Skátablaðið - 01.01.1947, Blaðsíða 26
höfund. — En hvernig væri fyrir B.Í.S að auka
svolítið við skátabókmenntirnar og reyna að
afla sér tekna með bókaútgáfu?
,,ER EKKí VONLAUS'E að bíða eftir bún-
ingum?“ Þannig spyr margur og ekki að ástæðu-
lausu. Astandið í búningamálunum mun vera
harla bágborið yfirleitt í skátaíélögunum og því
næsta eðlilegt, að menn séu óþolinmóðir að
bíða. Margir eru orðnir þreyttir og hættir að
spyrja, enda eru hin sömu svör ávallt á reiðum
höndum: „Það er miklum erfiðleikum bundið
að útvega búninga. Stríðsástand ríkir enn í
heiminum. Annars hljóta þeir nú að fara að
koma.“ Og þetta eru einu svörin, sem þið fáið
að sinni. En um fram allt missið ekki vonina.
Ég kann eina vísu um vonina, sem þið skuluð
læra og hafa yíir, þegar í móti blæs. Hún er
svona:
Vonin styrkir veikan þrótt,
vonin kviða hrindir,
vonin hverja vökunótt
vonarljósin kyndir.
GÁTUR
1. Hvaða málmur verður að hári, e£
fyrsta stafnum í nafni hans er sleppt?
2. Hvaða hestkenning verður að eldivið,
ef breytt er um fyrsta staf?
3. Hversu langt er tunglið?
4. Hvaða skordýr verður að for, ef fyrsti
stafurinn er tekinn burt?
5. Hvaða á í Evrópu verður að kalli, ef
nafn hennar er lesið aftur á bak?
<5. Hver talar öll tungumál?
7. Hvert fljúga fuglarnir að jafnaði?
8. Hversu langt inn í skóginn hleypur
hjörturinn?
<4 Hvert fara börnin, þegar þau eru
tveggja ára?
10. Hvað áttu að gera, þegar þú dettur?
Svörin eru d bls. 26.
Úr skýrslutn skátafélaganna 1945.
Eignir skátafélaganna:
a) Sjóðir ............. kr. 169.928,78
b) Áhöld .............. — 45.299,82
c) Fasteignir o. fl.... — 156.372,98
Alls kr. 371.601,58
Þessi félög sendu ekki skýrslu fyrir 1940'-
1) Skátafél. Væringjar, Akranesi, 2) Skáta-
íél. Glaðherjar, Suðureyri, 3) Skátafél. Birn-
ir, Blönduósi, 4) Skátafél. Andvari, Sauðár-
krók, 5) Skátafél. Verðir, Svarfaðardal, 6)
Skátafél. Birkibeinar, Eyrarbakka og 7)
Skátafél. Fossbúar, Selfossi.
Prófin skiptust þannig (í sviga 1944):
Nýliðapróf 415 (455), Annars fl. próf 211
(208), Fyrsta fl. próf 50 (28) og Sérpróf 411
(605).
Til samanburðar skulu birtar heildartöl-
ui 1944 (sbr. Sk.bl. 4. tbl. XI. árg.): Fundir:
3586 með 32030 þátt. Útilegur: 524 með
4177 þátt. En eignir voru alls kr. 268.195,82.
Á árinu 1945 hefir því enn orðið aukn-
ing á öllum liðum nema í prófum. Síðan
gefst ef til vill tækifæri til þess að athuga
þessar tölur betur.
Skátafélögin ættu að muna, að ársskýrsl-
ur ásamt skatti til B.Í.S. ber að senda fyrir
15. febrúar ár hvert.
Innl. bréfr.
Kennarinn: Úr hverju eru fataefnin búin
til, Jóhann litli?
Jóhann þegir.
Kennarinn: Svona nú, svaraðu, drengur.
Þú veizt þetta vel! Úr hverju eru fötin þín?
Jóhann: Úr gömlu buxunum hans pabba!
°o°
18
SKATABLAÐIÐ