Litli Bergþór - 01.06.1989, Page 10
Hagvöxtur upp á 2 % ?
Það er alltaf gaman þegar okkur Biskupstungnamönnum fjölgar og ennþá meira
gaman að standa að því. Annars var það ekki þetta venjulega sem olli fjölgun upp
á fimm á einu bretti héma um daginn. Eins og fram kom í síðasta blaði var
Sveinbjöm Dýrmundsson ráðinn einskonar eignaumsýslustjóri hreppsins hér á
Reykholts-svæðinu. Eftir farkostinum að dæma (40 farþega fólksflutninga-
bifreið) bjuggust auðvitað allir við stórfjölgun á svæðinu. Við LB-ingar vomm
fullir forvitni fyrir hönd lesendanna og inntum Sveinbjöm eftir staðreyndum
málsins. Hann féllst fúslega á yfirheyrslu um eigin hagi og fjölskyldunnar.
Sveinbjöm Dýrmundsson er fæddur í Reykjavík 1950. Hann útskrifaðist úr
Samvinnuskólanum að Bifröst vorið 1971. Starfaði hjá SíS og síðar hjá
Skattstjóranum í Reykjavík að námi loknu. Hann hefur starfað sl. 12 ár við að
leiðbeina grannskólanemendum í námi, lengst af á Súgandafirði, en sl. 2 ár á
Fáskrúðsfirði. Hliðarstörf við leiðbeiningamar hafa verið margvísleg, einkum á
sumrin. Má þar nefna undlingavinnuumsjón, frystihúsavinnu, umsjón með
félagsstarfi aldraðra og akstur.
Áhugamál hans era hin og þessi s vo sem íþróttir, músik (hann hefur spilað á bassa
í danshljómsveitum meira og minna frá fermingu) og félagsstörf, hefur m.a.
starfað í Lionsklúbbum um nokkurra ára skeið.
Eiginkona Sveinbjöms er María Guðbrandsdóttir og eiga þau 3 dætur, Guðrúnu
18 ára, Svövu Kristínu 12 ára og Sonju Lind 7 mánaða.
María er einnig fædd í Reykjavik. Hún starfaði að lokinni skólagöngu einkum við
verslunarstörf, en hefur hin síðari ár verið leiðbeinandi við grannskóla og einnig
starfað við leikskóla. Auk þess hefur hún séð um föndurvinnu í félagsstarfi
aldraðra.
Áhugamálin eru fleiri en eitt. Hún hefur tekið mikinn þátt í leiklistarstarfsemi,
iðkað teikningu og skrautskrift. Einnig má nefna blómarækt og matargerð.
Koma þeirra hingað í ný heimkynni hefur verið ánægjuleg þrátt fyrir hráslagann
í veðráltunni og vænta þau þess að eiga gott samstarf við alla þá er til þeirra þurfa
að leita og hlakka þau til að takast á við ný og áhugaverð verkefni.
S.B.
Mér finnst
aö Sveinbjörn ætti aö
koma upp bjórkrá
(rútunni, keyri svo hring
(sveitinni svo enginn þurfi
aö ganga heim?
Litli-Bergþór 10