Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1907, Qupperneq 26

Sameiningin - 01.04.1907, Qupperneq 26
58 vor! viö þér, því vonin vaknar þá og grær. * * * ;; ? Lifi ljúfa voriö! Lifi vonin skær! Lifi blessati lífið — lífsins vonin kær! Drjúpi’ á hana dreyrinn — döggvan lífsins heit. Lifir ljósa vonin lífs í vermi-reit. -------o------ MYNDIR ÚT AF UPPRISUNNI. Prédikað er út af upprisunni. Og sungið er út af uppris- unni. Hvern einn einasta sunnudag er prédikaö og sungið út af upprisunni — um Jesúm Krist, frelsarann, krossfestan og upprisinn. En svo eru líka myndir málaðar út af upprisunni. Og þeir eru margir, sem hafa málað þær — málað myndir, sem sýna Jesúm upprisinn. En mjög fáir hafa reynt að mála upprisuna sjálfa. Mál- ararnir hafa ekki treyst sér til þess. Enda þegja guðspjalla- mennirnir. Þeir reyna ekki að segja frá henni sjálfir. Þeir segja allir frá því, að Jesús hafi upprisið. V'itna á þann hátt um upprisuna hans; þvi þetta vissu þeir. En þeir vissu ekkert um það, hvernig Jesús uppreis. Enginn hafði séð hann upprísa. Þess vegna þegja þeir. Þeir segja ekki frá öðru en því, sem þeir vita. Ekki samt frá öllu þvi, sem þeir vita. Ekki neitt líkt því. Þeir velja úr, og taka það, sem á við það, sem þeir sérstaklega ætla sér að segja. Um upprisuna vilja þeir vitna — um það, að Jesús hafi sannarlega upprisið. Það er fyrir þeim áreiðanlegur sannleiki. Og þeir vilja einmitt segja frá þessum dýrðlega sannleika á þann hátt, að liann verði áreiðanlegur sannleiki fyrir öðrum. Um iþennan sannleika vitnar fjöldi af miklu málurunum með myndunum sínum út af upprisu Jesú. Með þeim prédika þeir um drottin Jesúm upprisinn. Með litum reyna þeir að segja það, sem aðrir reyna að segja með orðum. Þeir tala til okkar gegn um augun, þar sem aðrir tala til okkar gegn um cyrun.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.