Litli Bergþór - 01.12.2004, Side 12
gera við föt. Einar karlmannsnærbuxur
voru þar mjög slitnar í klofinu. Stúlk-
urnar voru eitthvað tregar að fást við
þetta svo Helga tekur við brókinni og
segir:
Það vill leita einatt út
sem inni er stíft og baldið.
Fyrr hef ég saumað fyrir hrút,
fáið þið mér haldið.
Að lokum er hér lítið ljóð sem
Kristján orti til Guðna Lýðssonar
þegar hann missti móður sína aðeins
fjögurra ára gamall, en hann var
sonur Guðlaugar (1898-1946) systur
Kristjáns. Hún lést 3. mars 1946.
Ljóðið fékk Guðni á blaði, skraut-
ritað.
Litla bæjarljósið,
litli bjarminn þinn
lætur ljúfa ylinn
líða um huga minn.
Og þegar hryggðar skúraský
liggur yfir lífsins braut
lýsir geislinn þinn.
Undirritað: Kristján frændi, 14. mars
1946
Inga Kristjánsdóttir tók saman.
Frá íþróttadeild Umf. Bisk
Sumarstarfið var með hefðbundnu sniði eins og svo oft
áður. Æfingar byrjuðu 1. júní og þeim lauk seinni partinn í
ágúst.
íþrótta- og leikjanámskeið fyrir 6 til 12 ára börn var
haldið dagana 14. - 25. júní á íþróttavellinum í Reykholti.
Þátttaka var ágæt eða u.þ.b. 10 böm.
Olafur Guðmundsson íþróttakennari sá um að kenna
bömunum leiki og kynna fyrir þeim íþróttagreinar.
Sundnámskeið fyrir 4 ára og eldri var haldið í
Reykholtslaug 1. - 16. júní. Kennari var Magnús
Tryggvason sundþjálfari. Ágætis aðsókn var að
námskeiðinu í ár og var börnunum skipt í hópa eftir aldri.
Knattspyrnuæfingarnar voru vinsælastar nú sem áður.
Æfingar voru einu sinni í viku fyrir yngsta hópinn; 1. -
3. bekk.
4. - 10. bekkur æfði tvisvar sinnum í viku og var hópn-
um skipt í tvennt þ.e. mið- og eldri hóp. Þjálfari var Axel
Sæland íþróttakennari
Farið var með lið skipað börnum 10 ára og yngri á HSK
mót, sem haldið var á Hvolsvelli 25. júlí. Þar spilaði okkar
lið við A lið fjögurra annarra liða, og var þar af leiðandi á
brattan að sækja. Okkar fólk stóð sig eins og hetjur og
unnu einn leik og gerðu eitt jafntefli.
Þessi sami hópur tók svo þátt í litlu móti á Flúðum og
keppti við jafnaldra frá Hrunamönnum og Gnúpverjum.
Skemmst er frá því að segja að okkar keppendur stóðu sig
vel og unnu flesta sína leiki. I mótslok fengu svo allir gos
og pizzu sem gerð var góð skil.
Eldri liðin (13-16 ára) spiluðu tvo æfingaleiki, heirna og
heiman, við Gnúpverja í byrjun ágúst. Okkar menn unnu
heimaleikinn. I útileiknum náðist í tvö lið og var skipt eftir
aldri, yngra liðið vann sinn leik en eldra liðið tapaði með
eins marks mun.
Yngra liðið fór til Þorlákshafnar 25. ágúst og tók þátt í
HSK móti fyrir sinn aldursflokk. Liðið beið lægri hlut í
öllum sínum leikjum að þessu sinni, en gengur bara betur
næst.
Ekki náðist að manna eldra liðið.
Æfingar í frjálsum íþróttum voru á Laugarvatni þrisvar
sinnum í viku fyrir 12 ára og eldri en einu sinni í viku fyrir
8-11 ára börn. Þjálfari á þeim æfingum var Steinunn
Leifsdóttir íþróttakennaranemi.
Ekki hefur verið mikil aðsókn af okkar börnum í frjálsar
undanfarið, en þó sóttu nokkur æfingarnar á Laugarvatni
og tóku þátt í mótum fyrir okkar hönd. Má hér nefna syst-
kinin Hjört Frey og Ástrúnu Sæland, en þau tóku bæði þátt
í HSK móti á Hellu, og Hjörtur tók einnig þátt í Bikarmóti
Islands í Borgarnesi og Meistaramóti Islands, þar sem hann
náði m.a. 5. sæti í 800 m hlaupi. Þau hafa bæði staðið sig
mjög vel og hvetur félagið þessa efnilegu íþróttamenn að
halda áfram á sömu braut.
Að lokum má geta þess að við tókum þátt í Þriggja-
félagamótinu utanhúss í byrjun september. Það voru frískir
krakkar sem kepptu fyrir hönd félagsins og stóðu sig með
sóma, svo ekki sé nú minnst á mömmurnar sem fylgdu
börnum sínum eftir og létu sig ekki muna um að keppa
fyrir hönd félagsins í kvennaflokki, krækja í stig og komast
á verðlaunapall.
Fyrir hönd stjórnar Iþróttadeildar Umf. Bisk.
Kristín Bj. Guðbjörnsd.
A knattspyrnumóti á Flúðum.
Litli Bergþór 12