Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 4

Neytendablaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 4
logjöldin hækka - afkoma tryggingafálaganna batnar / skýrslunni er rakiÖ hvernig aÖ- stæður á vátryggingamarkaöinum hafa gjörbreyst á undanförnum áratug: Mikil samþjöppun hefur orðið á markaðnum og hann ber nú greinileg einkenni fákeppni. Fyrirtækjum hefur fækkað verulega og nú ráða þrjár sam- steypur, VÍS, Sjóvá-AlmennarogTrygg- ingamiðstöðin og dótturfélög þeirra yfir 95 prósentum markaðarins. Miklar sveiflur hafa orðið á iðgjöldum vegna trygginga heimilanna, einkum til hækkunar. í heild hafa iðgjöld- in hækkað að meðaltali um 70 af hundraði á undanförnum sex árum. Iðgjöld vegna lögbundinna bifreiða- trygginga hafa tvöfaldast í verði á sama tíma. AfleiÖingar þessarar þróunar birtast skýrt í afkomu félaganna þriggja: Hagnaður félaganna sem hlutfall af eigin iðgjöldum hefur verið um tíu prósent að meðaltali á undanförnum árum. Arðsemi eigin fjár hefur oftast verið á bil- inu 10-20 prósent. Eigið fé hefur þrefaldast á fimm árum. Eiginfjárhlutfallið hefur hækkað um átta prósentustig á sama tíma. Tjónasjóðir félaganna hafa vaxið um 13 milljarða króna eða 54 prósent á síðustu fimm árum og er í skýrslunni kallað eftir mun ítarlegri úttektum. Fjármálaeftirlits- ins á því hvort sjóðasöfnunin byggir á raunhæfum áætlunum um kostnað við uppgjör tjóna. Alls liggja nú 38,3 millj- arðar króna í tjónasjóðum félaganna. Þróun á vátryggingamarkaði undanfarin ár gefur opinberum aðilum tilefni til þess að grípa til ýmissa ráðstafana í því skyni að verja hagsmuni neytenda. Efla þarf opinbert eftirlit með starfsemi trygginga- félaga og grípa inn í þegar hagsmunum almennings er ógnað. Leita þarf leiða til þess að draga úr óþarfri sjóðasöfnun tryggingafélaganna en hún gerir þeim meðal annars kleift að fresta skattgreiðsl- um af tekjum sínum. Jafnframt er ástæða til að endurskoða skipulag trygginga- markaðarins og tryggja að ekkert sam- starf um viðskipti verði milli félaganna. Loks er nauðsynlegt að tryggja að nýir samkeppnisaðilar eigi greiðan aðgang að vátryggingamarkaðnum. Þetta byggja Neytendasamtökin á nið- urstöðum úttektar sem þau létu gera á íslenskum tryggingamarkaði með tilliti til trygginga heimilanna. Aðstæður á vátryggingamarkaði geta snert hagsmuni neytenda verulega enda er algengt að heimili greiði 10-15 þúsund krónur á mánuði í iðgjöld. Þeim sem vilja kynna sér efni skýrslunnar í heild er bent á að hana er að finna á vef Neytendasamtak- anna, www.ns.is. Mikil hækkun iÖgjalda I skýrslunni er ítarlega fjallað um þró- un vátryggingamarkaðarins, meðal ánnars með hliðsjón af breytingum á lagaumhverfi í kjölfar samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Aðild íslands að samningnum þýddi að tryggingafélög hvarvetna á svæðinu gátu hafið starf- semi hérlendis. íslensku tryggingafélögin brugðust við þessu með því að sameina fyrirtæki og mynda samsteypur úr smærri félögum. Samsteypurnar þrjár ráða sem fyrr segir um 95 prósentum markaðarins. Tryggingamiðstöðin er með innan við 30 prósent hlutdeild í markaðnum, VÍS rff- lega 30 prósent en Sjóvá-Almennar eru stærsta samsteypan með um 40 prósent markaðshlutdeild. íslensku félögunum hefur hingað til tekist að hrinda tilraun- um erlendra aðila til að hasla sér völl á markaði hérlendis. Mikil lækkun á iðgjöldum lögbundinna bílatrygginga átti greinilega rætur að rekja til tímabundinnar samkeppni er- lendra aðila í gegnum FÍB-tryggingu. Eftir að þeirri samkeppni var hrundið hefur þróunin öll verið á einn veg, ið- gjöld trygginga heimilanna hafa hækkað hröðum skrefum: • 25-39 prósent hækkun lögbundinna bifreiðatrygginga árið 1999. • 25-30 prósent hækkun lögbundinna bifreiðatrygginga árið 2000. • 20 prósent hækkun kaskótrygginga bif reiða árið 2000. • 30-50 prósent hækkun brunatrygging ar húsa árið 2003. Allar áðurnefndar tryggingar hafa hækkað meira en almennt verðlag í land- inu. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 26 prósent á undanförnum sex árum. Vátryggingafélögin hafa meðal annars borið við breytingum á lögum um skaða- bótarétt þegar þau hafa verið krafin um 4 NEYTENDABLAÐIÐ3. TBL, 2003

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.