Litli Bergþór - 01.03.2008, Page 3

Litli Bergþór - 01.03.2008, Page 3
----------------------------------------------------------------------------------- Ritstj ómargrein Nú á tímum gerir fólk miklar kröfur til aðstöðu og þjónustu hvar sem það býr á svæðum þar sem búseta allt árið er heimil. í mörgum atriðum er ætlast til að sveitarstjórn sjái til þess að þörfum þess sé fullnægt. Samgöngur eru áberandi þáttur í þessu. Frá því að farið var að aka börnum í skyldunámi daglega til og frá skóla hefur verið ætlast til að færð hamlaði ekki för skólabíla nema í mjög vondu veðri. Löngum hefur þótt sjálfsagt að mjólkurbílar kæmust ferða sinna, og var stundum sagt að fólk nyti ekki fullra mannréttinda nema þar sem það byggi væru annað hvort skólabörn eða mjólkurframleiðsla. Á síðustu tímum hefur mjög færst í vöxt að fólk í dreifbýli sé í vinnu fjarri heimili sínu, og hlýtur það þá að ætlast til að akfært sé alltaf þegar ferðaveður er. Nú þekkist varla lengur að burðarlag vega í byggð sé svo veikt að þeir verði ófærir vegna aurbleytu þegar klaki er að fara úr jörð á vorin, því er það einkum snjórinn, sem getur heft för fólks. Einnig þykir flestum illt við að una að þurfa að aka nema stuttan spöl á malarvegi. Sjálfsagt þykir að talsímasamband sé til staðar á öllum byggðum bólum. Nú er þetta mögulegt án símalína, en ný þörf varð til þegar internetið varð algengt. Nauðsynlegt þykir að geta sent og fengið allskonar bréf, myndir og teikningar á augabragði. Fræðsla barna er veigamikill þáttur í lífi fólks, ekki aðeins skyldunámsárin tíu heldur vilja margir eiga kost á að börn sín fari í leikskóla strax á mjög ungum aldri. Til þess að sinna því þarf að vera til hentugt húsnæði, þar sem vel fer um börnin og öryggi þeirra er tryggt. Miklu máli skiptir einnig að þar sé hæft starfsfólk, sem sinnir ekki aðeins líkamlegum þörfum barn- anna, heldur líka andlegum þroska þeirra. Þessi þáttur er væntanlega enn veigameiri þegar börnin eru komin í grunnskólann og farin að búa sig skipulega undir lífsstarfið. Þar er hæfni þeirra prófuð á skipulegan hátt og eftir árangri þeirra. Þar metur ekki aðeins samfélagið til hvers þau eru hæf, heldur einnig þau sjálf. Því er eðlilegt að forráðamenn barna og allir aðrir, sem láta sig velferð þeirra skipta, leggi mikið upp úr því að skólastarfið sé markvisst og árangursrfkt. Mikilvægt er einnig að börn og unglingar hafi góða aðstöðu til tómstundastarfs. Allir þurfa að eiga kost á hreinu vatni, helst bæði heitu og köldu. Góð og örugg vatnsveita er mikils virði og hitaveita eykur mjög þægindi og í ýmsum tilvikum möguleika á fjölbreyttri starfsemi. Frárennsli og sorplosun verður að vera þannig að það spilli ekki umhverfinu. Jafnan þurfa að vera til góðar byggingalóðir á viðunandi kjörum bæði fyrir íbúðarhús og æskilega atvinnustarfsemi og kostur þarf að vera á þriggja fasa rafmagni allsstaðar þar sem veruleg umsvif eru. Ýmis fleiri atriði mætti nefna, sem hænir fólk að, svo sem fjölbreytt atvinnu- tækifæri, sem hæfir mismunandi hæfileikum, áhugamálum og menntun fólks. Sum áðurnefndra atriða eru þess eðlis að íbúar verða að stuðla að því sjálfir að þau séu í lagi, önnur eru á forræði ríkisins og enn önnur að mestu eða öllu leyti á vegum sveitarfélagsins. Margir gera kröfu til að forráðamenn þess leysi allra vanda og hafi áhrif á að yfirvöld sinni sínum skyldum og verði við sann- gjörnum kröfum fólksins. Eðlilegt er að fólk leiti fyrst og fremst til sveitarstjórn- ar með beiðnir um úrbætur hvort sem hún getur leyst það sjálf eða þarf að bera kröfurnar áfram á efra stjórnsýslustig. Sveitarstjórn er kjörin af sveitungunum á fjögurra ára fresti til þess að búa þeim gott umhverfi og sinna óskum þeirra. Því betur sem þessu er sinnt þeim mun meiri líkur eru á að hér vilji fólk búa. 3 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.