Litli Bergþór - 01.03.2008, Page 12
Magnús Helgason hafa rækt þetta vel, fylgst með
og hvatt til náms. Hann var prestur á Torfastöðum
1884 til 1905 en síðar skólastjóri kennaraskólans.
Unga fólkið hafði tekið þessu vel. Ætla má að
séra Magnús hafi verið búinn að undirbúa
jarðveginn fyrir svona félag á einhvern hátt.
Þorfinnur og Viktoría höfðu kynnst hliðstæðu
starfi í skólunum og skipulagi félaga og
fundarreglum.
Ákveðið var stofna félag um haustið. „Og er
sumarönnum var lokið var þegar hafist handa um
undirbúning.“
Send voru boð til ungs fólks í Eystritungunni
um að 3. nóvember yrði stofnað félag ungs fólks.
Þá var engin brú á Tungufljóti og þótti því rétt að
takmarka félagið við Eystrituguna. Undir kvöld
þennan dag, sem hafði verið „bjartur og fagur“,
kemur fólkið að vesturbænum á
Drumboddsstöðum. Þar bjó þá Gróa
Þorsteinsdóttir, f. 1852, en hún var ekkja Þórarins
Þórarinssonar, f. 1848. Hjá henni voru fjögur börn
þeirra: Þorfinnur, f. 1884, síðar bóndi á
Spóastöðum, Sigríður, f. 1886, síðar húsmóðir í
Austurey í Laugardal, á Kjóastöðum og víðar og
Þorsteinn og Guðríður, tvíburar f. 1888, sem tóku
við búskap af móður sinni.
Guðríður segir svo frá upphafi fundarins:
„ Fundurinn var settur og öll venjuleg
fundarsköp höfð. Þorfinnur stýrði fundi og reifaði
málið. Ræddi hann tildrög og tilgang þessa
væntanlega félags. Lýsti hann málfundum, sem
Þorfinnur Þórarinsson.
haldnir voru í þeim skóla er hann hafði sótt, og
taldi að þeir hefðu haft mjög þroskandi áhrif á
hugsun og framfærni skólapiltanna. Kvað hann og
tilgang þessarar félagsstofnunar einkum þann, að
gefa unga fólkinu kost á að æfa sig í því að setja
hugsanir sínar fram skýrt og feimnislaust í
ræðuformi, æfa sig í því í hópi sinna líka. Á
þessum samfundum yrði líka reynt að hafa um
hönd fræðsluerindi, þótt það yrði að sjálfsögðu af
skornum skammti og ófullkomið. Svo myndi líka
verða skemmt sér við söng, dans og ýmsa leiki.
Allir ungir hefðu gaman af því og hófleg
Tilboðsgerð - viðhald
hurðir - gluggar - timbur
íbúðar- sumar- og stálgrindarhús
Hákon Páll Gunnlaugsson
löggiltur húsasmíðameistari + byggingastjóri
Sími 483 1965 og 894 4142
V____________________________________________________________________________J
Litli Bergþór 12 _________________________________________________________________