Skátablaðið - 01.01.1947, Qupperneq 35
FLOKKSFUNDIR
\ TÚ hefir víða verið tekið upp hið svo-
' nefnda samfundakerfi í vetrarstarfsemi
skátafélaganna, en þó eru þau félögin senni-
lega fleiri, sem bæði sakir lnisnæðisleysis
og af öðrum orsökum liafa ekki haft tök
á að taka það upp.
Það er alltaf stærsta vandamál flokksfor-
ingjans að hafa fundina svo skemmtilega
og aðlaðandi, að skátar lians sækist eins
mikið eftir að fara á flokksfundinn og á
spennandi bíómynd. Það er þess vegna sí-
fellt þörf á að leiðbeina flokksforingjum
um það, hvernig þeir eiga að hafa flokks-
fundina nógu tilbreytingaríka og skemmti-
lega.
Bezt er að byrja flokksfundinn með
stuttri, en þó áhrifarxkri athöfn, t. d. með
þvx að allir fari með skátalögin. Síðan er
bezt að byrja á einhverjum stuttum, en
skemmtilegum þætti, sem enginn vill missa
af, t. d. stuttum leik eða keppni, sem inni-
felur eitthvað úr skátaprófunum. Með því
að byrja á þessu, er vakinn áhugi skátanna
á því að mæta stundvíslega. Leiki og keppni
með atriði úr prófunum er liægðarleikur
að búa til, t. d. með hnúta, hjálp í viðlög-
um, áttavita, landabréf, skátalögin, flagga-
stafióf og morse sem uppistöðu, einnig eru
hinir ágætu kimsleikir alltaf bæði skemmti-
legir og gagnlegir.
Þegar þessu er lokið, hefst kennslan, og
er hæfilegt að hún standi yfir í hálftíma.
Kennjlunni stjórnar flokksforingi, og skal
hann hafa undixbúið hana rækilega fyrir
livern fund, svo að hún megi ganga við-
stöðulaust. Flokksforingi þarf að hafa lokið
því prófi, sem hann kennir undir, svo að
hann sé viss í öllum atriðum og öðlist
þannig álit hjá skátum sínum. Kennslan
skal veia bæði munnleg og verkleg, einnig
í leikjum eiris og áður er getið. Flokksfoi'-
inginn getur haldið smá fyrirlestra um hin
ýmsu atriði, en við sum atriðin, t. d. hjálp
Flokksfundur: Kimsleikur.
í viðlögum, er náttúrlega nauðsynlegt og
sjálfsagt að hafa verklegar æfingar.
Dæmi um kennslu á einum flokksfundi:
a) Flokksforingi talar um líf og starf Baden-
Powells í 10 mínútur.
b) Keppni um, hver fyrstur er að hnýta
nýliðaprófshnútana blindandi.
c) Aðstoðarflokksforinginn flytur 5 mín.
hugleiðingu um einkunnaiorðið.
cl) Flokksforinginn lætur alla skátana hafa
myndir af skáta í búningi. Síðan eiga
þeir að merkja á myndirnar, hvar hin
ýmsu merki eru borin.
Þetta gæti verið nægileg kennsla á ein-
um fundi, en eitt aðalatriðið er að hún sé
fjölbreytt og lifandi.
Nú hefst aftur léttara efni, og gæti þar
komið til greina eitthvert eftirfarandi at-
riða: Sagðir brandarar úr skólanum, sýndir
galdrar, smáleikþættir, þögull leikur, en
sjálfsagt er að hafa framhaldssögu, skemmti-
lega, spennandi og ekki allt of langa. Síðan
SKÁtABLAÐIÐ
27