Skátablaðið - 01.07.1948, Blaðsíða 19
hinir sömu séu komnir af skátaaldrinum svo-
kallaða, ber þess gleggst vitni. Mér finnst nú, að
margar þær vonir, er ég gerði mér um veru mína
í skátafélaginu, hafi ræzt og séu alltaf að ræt-
ast. Starf skátanna býður upp á óteljandi verk-
efni. Þar er rúm fyrir alla, hvernig svo sem
viðhorf þeirra til lífsins annars eru.
Guðm. Ófeigsson.
EF VIÐ h'tum yfir far-
inn veg-----. Þannig er
upphaf einnar skátavísu
okkar, og flest erum við
þannig gerð, er við
stöndum á einhverjum
tímamótum að meta það
sem gert hefur verið.
— Skátafélagsskapurinn
hefur eflzt og dafnað í
þessi 35 ár, en mörg
verkefni eru ennþá fyrir hendi.
Það er ósk mín, að skátahreyfingin eigi eftir
að berast út um allt landið og að sem flestir
íslenzkir unglingar fái tækifæri til að kynnast
henni og njóta þeirra hollu uppeldisáhrifa og
ánægju, sem fylgir góðu skátastarfi.
Margrét Hallgrimsdóttir, Akureyri.
ENGU EINU á ég
meira að þakka en
skátahreyfingunni. Þar
hef ég byrjað á öllu
mínu föndri, sem hefur
orðið mér bæði til gagns
og gleði. — Vegna langr-
ar reynslu get ég engum
ráðið betur en að taka
skátahrevfinguna alvar-
lega og kappkosta að
tileinka sér starfsaðferðir og sjónarmið hennar.
Takmark skátahreyfingarinnar er nægjanlegt
lífstakmark hverjum meðalmanni og engin
skapgerð er ákjósanlegri en sú, sem sannur
skáti þarf að hafa.
Þetta er Jtað, sem ég persónulega hef um
skátahreyfinguna að segja. — Um engan annan
félagsskap get ég sagt jafn mikið gott.
Helgi S.
SKÁTAHREYFING-
IN er i upphafi hugsuð
sem þjóðlegur enskur
félagsskapur. En það
sýndi sig brátt að skáta-
hreyfingin var heppileg
og mjög æskilegurfélags-
skapur fyrir æsku ann-
arra landa. Hún er al-
þjóðleg hreyfing, sem
vinnur að bræðralagi og
friði milli allra þjóða. En þó að skátahreyfingin
sé alþjóðlegur félagsskapur, þá er hún fyrst og
fremst þjóðleg. Hún kennir æskulýðnum að
hugsa og starfa sjálfstætt, ktnnir þeim að virða
verðmæti þjóðar sinnar. Og sú æska, sem skil-
ur og virðir sína eigin þjóð, hún skilur og
virðir hugsanir og skoðanir annara þjóða. Með
gagnkvæmum skilningi æsku allra landa, er
fyrsta sporið stígið til friðar og vináttu meðal
þjóðanna.
Franch Michelsen, Rvík.
í ÞRJÁTÍU OG FIMM
ár hefur skátahreyfing-
in mest megnis verið
félagsskapur barna og
ungmenna. I dag er við-
fangsefnið fólgið í því
að víkka og breikka
verksvið hreyfingarinn-
ar, svo að okkur takist
að halda í unglingana
og uppkomna fólkið.
Heppnist þetta, verður það upphafið að örum
vexti, að öðrum kosti geta liðið önnur 35 ár
án þess að um nokkra verulega framför verði
að ræða.
SKÁTABLAÐIÐ
Hallgr. Sigurðsson, Rvik.
113