Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 21
Kjarasamningur KTFÍ og Orkuveitu Reykjavíkur: Gildistími er frá 1. apríl 2008 til 31.
desember 2010.
Kjarasamningur KTFÍ og RARIK ohf.: Gildistími er frá 1. maí 2008 til 31. desember 2010.
Auk gerðar kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna þá heldur stjórn KTFI ásamt skrif-
stofu félagsins utan um kjaratengda sjóði félagsmanna.
Skýrsla Sjúkrasjóðs KTFÍ 2008:
Stjórn Sjúkrasjóðs KTFÍ fyrir starfsárið 2008 til 2009 skipuðu Jóhannes Benediktsson for-
maður, Árni Þór Árnason og Helgi Baldvinsson. Stjómin hélt 6 fundi á árinu 2008 og tók
fyrir 41 mál, þar af erindi frá 35 félagsmönnum. Veittir voru 35 styrkir sem eru um það
bil tvöfalt fleiri styrkir en undanfarin ár. Sjóðfélagar voru 340 í árslok 2008, þ.e.a.s. þeir
sem greidd voru iðgjöld fyrir á árinu.
Rekstrarreikningur: Iðgjöld ársins námu rúmum 20 m.kr. og jukust um 33%. Styrkir
námu tæplega 6,7 m.kr. og höfðu rúmlega þrefaldast frá árinu á undan. Rekstrargjöld
voru 8,6 m.kr. Fjármagnstekjur tvöfölduðust, voru 7,2 m.kr. Tekjur umfram gjöld námu
18,7 m.kr. og var óráðstafað eigið fé í árslok 2008 60,5 m.kr. og hafði vaxið um tæp 50%
milli ára. Endurskoðandi KTFÍ og sjóða KTFÍ er Kristinn Gestsson, löggiltur
endurskoðandi.
Skýrsla Fjölskyldustyrktarsjóðs KTFÍ 2008
Stjórn sjóðsins er skipuð þeim Samúel Smára Hreggviðssyni formanni, Óla Jóni
Hertervig og Bjarna Bentssyni. Stjórn fjölskyldu- og styrktarsjóðs hélt sjö fundi á sl. ári
og úthlutaði 55 styrkjum til félagsmanna að upphæð um 2,7 milljónir kr. Um er að ræða
verulega aukningu frá fyrra ári þegar úthlutað var 18 styrkjum að upphæð kr. 684 þús.
Styrkveitingar skiptust þannig: Líkami og sál: 17 styrkir að upphæð kr. 346.607.
Laseraðgerðir og gleraugu: 19 styrkir að upphæð kr. 1.105.370. Tannviðgerðir: 16 styrkir
að upphæð kr. 1.074.322. Heyrnartæki: Tveir styrkir, samtals kr. 100.000. Tæknifrjóvgun:
Einn styrkur að upphæð kr. 50.000.
Rekstrarhagnaður sjóðsins nam tæpum 10,2 miljónum króna en innborguð árgjöld voru
tæplega 7,7 miljónir króna. Heildareignir í árslok námu tæpum 47 miljónum króna og
heildarskuldir voru í árslok 515 þúsund krónur. Eigið fé var í árslok tæplega 46,5 miljónir
króna.
Sjóðfélagar voru 244 í árslok 2008, þ.e.a.s. þeir sem greidd voru iðgjöld fyrir á árinu, sem
er svipaður fjöldi og árið áður.
Skýrsla Vísinda- og starfsmenntunarsjóðs KTFÍ2008
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður KTFÍ byggist á samkomulagi Kjarafélagsins við fjár-
málaráðherra, f.h. ríkissjóðs, og Reykjavíkurborg frá 1989. Það eru starfsmenn ríkisins,
Reykjavíkurborgar og þeirra sveitarfélaga sem gert hafa samning við KTFI auk starfs-
manna annarra vinnuveitenda sem hafa gerst aðilar að sjóðnum sem rétt eiga á styrkjum
úr sjóðnum, samtals um 220 félagsmenn. Breytingar hafa orðið á greiðslum til sjóðsins á
síðasta samningstímabili og hafa þær kallað á breytingar á uppbyggingu og reglum
sjóðsins.
Skipting umsókna á milli efnisflokka árið 2008 var þannig að 20 umsóknir voru til náms,
námskeiða og ráðstefnuferða og 37 umsóknir til kaupa á tölvubúnaði, samtals 57
umsóknir. Þetta er töluverð fækkun frá fyrri árum og munar þar um að ekki var farið í
Rýnisferð á árinu.
1 9
Félagsmál Vfl/TFÍ