Litli Bergþór - 01.03.2008, Síða 10

Litli Bergþór - 01.03.2008, Síða 10
Ungmennafélag Biskupstungna 100 ára Aldarafmæli Ungmennafélagsins Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl árið 1908, var Ungmennafélag Biskupstungna stofnað. Þessa verður minnst á ýmsan hátt. Stjóm félagsins hefur skipað afmælisnefnd, og eru í henni Gunnar Sverrisson í Hrosshaga, og er hann formaður hennar, Matthildur Róbertsdóttir í Laugarási og Sveinn Auðunn Sæland á Espiflöt. Hún hefur gefið út drög að dagskrá afmælisársins. Fyrsta atriði hennar fór fram 9. febrúar, en það var kvöldvaka í Aratungu. Þar talaði Bjarni Harðarson, alþingismaður, um Tungnamenn að fornu og nýju, nýstofnaður kvartett söng, en hann skipa Aðalheiður Helgadóttir í Reykholti, Gísli Guðmundsson frá Torfastöðum, nú búsettur á Þórisstöðum í Grímsnesi, Henrietta Osk Gunnarsdóttir í Kistuholti og Karl Hallgrímsson í Miðholti. Jón Hilmar Sigurðsson frá Úthlíð sýndi kvikmynd, sem nefnd er Frá bæ til bæjar er hann tók af bæjum hér í sveit á síðustu árum. Afhenti hann Ungmennafélaginu tölvudisk með þessari mynd að sýningu lokinni. Annað atriði hátíðadagskrárinnar var fumsýning á sjónleiknum Leynimelur 13 eftir Þrídrang á vegum Leikdeildar Ungmennafélagsins 22. febrúar. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og hannaði hann einnig leikmynd og ljós. Leikarar eru 13 og smíðuðu sjö þeirra og tveir til viðbótar leikmynd. Aðrir starfsmenn, sem tilgreindir eru í leikskrá eru fímm, og hafa á hendi hvísl, Ijósastjórn, búninga og saumaskap, leikskrá og umsjón með leikhúseldhúsi, en í boði er málsverður fýrir hverja sýningu. Leikur þessi var áður settur á svið hér fyrir 40 árum í tengslum við 60 ára afmæli Ungmennafélagsins. Einn leikarinn, Sigurjón Kristinsson, lék skósmiðinn í þeirri sýningu en leikur nú lögregluþjón. Á sumardaginn íyrsta, 24. apríl, er fýrirhugað að halda afmælishátíð í íþróttamiðstöðinni í Reykholti að deginum og efna til hátíðar í Aratungu um kvöldið. Áform eru um eftirtalda viðburði: Vígslu sparkvallar í Reyholti í vor, þrjá göngudaga í júní og ball í Aratungu í ágúst eða september. Hjá Litla-Bergþóri verður afmælisársins minnst með því að riíja upp atriði úr sögu félagsins í öllum blöðum á árinu. Ungmennafélag Biskupstungna Hundrað ára starfssaga Aðstæður við stofnun í upphafi 20. aldar var margt hér ólíkt því sem nú er í byrjun þeirrar 21. Landið sunnan úr sporði Skálholtstungu að vatnaskilum á Kili er hið sama, en íbúarnir hafa á margan hátt sett mark sitt á það. Flest umsvif manna og nýjungar hafa verið til að bæta aðstæður til búsetu. Litlar breytingar höfðu orðið á samgöngum frá því fólk settist hér að um eitt þúsund árum áður. Stórárnar þrjár, Hvítá, Tungufljót og Brúará, voru óbrúaðar um aldamótin 1900 nema hrörlegur timburfleki á þeirri síðasttöldu við Brúarfoss, en þar var byggð ný brú, sem enn stendur, á fyrsta ári eftir aldamótin. Mikið var gert í vegamálum skömmu síðar, eða á árunum 1906 og 1907, til að greiða för Friðriks konungs VIII. og fylgdarliðs hans um sveitina ofanverða. Þá var byggð brú yfir Hvítá á Brúarhlöðum og Tungfljót milli bæjanna Brúar og Bryggju og ruddur vegur, sem Litli Bergþór 10 ______________________________ unnt var að fara um með hestvagna, milli þessara þriggja brúa. Þessi vegur varð hluti af hringvegi frá Reykjavík, austur um Þingvöll og Laugardal, suður Hrunamannahrepp, Skeið, vestur Flóa og yfir Hellisheiði. Þá var farið að flytja aðföng og afurðir á hestvögnum, en fólk ferðaðist áfram gangandi eða ríðandi. Víða höfðu myndast götu- slóðar eftir fætur manna og dýra og þá aðallega hestanna. Enginn sími, loftskeyti, útvarp eða þess háttar var til og einu fjarskiptin var pósturinn, sem kom öðru hvoru. Hann flutti sendibréf til og frá, tímarit og blöð, sem fólk var áskrifendur að. Hýbýli fólks voru víðast torfbæir með veggjum hlöðnum úr torfi og grjóti og þaki sem var borið uppi af stoðum og sperrum, sumsstaðar klætt með hellugrjóti og oft skógarhríslum. Víða voru bæirnir klæddir að innan með timbri á veggjum og

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.