Sameiningin - 01.04.1907, Síða 27
59
Nú tökum viS miklu bétur eftir því, sem viö okkur er sagt
í gegn um augun, heldur en því, sem sagt er viö okkur i gegn
um eyruti. Viö sjáum betur en viö heyrum. Viö ættum þá aö
skilja, hvað gagnlegar eru fyrir okkur góðar myndir.
Þaö er ljómandi mynd út af upprisunni í „Ljósgeislunum“
«ýju (myndin igj. Hún er eftir Plockhörst, mikla málarann
iþýska, og heitir „Páska-morgun", þótt eigi standi það nafn
undir myndinni á „Ljósgeisla“-blaðinu. Hefur málarinn þar
viljað sýna páska-morguninn með myndinni sinni eins og hann
hugsaði sér hann. En textinn hans, sem hann eins og leggur
út af, er samfundur Jesú og Maríu frá Magdala páskadags-
morguninn hjá gröfinni. Þarna stendur Jesús. Fyrir
skömmu var hann í mestu niöurlæging sinni. Nú stendur hann
þarna í upprisu-dýrð sinni og bendir upp til föðursins. Hvað
hann er dýrðlegur! Hann leið og dó, af því hann vildi frelsa.
Upprisa hans sýnir það greinilega. Hann haföi augsýnilega
raldið, en ekki óvinir hans. Hann var ekki neyddur til aö láta
fara svona með sig. Kærleikurinn hans knúöi hann. Ekkert
annað. Hann vildi frelsa okkur. Koma okkur til föðursins.
Upprisan sýnir það. Og upprisan sýnir líka, að hann getur
gert það. Hver, sem horfir á hann og þekkir þar frelsara
sinn, verður gagntekinn. Eins og María fellur hann niöur
fyrir honum í lotning, tilbeiöslu og lifandi kærleika. Horfir
upp á hann og segir í hjarta sinu: „Já, þú ert vegurinn til föð-
ursins. Þú einn ert eilífa lífið.“ Stendur svo á fætur eins og
hún, til þess að vitna um hann, drottin sinn og frelsara, kross-
festan og upprisinn.—Vitna um hann ekki að eins með orðum,
heldur um fram alt með lífi sínu, af því hann sjálfur, frelsar-
inn, lifir nú í sálu hans.
Málarinn segir nú með myndinni, að hver páska-morgun
eigi að vera þetta hverri kristinni sál.
María varð lifandi mynd upprisunnar. Allir hinir læri-
sveinarnir lika. Þeir koma fram fyrir heiminn sem lifandi
myndir, er sýna það, að Jesús sé sannarlega upprisinn. Það
var sterkasta sönnunin fyrir upprisu Jesú. En í rauninni var
það Jesús sjálfur, en ekki þeir, sem á þennan hátt var að sann-
færa mennina um, að hann væri upprisinn og væri frelsarinn;
því hann var það, sem gerði þá að lifandi myndum.
En eigum við þá ekki líka að vera lifandi myndir uppris-
unnar? Sannarlega eigum við að vera það. Getum líka verið
það — við öll, sem trúum á Jesúm Krist. Því hann vill gera
okkur að lifandi myndum og gerir það líka, ef hann fær að
lifa í sál okkar og hafa áhrif á okkur.