Neytendablaðið - 01.03.2004, Side 2
Ekki innheimtu án laga
Bréf kemur inn um lúguna. Þar til-
kynnir innheimtuaðili um vanskil
á láni. I sundurliðun á skuldinni
koma fram fjölmargir liðir, umfram
höfuðstól skuldarinnar og um-
samda vexti, eins og dráttarvextir,
ítrekunargjald, vanskilagjald auk
innheimtukostnaðar viðkomandi
innheimtustofu. Loks leggst við
þessa upphæð virðisaukaskattur á
innheimtukostnaðinn. Skuldarinn,
sem einhverra hluta vegna getur
ekki staðið í skilum, hefur ekkert
um þennan kostnað að segja, hann
verður bara að borga. Hann hefur
enga samningsstöðu enda velur
hann ekki innheimtuaðilann. Sá
sem innheimtir ákveður reglurnar
og hvað skuldari þarf að borga í
innheimtukostnað.
Hér á landi eru ekki til innheimtu-
lög, öfugt við flestar nágrannaþjóð-
ir okkar, þar á meðal hjá frændum
okkar á Norðurlöndum. Þar eru
almenn ákvæði um hvernig standa
skuli að innheimtu auk þess sem
sett er þak á hvað innheimtuaðilinn
geturkrafist hárrar innheimtuþókn-
unar. Þetta er talið nauðsynlegt,
bæði til að skapa almennar leikregl-
ur um innheimtustarfsemi auk þess
sem með slíku þaki er viðurkennd
léleg samningsstaða skuldarans.
Neytendasamtökin hafa lengi barist
fyrir því að settar yrðu reglur um
leyfilegt hámark þóknunar. Þóknun
fyrir innheimtu getur oft verið æði
há, auk þess sem sumir innheimtu-
menn ganga mjög hart fram. Sína
sögu segir að mál hafa komið á
borð Neytendasamtakanna þar
sem með einu símtali hefur mátt fá
innheimtuþóknunina lækkaðaveru-
lega. Það segir talsvert um hvaða
upphæðir er um að ræða þegar
slíkt er mögulegt.
Frumvarp til innheimtulaga hef-
ur fimm sinnum verið lagt fram
á Alþingi. í upphafi var um að
ræða stjórnarfrumvarp sem Finnur
Ingólfsson, þáverandi viðskiptaráð-
herra, lagði fram í tvígang. Þrátt
fyrir að um stjórnarfrumvarp hafi
verið að ræða í upphafi var ekki
samstaða um þetta mál milli stjórn-
arflokkanna og því dagaði frum-
varpið uppi í nefnd. Síðan hefur
Jóhanna Sigurðardóttir ásamt fleiri
þingmönnum lagt þetta frumvarp
fram í þrígang, meðal annars á yfir-
standandi þingi. Framsóknarflokkur-
inn hefur ítrekað lýst yfir stuðningi
við þetta frumvarp. Neytendasam-
tökin hafa vissu fyrir því að allir
stjórnarandstöðuflokkarnir styðji
það einnig. Það er því út í hött að
þetta brýna mál nái aldrei að koma
til atkvæðagreiðslu þegar ljóst er að
meirihluti þingmanna styður það.
Það er Ijóst að andstaða innheimtu-
aðila við þetta frumvarp hefur ráðið
ferðinni á Alþingi sem sýnir stuðn-
ing þess við þrönga sérhagsmuni.
Neytendasamtökin minna hins
vegar á að alþingismönnum ber að
gæta almannahagsmuna en ekki
þröngra sérhagsmuna. Jafnframt
minna samtökin á að hér er um
mikilvæga neytendavernd að ræða.
Hér er verið að tryggja skuldurum
sjálfsagða lágmarksvernd gagnvart
innheimtuaðilum. Skilaboð okkar
til alþingismanna eru einföld. Víkið
sérhagsmunum til hliðar og látið al-
mannahagsmuni ráða og tryggið að
um innheimtu gildi sérstakar reglur
í lögum.
Jóhannes Gunnarsson
Efni
Frá kvörtunarþjónustunni 3
Megrun án árangurs 4
Erfðatæknin 5
Gæðakönnun 6
Lífræn framleiðsla á íslandi 8
Með kurtið á lofti 11
Gæðakönnun 12
Sjúkdómsvæðing 14
Sjúkdómatryggingar 16
Sparnaður og kostnaðarsjónarmið 18
Hvað þýða merkin? 28
Lækningamáttur í sokkabuxum 21
Siðræn neysla 22
Prentað efni
Blaðið er prentað á
umhverfisvænan hátt.
NEYTENDABLAÐIÐ
l.tbl., 50. árg. - mars 2004
Útgefandi: Neytendasamtökin,
Síðumúla 13, 108 Reykjavík
Sími 545 1200 Fax 545 1212
Veffang: www.ns.is
Netfang: ns@ns.is
Ábyrgðarmaður: Jóhannes Gunnarsson
Ritnefnd: Brynhildur Pétursdóttir,
Jóhannes Gunnarsson, Þórólfur
Daníelsson, Þuríður Hjartardóttir
Umsjón með gæðakönnunum: Ólafur
H. Torfason
Yfirlestur: Laufey Leifsdóttir
Umbrot og hönnun: Ásprent Stíll hf.
Prentun: HjáGuðjónÓ ehf. - vistvæn
prentsmiðja
Pökkun: Bjarkarás
Upplag: 13.000 eintök, blaðið er sent
öllum félagsmönnum í Neytendasam-
tökunum
Ársáskrift: 3.400 krónur og gerist
áskrifandi um leið félagsmaður í
Neytendasamlökunum.
Heimilt er að vitna í Neytendablaðið í
öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið.
Óheimilt er þó að birta heilar greinar
eða töflur án leyfis Neytendasam-
takanna. Upplýsingar úr Neytenda-
blaðinu er óheimilt að nota í auglýs-
ingum og við sölu nema skriflegt leyfi
Neytendasamtakanna liggi fyrir.
Lykilorð á heimasíðu: pera04
2 NEYTENDABLAÐIÐ1. TBL. 2004