Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1907, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.04.1907, Qupperneq 7
39 var á þeim tíma, er hún fœddist. Sá, sem ekki getr gjört grein fyrir hinum dularfullu vegum guölegrar forsjónar, þeim er i>annig birtast á yfirborði mannkynssögunnnar, þarf ekki aö hneykslast á hinum siöfrœöilegu vafaspurningum, sem frásögn biblíunnar um flóðiö hefir í för með sér. Yfir höfuð að tala getum vér sagt, aö við það að sinna ekki andlegu eöli sinu og hinum háu kröfum um að beita rétt- læti við brœðr sína hafi maðrinn verið sinn eigin versti óvinr. „Stjörnurnar frá brautum sínum“ hafa ávallt barizt gegn .vonzku og eigingirni mannsins. Og ekki er það enn úr tíma að halda á lofti viövöruninni andspænis nútíðarþjóðunum, sem ekki skeyta undirstöðuatriðum réttlætisins i afskiftum þeirra hverra af öðrum og eigin þegnum sínum. Viðvaranir spá- mannanna í Israel hafa þýðing fyrir nútíðarkynslóðina fullt eins brýna og forðum fyrir samtíðarmenn þeirra. Það stendr nokkurn veginn á sama, með hverju móti ó- guðlegir menn lenda í grafir þær, er þeir sjálfir hafa sér graf- ið. Niðrstaöan er það aðallega, sem oss kemr við, þegar vér erum að virða fyrir oss málið frá siðfrœðilegu sjónarmiði. Biblían svnir oss, að á dögum Nóa hafi heimrinn verið fullr af spilling og ofríki. Eyðing hans í vatnsflóði hefir ekkert það við sig, sem gjöri oss örðugra að réttlæta það, hvernig guð kom þar fram við mennina, en það, sem hvað eftir annað kemr fyrir enn, þegar þúsundir og jafnvel milíónir meðbrœðra vorra farast i drepsóttum og hallærisplágum, í eldgosum og jarð- •skjálftum, og við það, er sjórinn gengr œðandi á land upp. Það lifir af, sem hœfast er ffyrir lífiðj — sú kenning sannast svo fyllilega sem hugsazt getr í sögu biblíunnar um Nóaflóð. Nokkrir fáeinir útvaldir menn frelsuðust af til þess að verða frumstofn nýrrar kynslóðar, sem breiðast skyldi út á jörðinni og yrði svo sett, að betr en su, er á undan var, gæti varizt gegn spilling syndarinnar og unnt hefði verið, ef allt hefði haldið áfram eins og áðr var. Þá er allt kemr til alls, verðr auðsætt, uð það er jafnvel enn þá fremr miskunnsemi en réttlæti, sem ■skín út úr gjörvöllum söguganginum.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.