Litli Bergþór - 01.03.2008, Qupperneq 27

Litli Bergþór - 01.03.2008, Qupperneq 27
Kórinn sæll og brúnn eftir velheppnaða tónleikaferð að loknum síðustu tónleikum ferðarinnar í bænum Sorrento við eyjuna Kaprí. sér. Þegar búið var að finna út hvernig hægt var að kaupa miða úr sjálfssölunum var haldið á brau- tarpallinn sem var sem betur fer rétt hjá. Þá rann upp fyrir ferðafélögunum að lestin átti að leggja af stað 18:52 og klukkan á brautarpall- inum sýndi akkúrat 18:52! Tekið var á sprettinn með hrópum og köllum og geystust nú allir að lestinni. Ekki mátti á tæpara standa því að um leið og Aslaug hafði sloppið inn fyrir lestardyrnar lagði lestin af stað. Það sem eftir var ferðar var tíðindalítið. Um kvöldið var haldið niður í Frascati til að borða á fínu veitingahúsi. Því miður reyndist maturinn hvorki standast væntingar né samanburð við hótelið sem við dvöldum á. Raunar áttum við eftir að miða flest hótel sem við dvöldum á eftir þetta við höllina okkar góðu, Hotel Villa Tuscolana, og fæst stóðust samanburð hvað varðaði þjónustu, mat og glæsileik. Helst var fundið að því að loftkælingu vantaði á flest herbergi og að múr- brjótarnir byrjuðu snemma á morgnana. Það er ágætis fæði í Frascat og fært vegna ríms upp í vatnsfat. Margir af þeirri vist fengu allgóða lyst. En aðrir áttu’ ekki raskat. KK Daginn eftir var haldið til Pompei þar sem rústir gömlu borgarinnar voru skoðaðar. Eftir skemmti- lega skoðunarferðina var sungið í kirkju heilagrar Maríu sem var hlýleg og ríkulega skreytt kirkja í Pompei. Síðan var keyrt til bæjarins Sorrento sem liggur við Napólíflóa skammt frá eynni Kaprí. Við komum á hótelið í miðbæ Sorrento þegar nokkuð var liðið á kvöldið. Sem betur fór biðu starfsmenn hótelsins með kvöldmatinn, en þeim lá svo á að komast heim í háttinn að þeir hreinlega hlupu um með diskana - stundum fimm talsins - í fanginu. Næsta dag var haldið út í eyjuna Kaprí og Blái hellirinn skoðaður ásamt afskaplega fallegri eyjunni. Sunnudaginn eftir þá voru haldnir tón- leikar og tekið þátt í messuhaldi. Eftir það var haldið í elsta vínkjallara Sorrento. Þarna slökuðu menn á fram eftir kvöldi og kvöddu samferða- menn okkar um stund, þau Elínu, Steingrím og Val. Næsta dag var keyrt alla leið frá Sorrento til suðurodda Ítalíu. Þar tókum við ferju til borgar- innar Messina á Sikiley þaðan sem við ókum áfram til bæjarins Airceale á austurströnd eyjar- innar. Þetta var tíðindalítil og löng leið. Ferðafélagarnir voru snöggir upp um morguninn enda langeygir eftir útilegu við sundlaugarbakka og sólarströnd. Þarna var legið og flatmagað og síðan farin stutt skoðunarferð til bæjarins Taormina við rætur eldfjallsins Etnu. Daginn eftir var haldið til Palermo, höfuðborg- ar Sikileyjar, og þar nýtti eyðsluþyrstur hópurinn sér tækifærið til að versla. Haldið var frá hótelinu á hádegi daginn eftir og farið um borð í ferjuna, La Superba, eftir stuttan skoðunartúr. Komið var til hafnarborgarinnar Genúa kvöldið eftir. Sjóferðin var hressandi, að vísu nokkuð slæmt í sjóinn. Haldið var á hótel Poggia sem var stutt utan við Genúa og var lítið og sætt með ágætis mat. Eftir að hafa gist þar um nóttina var slakað á um morguninn áður en haldið var til flugvallarins Malpensa við Mílanó þar sem allir kvöddu Hófý með koss og knúsi enda beið hennar næsti hópur. Þetta var búin að vera æfintýraleg ferð. Enda búið að ferðast a.m.k. 3.230 km með Öskubílnum og 1.500 km með ferju. Mikið um fallega staði og söguríkar minjar. Ferðin var eftirminnileg og margt skemmtilegt gerðist sem mun ylja minningunni. Kærust er þó samfylgd ferðafélaganna sem skópu ógleyman- lega stemmingu og skemmtu hver öðrum á löng- um rútuferðum með sögum, tækifæriskveðskap, bröndurum og auðvitað söng, sama hvað á gekk. Kærar þakkir fyrir mig. Skúli 27 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.