Neytendablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 14
Óþarft eða ómissandi?
íslenskir neytendur hafa aðgang að
markaði sem virðist yfirfullur af öllu. Því
reynir núorðið mjög á hugkvæmni fram-
leiðenda og seljenda þegar framboðið
er aukið. Hugkvæmnin birtist m. a. í því
að algengar, hversdagslegar vörur fá ný
heiti. Langt er síðan venjulegt kjöt varð
að grillkjöti að sumarlagi og venjuleg
kerti að jólakertum á aðventunni. Slík
umbreyting er nú mjög almenn og helst
í hendur við nýjar freistingar á vörumark-
aðnum. Þar eru okkur sífellt boðnar nýjar
vörur sem auka ánægju og þægindi, og
bæta útlit og líðan. Sem dæmi er nú
orðið hægt að kaupa klúta með efni sem
gerir okkur sólbrún sé þeim strokið yfir
andlitið, nú eða allan líkamann. Heiti
eins og brúnkuklútur og brúnkuklefi
geisla ekki af glæsileika en segja sitt um
þægindin sem þarna eru boðin til kaups.
Sömuleiðis er miðað að auknum þægind-
um þegar okkur eru boðnar morgunverð-
arvélar, og jafnt og þétt fjölgar einföldum
leiðum til að grennast og geisla af orku.
Það er að mörgu leyti fróðlegt að fylgjast
með því hvernig nýjungar á markaðnum
eru kynntar í auglýsingum og fréttapistl-
um. Ensk heiti undirstrika að eitthvað
nýtt er á ferðinni og íslensk orð öðlast
nýja merkingu. Oft er verið að bjóða nýj-
ar leiðir til að láta gamla drauma rætast.
í fyrri rammanum er yfirlit með dæmum
um þetta en í þeim seinni um nýstárlega
þjónustustarfsemi. Upptalningin byggir
á ýmsu af því sem hefur verið auglýst
undanfarna mánuði til þæginda og ynd-
isauka. Lesandinn getur velt því fyrir sér
hvað muni talið til nauðsynja þegar tímar
líða - og hvað gleymist.
Ef litið er lengra segir yfirlitið líka sitt um
það hvílfkur auglýsingakostnaður er far-
inn að hvíla á neytendum. Eigi fyrirtækin
að lifa af harðsóttar markaðssóknir sínar
og vöruþróun verður að greiða auglýs-
ingakostnaðinn við einhvern kassa. Upp-
átæki þeirra reynast því oft lítil blessun
fyrir neytendur. Það sem sett er innan
gæsalappa er tekið beint upp úr nýlegum
auglýsingum eða kynningarpistlum.
14 NEYTENDABLAÐI0 3. TBL. 2003
Mýjabrum á markaðnum
Nýjar vörur
Brúnkuklútar: Gera notandann „sólbrúnan".
Body Art: Air Brush Tattoo: „Skreyttu
sólbrúnan kroppinn".
Feelfine: „Drykkur morgundagsins, -eng-
in þynnka, - aukin orka, - betri líðan".
Krakkaplástur: „Róar æst og pirruð
börn".
Kjúklingastandur: Teflonhúðaður bakki
fyrir grilleldamennsku. „Hólf fyllt með
bjór, víni eða ávaxtasafa. Gerir kjúkling-
inn safaríkan og góðan".
Micro Peeling húðhreinsiklúturinn: Aug-
lýstursem lausninfyrirkonursem hafavið-
kvæma húð og „gefur húðinni ferskt útlit
og örvar blóðstreymi til húðarinnar".
Megrunarmintur: „Megrun hefur aldrei
verið svalari. Prófaðu megrunarmintur
sem minnka matarlist og auka brennslu".
Morgunverðarvél: Tímastillir, kaffivél,
sýður egg og ristar brauð.
Morning Fit: „Ekki þjást af timburmönn-
um í sumar. Fæst í apótekum og stór-
mörkuðum".
Vigel: Kynörvunarlyf. „Aukin dýpt og
tíðni fullnæginga".
Ómissandi þjónusta?
Léttgreiðslur/léttkaupsútborgun: Vara
eða þjónusta keypt með mörgum og þar
af leiðandi háum vaxtagreiðslum.
Fasteignalífeyrir Búnaðarbankans: Gef-
ur 65 ára og eldri kost á að éta upp húsið
sitt. Háir vextir flýta fyrir.
Hraðstefnumót: Skipulögð samkoma
sem gefur þátttakendum von um að
finna maka án meiriháttar fyrirhafnar.
Kínversk hugræn teygjuleikfimi.
Magic Tan hrúnkuklefinn: Fínum úða
sprautað yfir allan líkamann sem verður
fallega brúnn eftir einnar mínútu með-
ferð.
Frelsi/málfrelsi: Bindur þann sem kaupir
við farsíma.
Umboðsmaður íslenska hestsins: Þjón-
ustan snýst um kynningu og markaðs-
setningu á íslenska hestinum og byggir
á samkomulagi landbúnaðarráðherra,
samgönguráðherra og utanríkisráðherra
frá 8. apríl sl. Auk ráðuneytanna, sem
reiða fram almannafé til starfseminnar,
styðja Flugleiðir og Kaupþing Búnaðar-
banki við þjónustuna.
Ný vöruheiti
Ferðahandklæði: Stór handklæði.
Grillsvuntur: Stórar svuntur.
Harry Potter tannburstar: Venjulegir
tannburstar með mynd af söguhetjunni
eða því sem henni tilheyrir.
Líkamsræktarföt: Áður nefnt bolir og
leikfimibuxur.
Strandpoki: Poki með axlarbandi.
Eftir Hörð Bergmann