Litli Bergþór - 01.03.2008, Side 8

Litli Bergþór - 01.03.2008, Side 8
Jón Hilmar Sigurðsson Minning Hann var fæddur í Úthlíð 31. mars 1944. Foreldrar hans voru hjónin Jónína Þorbjörg Gfsladóttir, f. í Laugarási árið 1909, og Sigurður Tómas Jónsson, f. í Brautarholti á Kjalarnesi árið 1900. Jón nam í Bamaskólanum í Reykholti og var í íþróttaskólanum í Haukadal veturinn 1960 - 1961. Ungur gekk hann í Ungmennafélagið og var formaður þess árinl972 til 1975. Heiðursfélagi þess var hann valinn árið 1978. Hann vann á búi foreldra sinna í Úthlíð og víðar frá barnsaldri en hóf búskap í vesturbænum í Úthlíð árið 1972 í félagi við bróður sinn og mágkonu í austurbænum. Þau bjuggu með kýr, kindur og hross. Jón hafði mikinn áhuga á skepnum, einkum kindum, og var mjög fjárglöggur. Frá unga aldri hafði hann þjálfað sig í hlaupum, og nýttist það vel við smalanir í Úthlíð. Einnig æfði hann skipu- lega til að taka þátt í keppni og náði mjög góðum árangri, einkum í langhlaupum. Varð hann oft Islandsmeistari og átti mörg Islandsmet. Jón lamast af mænuskaða árið 1977, sem hann hlaut er stæða af heyböggum hrundi yfir hann í hlöðu og hætti búskap eftir það. Þrátt fyrir stran- gar æfingar fékk hann ekki nægan mátt í fætur til að geta gengið. Þá hóf hann skólanám, lauk fyrst grunnskólanámi, síðan stúdentsprófi og námi í líf- fræði í Háskóla Islands. Hefur hann síðan kennt það fag í ýmsum skólum. Hann starfaði í Sjálfsbjörgu og Samtökum mænuskaðaðra og gegndi trúnaðarstörfum fyrir þau. Hann hefur rannsakað liti hesta og sauðfjár og tekið mikið af kvikmyndum, aðallega af náttúru og dýralífi en nú síðast af bæjum í Biskups- tungum, og sýndi hann þær á kvöldvöku hjá Ung- mennafélagi Biskupstungna viku fyrir andlát sitt og tók þannig þátt í að minnast 100 ára afmælis þess. Vinkona hans og félagi á síðari árum hefur verið Guðný Guðnadóttir. Jón varð bráðkvaddur á heimili sínu að Sléttuvegi 3 í Reykjavíkló. febrúar. Útför hans fór fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík 27. febrúar, en aska hans mun grafin í hans heimasveit. A. K. Jón H. Sigurðsson í Tungnaréttum 2004 Litli Bergþór 8

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.