Litli Bergþór - 01.03.2008, Síða 4
Formannspistill
Kæru ungmennafélagar.
Vormenn íslands, yðar bíða
eyðiflákar, heiðalönd.
Komið grænum skógi að skrýða
skriður berar, sendna strönd!
Huldar landsins verndarvættir
vonarglaðar stíga dans,
eins og mjúkir hrynji hættir
heilsa börnum vorhugans.
Það er ekki úr vegi að hefja þennan pistil á
þessu fallega ljóði eftir Guðmund Guðmundsson,
skólaskáld, sem hitti naglann á höfuðið þegar hann
nefndi ungmennafélagana Vormenn íslands í sam-
nefndu kvæði sem hann tileinkaði ungmenna-
félögunum og birtist í Skinfaxa árið 1910. Þetta
fallega ljóð sem varð á samri stundu nafnfesti ung-
mennafélaganna hefur lengi verið eitt af þeirra eftir-
lætisljóðum. Þetta er aðeins fyrsta erindið og segir,
í mínum huga, mikið um það sem gerðist í upphafi
síðustu aldar, þá miklu vakningu og þrótt til eflingar
á svo fjölmörgum sviðum mannlífs á íslandi. Það
hefur verið gæfuspor þessarar sveitar að hafa frá
fyrstu tíð staðið og starfað þétt með sínu félagi og
ungmennafélagshreyfingunni.
Já, Ungmennafélag Biskupstungna er 100 ára.
Frá upphafi félagsins hefur það staðið fyrir fjöl-
breyttri starfsemi, s.s. íþróttaiðkun, skógrækt, leik-
sýningum, dansæfingum, spilakvöldum, kvöld-
vökum, dansleikjum, fræðslufundum um heilbrigt
líferni, hjálp í viðlögum, framsögn og ræðu-
mennsku, svo fátt eitt sé nefnt.
Afmælisnefndin stóð fyrir kvöldvöku í Aratungu
9. febrúar síðastliðinn, þar sem fram komu Bjarni
Harðarson alþingismaður sem hafði framsögn um
mannlíf fyrr og nú í Biskupstungum, nýstofnaður
kvartett flutti nokkur lög og Jón H. Sigurðsson frá
Uthlíð var með myndasýningu af öllum lögbýlum í
Biskupstungum. Gaf hann síðan Ungmennafélaginu
mynddiskinn til varðveislu. Mér barst sú harma-
fregn viku síðar að hann hefði orðið bráðkvaddur á
heimili sínu. Ungmennafélagið þakkar fyrir þá
gæfu að hafa notið starfskrafta hans og vottar
aðstandendum öllum innilega samúð.
Leikdeild Ungmennafélagsins frumflutti
„Leynimel 13“ þann 22. febr
Heimasímar:
Loftur: 486 8812
853 1289
. ■ I I
VÉLAVERKSTÆÐI
Heimasimar:
Guðmundur: 486 8817
Helgi: 482 3182
IÐU • BISKUPSTUNGUM
SlMI 486-8840 • FAX 486-8778
KT. 490179-0549
Viðgerðir á búvélum og öðrum tækjum í landbúnaði.
Bifvélaviðgerðir - Smurþjónusta Olíusíur í bíla og dráttarvélar. Smíðum háþrýstislöngur.
r 7)jama f)u c) ^
K Brautarhóli - Biskupstungum
| Bjamabúð Reykfioíti
Verslun og bensínafgreiðsla
Opnunartími: Mán.-fös. frá 09 til 18
Laugard. og sunnud. 11 til 18
Allar almennar matvörur og olíur
Litli Bergþór 4