Skátablaðið - 01.01.1947, Side 15
lians drógu hann báðar lijálparlaust upp
úr og alveg upp á traustan ís. Svo kom
röðin að Frank. Og honum var bjargað á
sarna hátt. En drengirnir hríðskulfu þarna
af kulda, eftir þetta óvænta bað.
— Hlaupið þið, báðir tveir, eins hart
og þið lifandi getið, sagði Nanna. — Hús
skógargæzlumannsins er hérna skammt frá,
þarna upp frá, sjáið þið, og lnin benti í
áttina þangað.
Drengirnir hlupu af stað. Tennurnar
glömruðu í þeim og það lak af þeim vatnið
eins <og hundum af sundi.
Þeir fundu hús skógargæzlumannsins.
Þeir fengu að fara úr fötunum og þurrka
þau við ofninn. Þeir náðu sér brátt eftir
volkið, en það liðu samt nokkrir tímar
áður en þeir urðu ferðafærir.
— Þetta var nú skrýtin skógarferð, sagði
Venni, þegar þau loks lögðu af stað heim-
leiðis. — En hvernig stóð á því, að þið
komuð einmitt á réttu augnabliki? spurði
hann svo og snéri sér að Nönnu og Gyðu.
— Við höfum fylgt ykkur eftir síðan í
morgun, sagði Gyða og hló við. — Þið vild-
ugj að vísu ekki hafa okkur með, en við
hugsuðum sem svo: Við höfum þó alltaf
leyfi til þess að fara sömu leið og þeir.
Og það gerðum við.
— Við sáum greifingjann líka, sagði
Nanna hlæjandi.
— Og þið björguðuð lífi okkar, sagði
I’rank alvarlegur, — og það verð ég víst
að viðurkenna. Við áttum það sannarlega
ekki skilið, eins og við tókum á móti ykkur.
— Nei, alls ekki, sagði Venni iðrandi.
— Auðvitað ekki, sagði Gyða, en dreng-
ir eru einu sinni drengir, — stundum
heimskir eins og gengur, bætti hún við
íbyggin, kinkandi kolli hátíðlega.
— Já, heimskir vorum við sannarlega,
samsinnti Frank.
— Ætlið þið að segja frá þessu heima?
sagði Venni og leit spyrjandi á frænkur
sínar.
— Nei, nei, alls ekki, staðhæfði Nanna.
— Hönd mín upp á Jiað, sagði Frank og
smáglotti við.
— Vinir, — cr ekki svo? sagði Venni og
leit hvasst á frænkur sínar, til þess að vera
viss.
•— í blíðu og stríðu, — sögðu báðar stúlk-
urnar og tókust J)étt í hendur við þá Venna
og Frank.
SKRÝTLUR
Ur dagbók Kobba.
Kobbi litli fékk tvær gjafir á afmælis-
daginn sinn: vasabók, til þess að færa í
dagbók, og hundabyssu. Hann fór strax að
halda dagbók, svohljóðandi:
Mánudagur: ,,Þoka og súld.“
Þriðjudagur: „Súld og þoka.“
Miðvikudagur: „Þoka og súld. Skaut
ömmu.“
Ekki hrceddur við lögregluna.
Klukkan tvö að næturlagi, kemur piltur
á reiðhjóli niður Hverfisgötuna með ljós-
lausa luktina. Á horni Hverfisgötu og Ing-
ólfsstrætis stendur lögregluþjónn og kallar
skipandi röddu:
— Kveiktu á luktinni, drengur.
— Vertu ekki svona myrkfælinn væni!
sagði snáðinn.
Dönsk fyndni.
Kristján konungur var á ferðalagi og
kom til smáborgar og þyrptist þar að múg-
ut og margmenni til að sjá hann. Þar voru
einnig tvær ungar stöllur og sagði önnur
við hina: „Sá er ekki par fríður.“
„Nei,“ sagði kóngur og sneri sér að þeim.
„En hann heyrir vel.“
SKÁTABLAÐIÐ
7