Unga Ísland - 01.01.1941, Blaðsíða 32

Unga Ísland - 01.01.1941, Blaðsíða 32
Dag nokkurn hitti Lister kunningja sinn, sem líka var læknir, sagði sá hon- um frá frönskum efnafræðingi, sem Pasteur hét. — Pasteur þessi, sagði kunninginn, héldi þeirri fásinnu fram, að matvæli, svo sem mjólk, skemmdust fyrir tilverknað örsmárra gerla, sem fyrirfyndust í andrúmsloftinu. Þetta hafði Lister ekki heyrt áður, en fór nú að fylgjast vel með tilraunum Pasteurs. Og þegar Pasteur skömmu seinna sýndi fram á, að hægt væri að eyða þessum gerlum í loftinu, gera það gerilsneytt eins og kallað er, þá greip Lister hug- myndina á lofti. Þarna var loksins fund- in orsök allra óhreinu graftrarsáranna hjá uppskurðarsjúklingunum. — Gerl- ar hlutu að vera í sárafletinum. Núna vitum við öll fjarska vel, að hann hafði á réttu að standa. En í Glasgow héldu samtíðarmenn hans, að hann væri orðinn ruglaður, er hann tók upp á því, að dæla karbólsvatnsúða yfir verkfærin og þann stað líkamans, sem aðgerðin átti að gerast á. En karból- sýra er sterkt sótthreinsunarlyf. Með- an hann framkvæmdi skurðaðgerðir, lét hann stöðugt dæla karbólsvatnsúða um skurðstofuna. Var hann fyrir bragðið dreginn sundur og saman í háði af öðr- um læknum. — En áður en langt um leið urðu þeir að viðurkenna, að alltaf fækkaði þeim sjúklingum, er dóu úr blóðeitrun hjá Lister. Innan skamms komst Lister að raun um, að sýklar í andrúmsloftinu gætu tæplega verið eins viðsjárverðir og sýklar á höndum, fötum, verkfærum og sáraumbúðum eða jafnvel á húð sjúkl- ingsins sjálfs. Smátt og smátt án þess, að hirða um gabb það, sem að honum var gert, lagði hann grundvöllinn að því mikla hreinlæti, sem nú á dögum ríkir á sjúkrahúsum og sérstaklega í skurð- UNGA ÍSLAND Eigri Rauöa Kross íslands. Kemur út 10 sinnum á ári í 16 síðu heftum. Gjalddagi 1. apríl. Verð blaðsins er kr. 3,00 árg. Ritstjórar: Stefán .lónssoii, SigrurtSur Ifelgnson. . Framkvæmdastjórn blaðsins annast: Arngrímur Kristjánsson. Afgreiðsla er í skrifstofu Rauða Krossins, Hafnarstræti 5 (Mjólkurfólagshúsinu). Pósthólf 927. Prentað í ísafoldarprentsmiÖju li.f. stofum þeirra og öllu því, er viðkemur sáralækningum. Fyrir þúsundum ára hafði Móses gamli, sem þið kannist við úr Biblíu- sögunum, sýnt fram á, að hreinlæti væri öruggasta leiðin-til heilbrigðis. Hann skipaði svo fyrir, að allar kyrnur, sem notaðar voru til matargeymslu, skyldu vera þvegnar vandlega og hann gaf Gyðingum það boðorð, að þvo alltaf hendur sínar fyrir máltíðir. Á nítjándu öld gaf Joseph Lister læknum og hjúkrunarkonum það boð- orð, að þvo vel hendur sínar og vera í hreinum klæðum við störf sín. Boðorð Listers hefir verið vel haldið, betur en mörg af boðorðum Mósesar gamla. Og þann dag í dag getum við þakkað Joseph Lister fyrir hreinlæti það, sem ræður ríkjum í góðum sjúkrahúsum. (Þýtt úr ensku). Kennarinn: Hvaða gagn höfum við af vatninu, Kalli minn? Kalli: Ef ekkert vatn væri, þá gæt- um við ekki lært að synda, og ef við gætum ekki lært að synda, þá gætum við drukknað í ánni. 26 UNGA ÍSLAND

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.