Litli Bergþór - 01.03.2008, Síða 6
Þórarinn Þorfinnsson og börn hans, Þorfinnur og Þórhildur taka
við afrekshorni í fjarveru Þorfinns eldra, þar sem hann var í um
4000 km fjarlæg þegar það var afhent. Formaður búnaðar-
félagsins, Ottar Bragi Þráinsson til vinstri.
Á Myrkholti hefur verið byggt nýtt hesthús og
þar er farið að temja hross.
Dagskrá Ungmennafélagsins í tilefni af 100 ára
afmæli þess hófst með kvöldvöku snemma í
febrúar og frumsýning sjónleiks var um tveim
vikum síðar.
Afrekshorn Búnaðarfélags Biskupstungna og
Búnaðarsambands Suðurlands var afhent á
kvöldvöku á Klettinum í Reykholti um miðjan
febrúar. Hornið hlaut að þessu sinni Þorfinnur
Þórarinsson, bóndi á Spóastöðum 2 fyrir félags-
og landgræðslustörf.
Formaður Bændasamtaka íslands, Haraldur
Benediktsson, hélt erindi á kvöldvökunni um
stöðu landbúnaðarins og fleira, og Sveinn
Sigurmundsson, framkvæmdastjóri
Búnaðarsambands Suðurlands, greindi frá starfi
Búnaðarsambandsins og hvernig aldarafmælis
þess verður minnst, en það var stofnað við
Þjórsárbrú 6. júlí 1908.
Sveinn Kristjánsson fyrrum bóndi á
Drumboddstöðum 1, sem hefur dvalið á
Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði síðustu ár,
lést rétt fyrir miðjan janúar. Útför hans fór fram í
Skálholtskirkju en hann var jarðsettur í
Bræðratungukirkjugarði.
Jón Hilmar Sigurðsson frá Úthlíð, sem hefur
verið búsettur í Reykjavík síðustu áratugi, andaðist
um miðjan febrúar.
A. K.
Ketilbjörn ehf.
vinnuvélaverktaki
Syðri-Reykjum.
Grímur Pór - Sími 892 3444
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASIMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 6