Neytendablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 15
Tölvuprentarar
Blekið er blóraböggullinn
Gæða- og markaðskönnun
I gæðakönnun ICRT voru 25 blekprentar-
arogfengust 18 þeirra hérlendis íseptem-
ber. I henni voru líka fjórir geislaprentar-
ar en enginn þeirra fékkst hér.
I markaðskönnuninni á www.ns.is eru
50 blekprentarar. 14 þeirra kostuðu inn-
an við 10.000 kr., sá ódýrasti um 3.000
kr. Ellefu gerðir kostuðu yfir 40.000 kr.
en sú dýrasta 99.900 kr.
I markaðskönnunninni eru líka 15
geislaprentarar á verðbilinu um 24.000
-78.000 kr.
Þótt sífellt komi fram nýjar gerðir af blek-
prenturum hafa hvorki orðið miklar né
mikilvægar breytingar á búnaði þeirra
og vinnslu síðustu misseri. Hágæðaprent
með þeim tekur enn langan tíma. Blek
virðist hafa hækkað í verði og ásamt
pappír vera aðaltekjulind framleiðenda.
Priggja ára reglan
Endingartími blekprentara í mikilli ogfjöl-
breyttri daglegri notkun getur verið um
þrjú ár og því eðlilegt að miða heildarút-
gjöld við slíkt tímabil. Heimilisprentari í
takmarkaðri notkun endist að sjálfsögðu
miklu lengur. Ódýr prentari getur reynst
dýr í rekstri og oft sparast háar fjárhæðir
á því að kaupa dýrara tæki.
Dæmi: í fljótu bragði geta virst góð
kaup í prentara eins og HP Deskjet 3420
á rúmar 6.000 kr., í samanburði við
Canon Í850 sem kostar um 27.000 kr.
En sérfræðingar ICRT hafa reiknað út að
á þriggja ára tímbili með mikilli notkun
kann HP-prentarinn að nota pappír og
blek fyrir um 250.000 kr. (miðað við
núverandi verðlag) en Canon-prentarinn
ekki nema fyrir um 90.000 kr. Niðurstað-
an er því sú að þótt Canon-prentarinn sé
21 þúsundi króna dýrari sparar eigand-
inn sér alls rúmlega 150.000 kr. á þessu
tímabili með því að kaupa hann heldur
en HP-prentarann, fyrir nú utan það að
eiga betra og fullkomnara tæki.
Kaup á prentara
Ef þú gerir ráð fyrir lítilli notkun er óhætt
að kaupa ódýran blekprentara. En ef þú
býst við talsverðri eða mikilli notkun
spararðu verulega á því að kaupa dýrari
blekprentara eða lítinn geislaprentara. I
Canon-blekprenturum eru góð kaup fyr-
ir flesta stórnotendur.
í stórurn dráttum má segja að dýrustu
prentararnir séu bestir og þeir ódýrustu
lakastir en tæki á milliverði séu öll
svipuð að gæðum. Þetta fer þó talsvert
eftir verkefnum og notkunarsviði.
Canon-prentarar komu sérstaklega vel úr
og fjórar gerðir þeirra voru meðal fimm
efstu í gæðakönnun ICRT. Það kom á
óvart að þegar tekinn er saman áætlaður
heildarkostnaður við innkaup og notkun
tölvuprentara í þrjú ár lenda allir Canon-
prentarar í ódýrari helmingnum af prent-
urunum í könnuninni.
Pappír og blek
Blek til að prenta út litljósmynd í A4-
stærð getur kostað um 100 kr. og Ijós-
myndaörk í þeirri stærð um 30-200 kr.
eftirgæðum. Þanniggeturbeinn kostnað-
ur við slíka hágæðamynd kannski orðið
um 300 kr.
Mikill munur er á verði pappírs enda fæst
hann í misjöfnum notkunar- og gæða-
flokkum. Dýrast er oft að nota pappírinn
sem framleiðandi prentarans markaðsset-
ur eða mælir með. Um 100% munur get-
ur verið á verði pappírs til litljósmynda-
prentunar eftir áferð og þykkt (þyngd) en
líka eftir endingu litanna. í könnun ICRT
reyndist Ijósmyndapappír frá HP stund-
um 100% dýrari en frá Canon.
Það getur verið heilmikill munur á því hve
mikið blek prentarar nota til sams konar
verkefna. í textaprentun með svörtum lit
notaði IIP Deskjet 3420 t.d. þrisvar sinn-
um meira blek en Canon i850. Munurinn
er enn meiri þegar prentaðar eru litmynd-
ir og allra mestur í Ijósmyndaprentun. í
henni notaði HP-prentarinn 100% meira
blek en Canon-prentarinn.
Aðvörunargildran
Margir notendur blekprentara kannast
við að skyndilega klárast blekið á versta
tíma. Oft sendir hugbúnaður prentarans
alltof snemma á skjáinn aðvörun um að
lítið blek sé eftir (low ink). Því miður
getur grandalaus notandi álpast til að
treysta á þessi skilaboð, skipta strax um
blekhylki og henda drjúgum hluta af rán-
dýru bleki því oft er nefnilega mikið eftir
af því. HP Deskjet 5550 og HP Deskjet
3420 gáfu aðvörun við prentun einlita-
mynda og litljósmynda þegar þeir höfðu
aðeins notað 50% af bleki hylkisins. Flest-
ir prentarar gátu prentað yfir 50 textasíð-
ur í viðbót eftir að fyrsta aðvörun barst
og sumir allt að 150 blaðsíðum
Ýmsir geislaprentarar (laser-prentarar)
reyndust líka gefa aðvaranir löngu áður
en lithylki tæmdist. Þessi gildra er í mörg-
urn prenturum frá öllum helstu framleið-
endunum, Canon, Epson, HP, Minolta-
QMS og OKI. Epson-fyrirtækið segir sér
til varnar að prentarinn geti skemmst ef
prenthylkið er tæmt.
Sparnaðarleiöir
- Blekið er einn helsti kostnaðarliðurinn
og sjálfsagt að kanna verð á hylkjum hjá
mörgum seljendum og möguleika á end-
urfyllingum. Sérstaklega skal bent á net-
verslunina www.blek.is sem líka er með
lausasölu í Ármúla 32 í Reykjavík. Sum-
urn hefur það þó reynst full subbulegt og
tímafrekt stúss að endurfylla blekhylkin.
Erfitt að er þó að gera fullkominn saman-
burð á blekverði því sumir framleiðendur
komast upp með að gefa ekki upp magn
bleks í hylkjunum.
- Á markaðnum er til búnaður til að
gabba aðvörunarkerfi sumra prentara,
NEYTENDABLAÐI0 3. IBl. 2003 15