Litli Bergþór - 01.06.1989, Page 11
Ungir pennar.
Fallegur staður.
Ég ætla að lýsa stað sem mér
finnst mjögfallegur. Þessi staður
erlðaíBiskupstungum. Hanner
mjög fallegur því hann er heimili
mittogeins þúveistþykiröllum
heimili sín falleg.
Okkar hús er uppi á hól sem
heitir Vesturás og stendur á
gömlu túni sem hét Hátún.
Austar í Vesturásnum er skógur
sem heitir Leynir, amma og afi
eiga hann. Á haustin fer ég og
tíni þar köngla sem hafa dottið af
tveimur háum grenitrjám sem
þar eru, ásamt reynitijám og
birkitrjám. Vestan við okkur er
fjall sem heitir Vörðufell. Það er
391 m á hæð. Suðurás er stór
hóll við bæinn hjá afa og ömmu.
Norðan í honum er Smiðjuhóll
og sagt er að þar hafi verið smiðj a
í gamla daga. Þar á maður að
hafa búið sér til flugham úr
fjöðrum. Hann reyndi að fljúga
yfirHvítáoggathannþað. Hann
gat flogið vegna þess að kring
um ásana er svo mikið
uppstreymi. Fólki þótti hann
vera of kaldur, þvx áin er mjög
straumhörð. Fólkið eyðilagði
því haminn fyrir honum.
Austan við bæinn rennur Stóra-
Laxá í Hvítá sem síðan rennur í
sveig norðan og vestan við
bæinn. Á Hvítá er brú sem var
vígð árið 1957. Áður var ferja á
ánni og feijumaðurinn átti alltaf
heima á Iðu. Þegar fólk þurfti að
komast yfir ána ferjaði hann það
ásamt vamingnum, en hestamir
syntu yfir.
Þegar bjart er sést alla leið til
Heklu og Eyjafjallajökuls og
þegar ég geng upp á Vörðufell sé
ég enn lengra. Eg hef komið til
margra annarra fallegra staða á
landinu, en samt finnst mér þessi
alltaf fallegastur eins og ég sagði
frá áðan.
Margrét Guðmundsdóttir
12 ára, Iðu, Bisk.
ískriftartíma.
Ég skrifa og skrifa,
svakalega er ég orðinn lúinn.
Blýantinum ég varla bifa,
bara ég sé að verða búinn.
Jóhann Haukur Björnsson 12 ára
Stöllum, Bisk.
HJÚPUR HF
Söluskrifstofa Bolholti 4
105 Reykjavík
Súni 91-680425
Einangrað hitaveiturör úr stáli
Einangran fyrir plasthitaveitur
Leggjum plasthitaveitur
Ráðgjöf við hönnun hitaveitna
Sjóðum allar gerðir af plasti
Fjölhæfastir á íslandi
Spegilsuða - múffúsuða -
þráðsuða og sprautusuða
HJÚPURHF.
Flúðum 801 Selfoss
Súni 98-66780
Litli-Bergþór 11