Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1948, Blaðsíða 51

Skátablaðið - 01.07.1948, Blaðsíða 51
inginn forgöngu um það og útvegaði til þess tvo hermannaskála, vel vandaða. Voru fengnir smiðir til þess að reisa þá og voru þeir tilbúnir seint í júní. Gat því skóli kvenskáta ekki hafizt fyrri en 19. júní. Dvöldu þar um sumarið 24 fastir nemend- ur. Borghildur Strange hafði skólastjórn á hendi, en henni til aðstoðar voru Margrét Magnúsdóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir og Margrét Magnúsdóttir (Maddý). Þótti kvenskátum hagur sinn vænkast, er húsakynni bötnuðu svo mjög, sem raun varð á, og ekki spillti það ánægjunni, er þær fengu bæði útvarp og vindrafstöð. Ingólfur Guðbrandsosn stjórnaði skáta- skóla drengjanna, en með honum voru Her- mann Ragnar Stefánsson, Haraldur Guð- jónsson og Magnús Pálsson. Alls dvöldu á skólanum 39 drengir, 11 — 16 ára, flestir allan tímann. Sumarið var ákaflega votviðrasamt, og þar eð tjöldin voru nú fjögra ára, héldu þau illa vatni í svo langvarandi rigningu og láku allmikið. Margra ráða var leitað til úrbóta, en allt kom fyrir ekki. Lá fatn- aður drengjanna undir skemmdum. Veðr- áttan hamlaði mjög allri starfsemi skólans. Um haustið var foringjaskóli á Úlfljóts- vatni á vegum B.Í.S. og var Páll Gíslason forstöðumaður skólans. Var skólinn fyrir sveitar- og flokksforingja og bæði fyrir drengi og stúlkur og stóð í 8 daga. Skólann sóttu um 70 nemendur. 1946. Um veturinn sagði ráðsmaðurinn upp og var þá Hermann Thorstensen ráðinn til eins árs. Litlar framkvæmdir voru gerðar á jörðinni sumarið áður, að öðru leyti en því, að unnar voru rúmar 3 dagsláttur vest- an skálans og sáð grasfræi. Allur húsdýra- áburður hafði verið settur í flagið, en til- búin áburður notaður á túnið. Nú varð sú breyting á skólastarfinu, að báðir skólarnir voru settir undir eina stjórn, og var frú Áslaug Friðriksdóttir, félagsfor- ingi, forstöðukona. Öll matseld fór fram í kvenskátaskálanum og mötuðust drengirnir þar. Tjöldin voru öll meira og niinna eyði- lögð, og sváfu drengirnir í suðurenda skáta- skálans, og voru engin tjöld uppi þetta sumar. Minni aðsókn var að skólanum þetta ár en áður, og rná vafalaust rekja orsökina til hins slæma tíðarfars sumarið áður og þess, hve tjöldin voru slæm. Alls dvöldu á skólanum 15 telpur og 19 drengir. Foringjar auk forstöðukonu voru Jóhann Frá kxienskátaskólanum. Sigurðsson, Kristjana S. Njarðvík og Mar- grét Magnúsdóttir (Maddý). Krakkarnir störfuðu nokkuð að bústörfum, enda var veður hagstætt og hin bezta samvinna við bústjórann. Um mitt sumar var haldið 5 daga nám- skeið fyrir ljósálfa og ylfingaforingja, og stýrði Björn Stefánsson því. Um haustið var sveitarforingjaskóli og voru þar 15 sveitarforingjar. Páll Gíslason var forstöðumaður. 1947. Síðla vetrar sagði ráðsmaðurinn starfi sínu lausu. Þrátt fyrir ítrekaðar auglýsing- SKÁTABLAÐIÐ 145
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.