Litli Bergþór - 01.03.2008, Blaðsíða 14
Frá þorrablóti
Minni kvenna
Góðir gestir
Þar sem minni mitt er mjög lélegt man ég ekki
hvernig formúlan fyrir hefðbundnum pistli um minni
kvenna er. Hef ég því ákveðið að varpa fram
hugleiðingum um efni sem stendur mér nærri en það
er samanburður á mjaltatækni.
Sem kúabóndi í dag kemur oft fyrir að meta þurfi
hvort nýjasta tækni eigi upp á pallborðið hverju
sinni. Hef ég því ákveðið að gera samanburðarlista á
annars vegar mjaltaþjónum (róbótum) og hinsvegar
hinni gamalreyndu og þrautseigu mjaltakonu.
Ef við byrjum á útlitinu þá er það gjörólíkt.
Mjaltaþjónninn er annað hvort rauður kassalaga eða
blár kassalaga. En mjaltakonan getur verið í öllum
litum og fer liturinn eftir ýmsu t.d. hugarástandi,
tísku, tunglstöðu og fleiri umhverfisþáttum sem erfitt
getur verið að átta sig á. Jafnvel getur hún skipt
litum en þá má maður oft sjálfum sér um kenna.
Lúkkið er mjög ólíkt, hjá mjaltakonunni eru
mjúku, hlýju línurnar ráðandi en á mjaltaþjóninum
eru skörp horn og kalt málmkennt yfirborð sem
ekkert gaman er að reka sig óvart utaní.
En úr þessum þungu þönkum reikaði nú hugurinn
að notagildinu, jú mjaltaþjónninn er eingöngu
ætlaður til þess eins að þjóna einni dýrategund, en
blessuð mjaltakonan, hún er margfalt fjölhæfari og
treysti ég mér engan veginn til að telja upp allt það
sem hún er fær um að framkvæma.
Að eignast mjaltaþjón er tiltölulega lítið mál,
einungis þarf að geta skrifað nafnið sitt skammlaust,
því að sölumenn berjast um á hæl og hnakka við að
telja manni trú um að þetta sé hinn eini sanni
vandamálaleysir. Þegar að bóndi festir sér
mjaltaþjón fær hann notendahandbók og gerður er
nákvæmur þjónustusamningur um eftirlit og viðhald
og allt að 10 ára ábyrgð. Öðru máli gegnir um
mjaltakonuna, engin notendahandbók, ekkert
þjónustutékk og engir ábyrgðarskilmálar, aðeins
klapp á bakið frá tengdó og svo verð ég að spjara
mig upp á eigin spýtur.
En að eignast góða mjaltakonu er talsvert flóknara
mál. Þar þarf maður að leggja sig fram af lífi og sál
og beita öllum mögulegum og ómögulegum
persónutöfrum sem maður hefur uppá að bjóða.
Snúum okkur að húsplássinu en svo virðist sem
að hægt sé að bolta mjaltaþjóninn niður nánast hvar
sem er, hvort heldur sem er úti í horni í skítakulda
eða bara miðsvæðis eins og hverju öðru jólatré og
þar er hægt að ganga að honum vísum, hvað sem
tautar og raular. Allt öðru máli gegnir um mjalta-
konuna, beita þarf ýtrustu lagni og samningalipurð
Frá þorrablóti aldraðra.
til þess að geta gengið að henni á vísum stað. Til
þess að hún virki rétt þarf helst ákveðið hitastig,
mjúkt gólf, góða birtu, næga loftræstingu og rétta
vinnuhæð. Að maður tali nú ekki um stærð og tísku-
strauma í gerð húsnæðisins, þar eru kröfurnar
margfaldar.
Berum nú saman mjaltatæknina.
Samkvæmt auglýsingu fylgir mjaltaþjónum fimm
ára ábyrgð á spenaleitara með lacerljósi. Varð mér
þá hugsað til mjaltakonunnar sem aldrei hefur
klikkað á spenaleitinni. Mjaltaþjónninn hefur þung-
lamalegan rafstýrðan arm sem þvær og strýkur
spenann eftir fyrirfram ákveðnu forriti í tölvunni
sem er uppfært reglulega af sérþjálfuðum starfs-
mönnum Windows hugbúnaðar.
Leituðu nú hlýjar hugsanir aftur til mjaltakonunn-
ar sem handleikur spenann af einstakri alúð og lagni
sama hver spenastaðan er. Speninn má vísa til hægri
eða vinstri, fram eða aftur eða hreinlega lafa slappur
niður og mjaltakonan nær ávalt réttum tökum á
spenanum og örvar hann til góðra verka. Þess má
einnig geta að ekki er mikil hætta á tölvutengdum
eða öðrum álíka vandamálum í miðjum mjöltum,
nema ef vera skildi að karlinn væri að skipta sér af.
Þá er voðinn vís.
Nú hefur verið farið vandlega yfir tæknilegu
hliðarnar á þessum tveimur lausnum og er þá
tímabært að skoða rekstrarhliðina. Byrjum á
mjaltaþjóninum. Hann kostar X margar krónur í
innkaupum, hann kostar X margar krónur í viðhaldi
og rekstri og síðan er hann afskrifaður á 10 árum.
Um rekstrarkostnað og afskriftir mjaltakonunnar hef
ég ákveðið að tjá mig ekki, því að mig langar til að
komast heim eftir blótið og fá hjálp við mjaltirnar í
þynnkunni í fyrramálið.
I lokin legg ég nú til að við karlmenn lyftum
glösum til heiðurs konum og ég óska ykkur öllum
góðra „mjalta“ í framtíðinni. SKÁL.
Jón Halldór Gunnarsson.
Litli Bergþór 14