Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1996, Page 6
Þannig gengur fæðingartíðnin oft í öldum en það
var einmitt ríkt einkenni í mannfjöldasögu Islands á
18. og 19. öld.
Við sjáum það líka á línuritinu hér að fæðingar-
tíðnin er frekar sveiflukennd þrátt fyrir að fólksfjöldi
í sókninni hafi haldist nokkuð stöðugur. Erfitt er að
sjá einhlýtar skýringar á þessu en giftingaraldur,
giftingartíðni og framboð af jarðnæði, hljóta að vera
samverkandi þættir.
Um 1870 fækkaði fæðingum verulega sé horft á
allt landið í heild en fór svo fjölgandi eftir 1875. Þessa
ber einnig merki bæði í Holts- og Stóradalssókn.
Fæðingarrisið 1888-1892 er athyglisvert að því
leyti að þá var almennt harðindaskeið í landinu og það
ásamt flutningum vestur um haf átti sinn þátt í að
almennt voru fæðingar fæstar á landinu um 1888.
í Holtssókn er þessu öðruvísi farið og gefur það til
kynna að harðindin hafi ekki komið illa niður á
sveitinni og ekki var heldur um beinar vesturferðir
þaðan.
Dánartíðni
Þegar fjallað er um dánartíðni verður að gera ráð
fyrir að hún getur verið breytileg frá ári til árs. Hún
getur hækkað mikið við farsóttir og hallæri en lækkað
þegar vel árar.
(myndir 3.6 og 3.7 á næstu síðu)
Ef við skoðum dánartíðnina fyrir Holtssókn sést
að hún er mjög há í upphafi tímabilsins og nær reyndar
hámarki í móðuharðindunum en lækkar svo og helst
tiltölulega lág fram undir 1820 en er svo mjög
sveiflukennd fram til 1907.
Ekki er alltaf auðvelt að koma auga á beinar
orsakir þessara miklu sveiflna. Þó kann ein skýringin
að vera sú að ungbarnadauði var mikill hluti af
dauðsföllum þegar dánartíðni jókst og getur það að
einhverju leyti útskýrt toppana 1823-1837, 1848-
1852 og 1858-1862 en þá var ungbarnadauði hár.
Það er þó langt því frá að vera eina orsökin heldur
koma til margir samverkandi þættir eins og harðæri
og farsóttir.
Hvað fæðingar- og dánartíðni varðar þá er hlutfallið
svipað í sóknunum tveimur. I sóknunum voru alls 332
fæddir umfram dána al 11 tímabilið, sem er umtal s verður
fjöldi og áhverjum áratug fæddir umfram dánaum 5-
10% heildarmannfjöldans.
6