Litli Bergþór - 01.06.1989, Page 14

Litli Bergþór - 01.06.1989, Page 14
Vísnáþáttur eftir Ólaf Stefánsson Syðri-Reykjum. í þennan þátt hef ég tekið frumsamdar vísur, flestar nýlegar. Ég hef reynt að hafa valið sem fjölbreyttast, til að minna á, að íslenskur kveðskapur á sér margskonar form og er dýr arfleifð sem við ættum ekki að týna niður. Vitið þið að í 400 ár hafa íslendingar einirþjóða, haft stuðlasetningu í ljóðum sínum. Við ein höfum “agað málið við stuðlana þrískipta grein, og eflst að bragstyrk við orðkynngi heiðinnar drápu”. Því miður hefur bragheym þjóðarinnar hrakað mjög, en þessi sérstaða má ekki glatast. Stuðlasetning yrði aldrei aftur upp tekin ef svo færi. Þar sem flestar þær vísur sem hér fara á eftir eru undir hinum ýmsu rímnaháttum sem hafa verið að þróast hér á landi í ein 600 ár (afbrigðin skipta hundruðum) þá finnst mér við hæfi að byrja á gömlu atómkvæði sem ég birti í Mímisbrunni fyrir stinnum 30 árum og hét hvorki meira né minna en: Quo usquem tandem. Meðan rauðir spútnikar hverfast ógnhraðir um jarðarkringluna og vísindamenn eru önn- um kafnir við aðframleiða helryk. Heldur krœkluleg björkin áfram vonlausri baráttu sinni í klettaskorunni til þess eins að skemmta skratt- an- um. Þá snúum við okkur að ríminu og þjóðlegheitunum. í vetur var kvöldvaka í Aratungu þar sem m.a. hagyrðingar skemmtu með list sinni. Stjómandi lagði fyrir þá ýmsar spuming- ar t.d. hvað þeir segðu um friðun hvala. Sem áhorfandi leit ég svona á málið: Á sviðinu þó sé með sveitta skalla sitja úrval bestu vísnasmiða. Slík furðumenni má ei látafalla. Mérfinnstþá œtti - líkt og hvalinn -friða. Annað var það líka sem stjórnandinn vildi fá á hreint, en það var hvað landlæknir meinti með sinni bláu eyðniauglýsingu. Ég vildi hafa það svona: Gœt að er þú velur vini, það vill hann okkur láta muna, er birtast oss, í bláu skini, brúnir kroppar í ástarfuna. Ekki orð um það meir. Nú koma vísur undir rímnaháttum. Fyrst eru hér tvær samstæðar vísur ferskeyttar, en það er líklega elsti rímnahátturinn. Það er líka algengasta form á lausavísum. Kuldanœðing kynnastfær á kolli Heklu lendir. Fullur mánifrá í gær föla birtu sendir. Sé hannfullur sýnist mér sómalítill fengur ætti ‘ að gá að sjálfum sér svo hann endist lengur. Þá vil ég taka þrjár vísur, einnig samstæðar,sem eru einskonar mansöngur. Það var sá hluti rímunnar, sem ávarp höfun- dar, til þeirrarkonu sem hann unni. Eigin- lega tileinkun. Hátturinn hér er gagaraljóð, fyrst almennt síðan víxlhent og í síðustu vísunni hringhent. Kveða vil ég kvœðin mín, kvennablómi heyr nú til. Litli-Bergþór 14

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.