Sameiningin - 01.03.1944, Blaðsíða 17
47
að láta ekki bugast hvort sem vel gengur eða illa, heldur
halda í horfinu með óbifanlegri trú á Guði og mætti hins
góða. í þeirri viðleitni árnum vér þér allra heilla og biðjum
Guð að blessa þitt framtíðarstarf til velferðar íslenzkri
kristni og þjóð og til eflingar Guðs ríkis á þessari jörð.
Áður en eg lýk þessu ávarpi vil eg láta í ljósi það álit
að íslenzk ríkisstjórn hefir sýnt frábærann smekk og skilning
á þörfum í því að velja þig biskup landsins, til þess hlut-
verks að heimsækja Vestur-íslendinga á þessari tíð. Það er
í samræmi við það háa mat er nú margir leiðtogar og and-
legir forystumenn þjóðanna hafa áunnið sér á þessum öl-
lagaþrungnu tímum. Eivind Berggrav biskup í Noregi og
samherjar hans hafa áunnið sér heiðursess fyrir hetjudáð
og trygð við hugsjónir kristninnar og lýðfrelsisins undir
erfiðustu ástæðum. Hinn danski prestur og píslarvottur Kai
Munk hefir orðið tákn hins kröftugasta og bezta í dönsku
þjóðlífi í yfirstandandi eldraun. Böðlarnir hafa ekki getað
þaggað niður áhrif hans, heldur margfaldað þau. Martin
Niemöller og Tajohiko Kagawa eru sýnishorn þeirrar kristni
er ekkert fær bugað. Þeir eru postullegir menn er vitna
um mátt kristninnar úr óvina hópi. William Temple erki-
biskup í Kantaraborg er sem upplýst samviska hinnar
ensku þjóðar, og Eidem erkibiskup í Svíþjóð uppfyllir það
erfiða hlutverk að halda í horfinu á eftir sér frægari fyrir-
rennara Soderblom erkibiskupi. Það hefir einnig vakið at-
hygli að í þeim erfiðu ástæðum er fylgja hersátri á íslandi
— þó ekki verði það borið saman við kjör frændþjóðanna —
hefir þú sem leiðtogi kirkjunnar bæði haldið hátt merki
kristninnar og þýðingu og um leið áunnið þér virðingu
hinna amerísku fyrirliða og herpresta, með samúð og
þýðri samvinnu. Þú hefir viljað sýna og sýnt, að þegar á
rejmir mest í mannlegu lífi, er kristindómurinn eina úr-
lausnin. Vér þökkum komu þína og óskum þér að þú megir
verða íslenzku þjóðinni sífelt í fyllra mæli sá forvígismaður
er útþýðir henni í hvívetna lífræna merkingu kristindóms-
ins í orði og verki. Guð blessi þig og varðveiti á ferðalaginu
og heimkominn. Guð blessi íslenzka þjóð og íslenzka kirkju
í bráð og lengd.