Unga Ísland - 01.01.1941, Side 26

Unga Ísland - 01.01.1941, Side 26
Felix hugsaði með skelfingu, hvort það gæti borið sig að Óli ætlaði að vinna það á þennan hátt? Hann dauðsá eftir að hafa gert þennan óheillasamning. En nú var Óli farinn að fara hægara. Hann var orðinn mjög móður og svit- inn rann í stríðium straumum af andliti hans. Hið dökka, hrokkna hár hans var gegnvott af svita. Síðustu fótmál Óla upp á brúnina voru kveljandi raun og það var engu líkara en að Felix yrði þyngri og þyngri með hverju spori. En Óli skeytti því engu, hann hugsaði að- eins um landið sitt og fólkið sitt, og upp komst hann. En hann gaf sér eng- an tíma til að kasta mæðinni. Áfram hélt hann. Innan skamms sá hann fram af brún- inni hinum megin, þar sem hið safa- ríka gras Grænu-Alpanna bylgjaðist rótt og höfugt. Gat hann komizt þangað? Móður og másandi tók hann að feta sig niður hlíðina. Honum skrikaði fót- ur hvað eftir annað og hin þunga byrði hans þyngdist enn við hvert fótmál. — Hann fór hægar og hægar------. Nú var hann næstum dottinn, en náði jafnvæg- inu á síðustu stundu. Hann gat engu orði upþ komið fyrir mæði; engu hljóði. -----Og Felix — — hann gat heldur ekkert sagt. Skref eftir skref af hinu græna engi hvarf nú á bak við þá og tilheyrði upp frá því Glarus. Það var þyngsta raun Felixar. Það var eina hugsun Óla — — og huggun. Hægt og hægt mjökuðust þeir áfram, ennúvargangur Óla líkt og hjá farlama gamalmenni. Hann var orðinn saman fallinn og beygður í keng undir byrði sinni og bráðum hlutu fætur hans að gefa eftir og komast ekki lengra, en áfram hélt hann enn góða stund. Nú skrikaði hann til. Hann riðaði á fótun- um. En samt — áfram. Allt í einu féll hann til jarðar. Hann féll með andlitið ofan á bláan maríuvönd og bylgjandi grængresið straukst um hár hans. Hjarta hans sló ekki framar. Þannig lét Óli ostagerðannaður líf sitt, en Grænu-Alpana hafði hann í stað þess endurheimt fyrir land sitt og þjóð. Og í dag stendur lítill trékross í hinu græna fjallaengi, sá kross sýnir stað- inn, þar sem Óli féll. Og hann sýnir einnig landamerkin milli hinna tveggja ríkja, Uri og Glarus. S. J. þýddi. Spurningar 1. — I fornritum hvaða þjóðar er ís- land nefnt Thule? 2. — Hvað hét maður sá, er varð eft- ir, þegar Garðar Svavarsson sigldi burtu, eftir að hafa dvalið hér einn vet- ur? 8. — Af hverju dregur Faxaflói nafn ? 4. — Af hverju hlaut Þórólfur smjör viðurnefni sitt? 5. — Við hvaða atburð er miðið, þeg- ar talið er að landnámsöld hafi byrjað 874? 6. — Hvað hét fyrsti biskup á Hól- um? 7. — Hvar var fyrsta klaustur á ís- landi? 8. — Hversu mörg þing voru á ís- landi til forna, og hvað hétu þau? 9. — Til hvers var fimmtardómur stofnaður? 10. — Hvar er Bláskógaheiði ? S. H. 20 UNGA ÍSLAND

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.