Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1996, Qupperneq 12
2. skref: Innfærsla ýmissa athugasemda
Til þess að skrá ýmsar athugasemdir skal velja Um
eiginmann eða Um eiginkonu undir Skrásetja. Þessar
skipanir opna Athugasemdagluggann: Eiginmaður -
athugasemdir eða Eiginkona - athugasemdir.
í þessum glugga er skruntjald sem ýmsar athugasemdir
eru skráðar á. s.s. búseta, flutningar, frásagnir, atvinna,
þátttaka í félagslífi og lleira þessháttar. Þetta er
stundum nefnt lífshlaup fólks og er oft á tíðum
forvitnileglesning.
í þennan gluggafer skráning fram eins og um venjulegt
ritvinnsluskjal væri að ræða og því fer vel á því að
hafagreinaskil eftirefninu, jafnvel línubil.
Undir þessum lið er rými fyrir 32 000 bókstafi (um 5
000 orð) um hvern einstakling.
Þegar þessari skráningu er lokið skal smellt á Vista
eða ýtt á Enter vilji maður varðveita frásögnina. A
fjölskylduspjaldinu má sjá nokkrar setningar af því
sem skráð hefur verið með því að smella á
Athugasemda-hnappinn áflýtihnappabrettinu eðameð
því að velja Athugasemdir undir Skoða.
Til að hverfa aftur að Staðreyndaspjaldinu er valið
Fastar undir Skoða eða smellt á Fastar-hnappinn á
hnappabrettinu.
3. skref: Upplýsingar um maka
Ef viðkomandi maður er ógiftur eiga 3. og 4. skref
ekki við í þessum leiðbeiningum. Það skaðar þó ekki
að fara yfir þetta núna. Til þess að færa inn staðreyndir
um eiginkonu skal valið Eiginkona undir Skrásetja
(eins og gert var um eiginmanninn: Eiginmaður undir
Skrásetja).
Smellið á Bæta við og færið inn upplýsingar um
makann. Staðreyndaglugginn er sá sami og notaður
var til að færa inn upplýsingar um eiginmann/
eiginkonu.
4. skref: Upplýsingar um hjúskap
Til þess að færa inn giftingardag og stað skal velja
Gifting undir Skrásetja.
Skrifið síðan giftingardagsetningu og giftingarstað í
viðeigandi reiti í Giftingarglugganum og smellið á
Vista til þess að varðveita upplýsingarnar.
Hjúskaparstétt.
Til að skrá hjúskaparstétt (aðra en gift/giftur) skal
velja af valblaði sem einungis birtist ef
fjölskylduspjaldiðgeymireiginmannogeiginkonu.
5. skref: Fleiri makar
Ef um er að ræða t.d. karl, sem hefur kvænst oftar en
einu sinni, skal velja Ný eiginkona undir Skrásetja.
(Ef um konu væri að ræða skal velja Nýr eiginmaður.)
Allt að 26 maka má skrá hjá hverjum einstaklingi.
Reunion spyr nú: Bæta við eða Tengja núverandi?
Hafi t.d. “nýrri eiginkonu” ekki þegar verið bætt við
í fjölskylduskrána skal smella á Bæta við. Færið síðan
inn nafn og aðrar staðreyndir um nýju konuna. Nafn
hennar ætti að skrást eins og gert var við skírn hennar.
Reunion býr nú til nýtt fjölsky Iduspjald fyrir nánustu
fjölskylduaðviðbættri nýskráðukonunni. Húnkemur
nú fram sem eiginkona á nýju fjölskylduspjaldi. Hið
sama á við hafi nýjum eiginmanni verið bætt inn í
fjölskylduna.
Nýtt fjölskylduspjald verður sjálfkrafa búið til við
hverja giftingu. Hafi einstaklingur t.d. gifst þrisvar
sinnum kemur einstaklingurinn fram á þremur
mismunandi spjöldum - eitt spjald verður til fyrir
hverja fjölskyldu sem hann er hluti af. Börn eða
stjúpbörn hvers hjónabands fyrir sig koma fram á
fjölskylduspjaldinu og sjástþáhjónin semnáttúrulegir
foreldrar eða stjúpforeldrar.
Þyki fólki þetta ruglingslegt er frekari upplýsingar
með dæmum að finna í 12. kafla leiðbeininga-
bókarinnar með Reunion.
6. skref: Skráning barna
Þegar menn hafa skráð sjálfan sig og maka sinn
(eiginkonu og eiginmann) er komið að börnum - fyrst
því elsta og síðast því yngsta. Við skulum byrja á
börnum og stjúpbörnum okkar sjálfra. Við eru bæði
komin á fjölskylduspjald. Eigi maður stjúpbörn eða
börn frá fyrra hjónabandi skulum við skrá þau síðar
á fjölskylduspjald þar sem báðir foreldrar þeirra eru
skráðir. Frekari upplýsingar um meðferð bama margra
hjónabanda er að finna í 12. kafla leiðbeininga-
bókarinnar.
Til að ski'á barn er valið Sonur eða Dóttir undir
Skrásetja. Gluggi birtist nú sem spyr um framhaldið.
• Smellið á Bæta við hafi barnið ekki þegar verið
skráð. Reunion biður næst um upplýsingar um barnið
með því að opna Staðreyndagluggann - hinn sama
sem notaður var til að skrá (Fastar) staðreyndir um
sjálfa(n) þig og maka þinn. Síðan verður sjálfvirkt
búið til nýtt fjölskylduspjald með barninu og
fjölskyldunni.
• Smellið áTengja núverandi ef barnið hefur þegar
verið skráð í fjölskylduskrána. Ef þú ert að fara eftir
þessum leiðbeiningum hefur þú ekki enn skráð börn
þín eða fjölskyldur þeirra. Ef smellt er á Tengja
núverandi gengur Reunion út frá því að barnið hafi
þegar verið skráð og opnar lista yfir karla eða konur
sem maður velur tengingu við.
Geri maður mistök og þarf að eyða eða endurtölusetja
barnahnapp skal velja Börn undir Sýsl. Til þess að fá
frekari hjálp vísast til greinarinnar Börn í 10. kafla
leiðbeiningabókarinnar.
Upplýsingar um barnið þitt
Hafi verið smellt á Bæta við í glugganum, sem áðan
birtist, til þess að bæta barni við fjölskylduskrána,
12