalla, og þeim Frank og Venna til mikillar undrunar, sáu þeir frænkur sínar koma út á ísinn. — Missið ekki kjarkinn! hrópaði Nanna. — Verið bara þolinmóðir! æpti Gyða. Telpurnar bundu nú í flýti saman sterku, heimaofnu treflana sína og veifuðu svo þess- ari ágætu björgunarlínu í áttina til vakar- innar. Venna tókst að ná í línuna og frænkur SKATABLADIÐ

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.