Neytendablaðið - 01.10.2003, Page 19
Nikkel í vörum
Nikkelofnæmi er alvarlegt vandamál á
Vesturlöndum og fer stöðugt vaxandi.
Taliðeraðá milli 10-15% kvennaá Norð-
urlöndum hafi ofnæmi fyrir nikkel og um
2% karla. Notkun á vörum sem innihalda
nikkel orsakar ofnæmið og það varir ævi-
langt. Eina leiðin til að halda ofnæminu
niðri er að forðast vörur sem innihalda
nikkel. Skartgripir eru helstu ofnæmisvald-
arnir og skýrir það hærra hlutfall kvenna
en karla með nikkelofnæmi. Börn fara
ekki varhluta af þessu ofnæmi enda hefur
fundist nikkel í leikföngum. Það er líka al-
gengt að börn og unglingar noti skartgripi
og láti gera göt í eyru, nef og nafla. Þá
hefur einnig fundist nikkel í snyrtivörum,
m.a. augnháraburstum og augnskuggum.
í júní 2001 tók gildi reglugerð sem tak-
markar notkun nikkels í vörum sem
komast í beina snertingu við húð manna.
Reglugerðin gildir á öllu Evrópska efna-
hagssvæðinu. Það er samt ekki tryggt
að vörur á markaði séu nikkelfríar þótt
reglugerðin sé til staðar. Nikkelofnæm-
issjúklingur verður þó fljótlega var við
það ef ekki er farið eftir reglugerðinni,
en vissulega getur verið ergilegt að sitja
uppi með vöru sem keypt hefur verið í
þeirri góðu trú að varan sé nikkelfrí sem
stenst síðan ekki þegar á reynir. Kaupand-
inn hefur nokkrar leiðir til að lenda ekki
í þeirri stöðu:
• Forðast að kaupa ódýrt glingur af
götusölum.
• Kvarta til seljanda og krefjast endur
greiðslu.
• Kvarta til Umhverfisstofu þar sem
varan uppfyllir ekki skilyrði reglu
gerðarinnar.
• Kaupa nikkelpróf, það hefur þó
ekki fengist hér á landi en
Neytendasamtökin auglýsa hér
með eftir því. Það er selt í apótek
um á Norðurlöndunum og með því
að setja tvo dropa á eyrnapinna og
nudda við vöruna kemur í Ijós
hvort varan inniheldur nikkel því
þá verður vökvinn rauður. Prófið
kostar um 80 Dkr. í Danmörku og
dugir í mörg próf. Ávallt skal þó
biðja seljandann um leyfi til að taka
prófið. Ef hann neitar hefur
kaupandinn vísbendingu um að
ekki sé allt með felldu.
Nikkel er hvítur málmur sem er meðal
annars notaður við yfirborðsmeðhöndl-
un og má finna í flestum málmkenndum
hlutum, til dæmis mynt, lyklum og belt-
issylgjum.
Neytendasamtökin hafa fengið ábend-
ingar um að ýmsir algengir hlutir kunni
að innihalda nikkel eins og höfuðtól fyr-
ir síma og vasaútvörp en oftast eru þó
hlífar eða þá að ysta lag þessara hluta
úr plastefni. Það er Umhverfisstofa sem
hefur eftirlit með að reglugerðinni sé
framfylgt og sjálfsagt að tilkynna til Um-
hverfisstofu ef neytendur telja að verið
sé að selja vörur sem innihalda of mikið
nikkel sem getur komist í beina snertingu
við hörund.
KiPPUM PESSU í
www.vinbud.is