Litli Bergþór - 01.03.2008, Síða 16
Litla-Fljóti hittist í Búðinni til að tala um snyrtivörur
og undirföt í stað fittings og vinnuvéla? Viljum við
að Margeir á Brú og séra Egill hjóli um sveitina á
vespum í stað Flarley Davidsson?? Eigi skepnan að
nýtast okkur til fulls, þá er ég ekki að tala um
hreingerningar og barnauppeldi, því það getum við
gert sjálfar, verður hún að lifa og hrærast í sínu
náttúrulega umhverfi. Ekki væla í þeim um hrein-
gerningar barnauppeldi og reikninga. Hvetjið þá til
útiveru. Skítmokstur, snjómokstur og umfelgun á
bílnum gerir þá hrausta og stælta. Ekki kvelja þá til
að horfa á hrútleiðinlegar amerískar ástarvellur svo
þið getið kúrt hjá þeim, við það verða þeir bara
meirir og væmnir. Leyfið þeim að horfa á fótbolta,
handbolta og formúlu með félögunum, þá verða þeir
glaðir. Ekki pína þá til að drekka gulrótarsafa og
herbalife þó að þið séuð í megrun, þá verða þeir bara
slappir og sljóir. Gefið þeim heldur feitt két, slátur og
smér. Og löðrandi feita kúamjólk þá halda þeir
stöðugum glæsileika og fullri reisn. Umfram allt,
ekki, alls ekki gefa þeim árskort á snyrtistofu Ólafar!
því þá breytast þeir í, ja guð veit hvað!
Látum hina sönnu íslensku karlmennsku ekki vera
tákn liðins tíma. íslenski karlmaðurinn er og mun
vonandi alltaf verða einhver dásamlegasta skepna
sem Guð skapaði. Hann ber að varðveita.
Takk fyrir.
Guðrún S. Magnúsdóttir
S
Arsskýrsla Biömunarsveitar Biskupstungna
fyrir árið 2007
Starfsemin á árinu var með nokkuð hefðbundnum hætti.
Útköll og aðrar aðgerðir teljast vera 24, þar sem að komu
68 björgunarsveitarmenn. Þessi útköll og aðgerðir
skiptast þannig að aðgerðir með bíl eru 16 talsins og
sleðaaðgerðir eru fjórar. Einu sinni var gönguleit og á
þremur stöðum mokuðum við snjó af þökum. Önnur verk
sem við tókum að okkur var að við fluttum stóla frá
Laugarvatni í Aratungu og til baka fyrir rekstrarstjóra
Aratungu. Vorum við umferðarstjóm við Skálholt og í
Bræðratungu við útför Sveins í Tungu. Dagana 30. júní til
1. júlí vorum við í hálendisgæslu á Sprengisandi.
Á árinu varð sá merkisatburður að Björgunarsveitin
Biskup , Björgunarsveitin Ingunn og Hjálparsveitin
Tintron stofnuðu sameiginlega unglingadeild sem fékk
nafnið Greipur. Þetta verður að teljast einn merkilegasti
viðburður síðasta árs í samstarfi þessara þriggja sveita.
Axel Sæland, Heiða Pálrún og Þórey Helgadóttir leiddu
þetta fyrir okkar hönd. Þökkum þeim fyrir gott starf. Á
stofndegi unglingadeildarinnar var opið hús hér hjá okkur
þar sem við vígðum klifurvegginn. Félagsstarfið hefur
verið svipað og undafarin ár. Flest öll mánudagskvöld er
opið hús frá því í byrjun september til loka maí og hefur
mætingin oft verið með ágætum þó stundum hefðu mátt
vera fleiri.
Námskeið voru um ferilskráningu og tetravæðingu.
Bæði námskeiðin voru í samvinnu með hinum sveitunum.
Eitt kynningarkvöld var haldið á vegum Leifs rakara um
gps tækin. Á eitt kynningarkvöld var farið í Útilíf í
Reykjavík. Fimm sleðaferðir voru famar, vegna snjóleysis
var farið á Langjökul. Ein ferð var farin upp á Bláfell á bíl-
num. Við enduðum svo vetrarstarfið um miðjan maí á
Klettinum þar sem við komum saman, sötruðum öl og
sögðum sögur.
Árshátíð var haldin sameiginleg með Tintron og Ingunni
og var núna í boði Tintronmanna og haldin á Gömlu Borg.
Tókst hún með ágætum. Einn laugardag í október
flokkuðum við dósir grilluðum og borðuðum saman um
Litli Bergþór 16 -------------------------------------
kvöldið. Landsþing var haldið í Reykjanesbæ í maí, þang-
að fóm fjórir fulltrúar. Fulltrúaráðsfundur var haldinn á Sel-
tjarnarnesi 24. nóv., þangað fóru þrír fulltrúar.
80 ára afmælishátíð Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
var haldinn í Reykjavrk 29 janúar, þar mættu tveir úr
Tungunum. Kvenfélag Biskupstungna fékk húsið lánað
undir markað einn laugardag í sumar.
Pizzavagninn er með sína aðstöðu hjá okkur þegar hann
kemur í Reykholt, yfirleitt tvisvar í mánuði.
Björgunarsveitin er samstarfsaðili um hátíðarhöldin á
17. júní með öðrum félögum hér í sveit. Að þessu sinni sá
unglingadeildin um þann þátt fyrir okkar hönd og fórst það
vel úr hendi. Flugeldasalan er í samstarfi við Iþróttadeild
Umf. Bisk. Okkar hlutur er 70% af innkomu að frádregn-
um kostnaði. í því felst að við sköffum húsið tilbúið undir
sölu. Þetta árið þurftum við ekki að gera mikið til þess, en
næsta ár má búast við auknum kröfum. Að lokum vil ég
fyrir hönd stjórnar þakka öllum þeim sem lagt hafa okkur
lið með einum eða öðrum hætti, en vil ég þó geta sérstak-
lega þeirra Smára Þorsteinssonar og Rúnars Guðmunds-
sonar, sem smíðuðu fyrir okkur klifurvegginn, og Steina í
Bisk-Verk, sem aðstoðaði með efni og vinnu við að gera
húsið löglegt til flugeldasölu.
Stjórnarmönnum þakka ég samstarfið.
Helgi Guðmundsson
Stjórn Björgunarsveitar
Á aðalfundi Björgunarsveitar Biskupstungna, sem haldinn
var 16. febrúar, átti að kjósa formann, varaformann og
meðstjórnanda. Helgi Guðmundsson í í Hrosshaga gaf
ekki kost á endurkjöri sem formaður. I hans stað var
kosinn Andrés Bjarnason, málarameistari, Miðholti 23 og
bóndi á Stöllum. Varaformaður, Kristinn Páll Pálsson í
Brekkuskógi, var endurkjörinn, en Runólfur Einarsson,
Kistuholti 16b og bóndi í Birkilundi var kosinn
meðstjórnandi. Arnór Karlsson, Bjarkarbraut 10, var
endurkjörinn skoðunarmaður.
Aðrir í stjórn eru Sigurjón Pétur Guðmundsson, Miðholti
1, gjaldkeri, og Axel Sæland, Sólbraut 5, ritari.