Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 260
var 3 því þar voru fjórir karlar og ein kona. Hópurinn hélt sameiginlega fundi og nota
þurfti Skype og fundasíma til fundahalda því einn hópmeðlima bjó utan höfuð-
borgarsvæðisins. Notkun þessara tækja gekk vel. Samvinna gekk vel, bakgrunnur
þátttakenda var nokkuð ólíkur og þetta gaf betri yfirsýn og fjölbreytni að mati hóp-
meðlima. Upplýsingastreymi var gott. Hópurinn notaði verkefniskerfi á vef fyrir sam-
skipti og gagnageymslu og einnig var notaður tölvupóstur.
• Hópur F notaði 117 tíma á þátttakanda. Meðalaldur voru 38 ár, einsleitni hvað Belbin
snertir var 1, hlutverk ME (greinandi) var ekki í hópnum en sterkasta hlutverkið var
CO (formaður). Einsleitni aldurs var 2. Einsleitni aldurs var 3 og kynjaskipting var
fjórar konur á móti tveimur körlum. Hlutverk verkefnisstjóra færðist milli hóp-
meðlima. Mikið var lagt upp úr skýru skipulagi og vel skilgreindum hlutverkum. Búin
var til ítarleg hlutverkaskipting og verkum deilt niður á þátttakendur og stóðst hún að
mestu. Vinnufundir voru vikulega og fjarfundabúnaður stundum notaður. Hópurinn
var samstilltur og markmiðin skýr. Settar voru siðareglur í upphafi og þær voru virt-
ar. Hópurinn lagði mikið upp úr gleði og ánægju og trausti gagnvart verkkaupanum
og innbyrðis í hópnum. Notað var verkefniskerfi á vef og þar voru öll skjöl og sam-
skipti vistuð. Kerfið virkaði vel og sparaði tíma.
• Hópur G var skipaður fimm konum og einum karli. Meðalaldur var 40.7 ár. Einsleitni
skv. Belbin var 3 og því vantaði þrjú hlutverk í hópinn. Einsleitni aldurs var 1-
Einsleitni bakgrunns var 2 og nemendurnir komu því úr sex af átta bakgrunns-
flokkum. Haldnir voru yfir 20 fundir í hópnum. Töluverðir erfiðleikar komu upp í
samvinnu og kom það skýrt fram að hópurinn hafi verið of einsleitur (Belbin) og að
kynjahlutfall hafi valdið erfiðleikum. Einnig kom fram að skortur hafi verið á trausti,
misskilningur hafi endurtekið sig í gegnum verkefnið og streita hafi gert vart við sig-
A hinn bóginn var mjög einbeittur vilji hópsins til að ná árangri og þroski innan hans
til að ræða vandamálin. Hópurinn fékk mjög góða útkomu, bæði fyrir skilamat sitt og
afurð. Notað var verkefniskerfi á vef til að halda utan um gögn og áætlanagerð og
fundargerðir. Tæknileg vandamál komu upp, til dæmis áttu sumir erfitt með að
komast inn í kerfið og erfitt var að finna sum skjöl. Á köflum virkaði kerfið samt
ágætlega.
• Hópur H sýndi áberandi mesta afturför hvað námsmat varðar milli áætlunar og
afurðar. Þar var meðalaldur 40 ár og einsleitni aldurs 2. Einsleitni bakgrunns var 3 og
þrír karlar og tvær konur mynduðu hópinn. Aðföng hópsins voru 150 tímar pr. þátt-
takanda skv. áætlun en hópurinn notaði 140 tíma þegar upp var staðið. Skilamatið var
rýrt en fram kom að unnið var á sameiginlegum fundum. Ekkert er fjallað um sam-
vinnu og lítið fjallað um verkefniskerfi á vef í skilamati hópsins.
• Hópur I hafði áberandi mesta einsleitni hvað Belbin-greiningu varðar, þar vantaði þrjú
Belbin-hlutverk, CF, SP og SH, en algengasta hlutverkið var CO. Þessi hópur skilaði
heldur slakri áætlun en bætti útkomu sína hvað afurð varðar. Meðalaldur var 38.5 ár
og einsleitni aldurs var 1. Nemendur komu úr fjórum af átta bakgrunnsflokkum-
Kynjahlutfallið var fjórar konur og tveir karlar. Einn verkefnisstjóri var yfir verkefninu
allt tímabilið. Verkaskipting var nokkuð sundurliðuð, haldnir voru hátt í 30 vinnu-
fundir. Fundir voru bæði símafundir og hefðbundnir vinnufundir. Hreinskilin
umræða einkenndi samvinnuna og mikið var lagt upp úr sameiginlegum skilningi-
Samvinna gekk vel og það er m.a. þakkað því að hafa skýrar vinnureglur frá upphafi,
um samvinnu, fundi, verkaskiptingu, tímaskráningu, skjalastýringu og fleira. Einnig
voru einfaldar siðareglur, sem kváðu meðal annars á um gagnkvæma virðingu. Notast
var við verkefniskerfi á vef fyrir geymslu gagna og virkaði það vel. Sérhæft fundakerfi
var notað til fundahalda yfir net og það virkaði vel og sparaði mikinn tíma
í töflu 3 eru þessar upplýsingar varðandi ofangreinda hópa teknar saman.
2 5 8 i Árbók VFl/TFl 2009