Skátablaðið - 01.01.1947, Page 23
BRJOTA HNOTINA
Þrautir.
i- Hvað er það fyrsta, sem presturinn gerir,
þegar hann kemur upp í pédikunarstólinn,
fyrsta sunnudag í febrúar?
s. Hvernig eru steinarnir á botni Rauða hafs-
ins?
3. Hve margar kattarrófur þarf til þess að þær
nái til tunglsins?
SKATAB LAÐ IÐ
4. Hérna eru tvær bækur, 1. og 2. bindi, og
standa þau hlið við hlið í réttri röð. Hvort
bindi er 34 mm að þykkt. (Innihaldið er 30
mm, en hvert spjald 2 mm að þykkt). Á
bls. 1 í fyrra bindinu er bóklús. Hún skríður
frá 1. bls. í fyrra bindinu til síðustu bls. í
seinna bindinu. Hve marga nnn hefir hún
skriðið, þegar hún kemur þangað?
5. Maður þurfti að flytja yfir á úlf, geit og
poka af kálhausum. Hann varð að flytja
eitt af þessu þrennu yfir í einu, því að flytti
hann t. d. úlfinn og geitina yfir í sömu
ferð, át úlfurinn geitina, og ekki gat hann
skilið geitina eftir hjá kálinu, því að það er
hin bezta fæða, sem geitur fá. Hvernig fór
maðurinn þá að leysa þennan vanda?
SKÁTAR!
Sendið Skátablaðinu skrýtlur, myndir, krossgát-
ur, vísur, feiumyndir, þrautir og skemmtanir.
15