Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 205
Hvað þýðir þetta í raun?
Þetta þýðir að á einum stað getur þú séð allar samskiptaleiðir sem völ er á til að ná sam-
bandi við t.d. vinnufélagann og valið þá sem hentar best hverju sinni. Þetta þýðir að þú
getur boðið viðskiptavinum þínum upp á að fá þjónustu eftir mörgum leiðum, að þjón-
ustan geti farið eftir mörgum leiðum, allt eftir hvað hentar hverju sinni. Þetta þýðir að þú
getur tryggt að viðskiptavinir þínir fái alltaf samband við þann innan fyrirtækisins sem
best getur þjónað þörfum hans hverju sinni. Þetta þýðir að þú getur boðið starfsmönnum
þínum upp á meiri sveigjanleika í starli, allt eftir aðstæðum. Þetta þýðir að öll þau tól og
tæki sem þú nýtir í samskipti verða eitt.
Velur þú sigurvegara?
Cisco hefur um árabil verið viðurkenndur leiðtogi í IP-samskiptalausnum.
Lausnamengi sitt kallar Cisco „Unified Communications System". Með „Unified
Communications System" eru fyrirtæki komin með þann grunn sem þarf til að samþætta
samskiptakerfið nánar við viðskiptaferla og stuðlar þannig að því að upplýsingar berist
hraðar og eftir réttum leiðum og auki arðsemi.
Ein þekktasta einingin í „Unified Communications System" er símkerfahlutinn sem er
nefndur CallManager, og hann er það IP-símkerfi sem er útbreiddast í dag, með mestan
fjölda IP-síma í notkun í heiminum. Fjöldi meðvirkandi eininga skapar heildarlausnina,
má þar nefna IPCC-þjónustuver, Unity talvél, Personal Communicator, IP phone on the
Web, svo eitthvað sé talið.
Sensa - þekkingarhús í IP-samskiptalausnum
Sensa hefur frá upphafi lagt áherslu á IP-samskiptalausnir og er í dag viðurkennt sem
helsta þekkingarhús á íslandi hvað slíkar lausnir varðar. í samstarfi við Cisco Systems og
Tandberg hefur Sensa innleitt arðsamar samskiptalausnir hjá fjölda íslenskra fyrirtækja
þar sem samþætting hljóðs, myndar og gagna yfir IP skilar sér í arðsamari rekstri.
Meðal viðskiptavina Sensa eru fjölmörg fyrirtæki úr fjármálageiranum og má þar m.a.
nefna Landsbankann og Kaupþing Banka, einnig eru þar stórfyrirtæki eins og Orkuveita
Reykjavíkur, Landsvirkjun og stofnanir eins og Landspítali-háskólasjúkrahús og utan-
ríkisráðuney tið.
Sensa er eini aðilinn á íslandi sem er Cisco Silver Partner og gefur það til kynna sérstöðu
fyrirtækisins í þekkingu og þjónustu á Cisco-lausnum. Sensa hafa verið veittar viður-
kenningar af Cisco Systems fyrir framúrskarandi þjónustu og lausnir. Tvö ár í röð hafa
það verið Cisco Customer Satisfaction Award fyrir Noreg og ísland og árið 2005 hlaut
Sensa Cisco Commercial Partner of the Year for Northern Europe.
Þennan árangur má þakka reynslumiklum og metnaðarfullum hópi starfsmanna sem á
engan sinn líka í þjónustu við IP-samskiptalausnir á Islandi. Lögð er gífurleg áhersla á
stöðuga þjálfun og menntun starfsmanna, sem hefur skilað sér í því að fjórir starfsmenn
hafa lokið hinni virtu CCIE (Cisco Certified Internetworking Engineer) gráðu. Þetta
tryggir viðskiptavinum Sensa gæðaráðgjöf og þjónustu þar sem lögð er áhersla á að bjóða
alltaf góðar lausnir með arðsemi fyrir viðskiptavininn.