Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 20

Neytendablaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 20
Hvað þýða merkin? Merki af ýmsu tagi mæta okkur hvar sem við komum. Öll könnumst við t.d. við umferðarmerkin og skjaldarmerki íslands. Merki standa fyrir mismunandi hluti en eiga það samciginlcgt að þeim er ætlað að flytja okkur ákveðinn boð- skap og að baki sumra þeirra eru jafnvel langar sögur ef grannt er skoðað. Hér að neðan rennum við yfir nokkur mikil- væg merki sem sjá má á ýmsum vörum og jafnvel tegundum þjónustu. Umhverfismerki Opinberlega viðurkennd umhverfismerki eins og hér eru kynnt til sögunnar segja og tryggja neytendum að varan sem skartar þeim veldur minna umhverfisál- agi en aðrar sambærilegar en ómerktar vörur á markaði. m W/ Norræna umhverfis- merkið Svanurinn er norrænt umhverfismerki og útbreiddasta merkið á Norðurlöndunum. Norræna ráðherranefndin kom því á fót árið 1989. Hægt er að fá ýmiskonar Svansmerktar vörur hér á landi, t.d. eld- hús- og klósettpappír, servíettur, þvotta- efni, rafhlöður, sláttuvélar, Ijósritunarvél- ar, prentara o.fl. Umhverfisstofnun sér um rekstur Svans- ins á Islandi. Nánari upplýsingar fást á heimasfðu Svansins: www.svanurinn.is Umhverfismerki Evr- ópusambandsins Umhverfismerki Evrópu- 'v ★ * ★ sambandsins, Blómið, er annað opinbert merki á EES-svæðinu » með svipað hlutverk og Svanurinn. Umhverfis- stofnun gefur upplýsingar um umhverfis- merkið Blómið. eningen). Hér Bra Miljöval Bra Miljöval er um- hverfismerki sænsku náttúruverndarsamtak- anna (Naturskyddsför- á landi má helst finna merkið á sápum og þvottaefnum. ý jrtk. v k'U Þýska umhverfismerk- ið Blái engillinn UmhverfismerkiÞýska- lands er elsta umhverf- ismerki í heimi. Hér á landi sést engill- inn helst á pappírsvörum og einhverjum rafeindatækjum (prenturum og tölvum). Orkumerki Önnur merki Græni punkturinn Græni punkturinn er J þýsktendurvinnslumerki á einnota umbúðum og er ekki umhverfismerki. Græni punkturinn þýð- ir, að umbúðir viðkomandi vöru eru end- urvinnanlegar og að búið sé að reikna endurvinnslugjald umbúða inn í verð vörunnar. Þýskir framleiðendur þurfa sem sagt að gera ráð fyrir endurvinnslu- kostnaði á umbúðum í verði vörunnar, og þetta gjald dekkar síðan þann kostnað sem hlýst af endurvinnslu umbúðanna. Þetta endurvinnslukerfi er hinsvegar ekki til staðar hér og því er eini boðskapur merkisins til okkar að umbúðirnar séu endurvinnalegar. TCO 99 TCO 99 (95 eða 92) er sænskur umhverfis- og orkustaðall fyrir tölvur. Seljendur talvna sem bera þetta merki eru skuldbundnir til að taka tölvurnar í endurvinnslu eftir að þær hafa þjónað hlutverki sínu. Orkumerki Evrópusam- bandsins Orkumerkið segir til um orkunotkun heim- ilistækja í hlutfalli við afköst þeirra og er því í raun n.k. orkunýtingar- stuðull. Heimilistækjun- um er raðað í sjö flokka (A - G). A stendur fyrir sérlega litla orkuþörf og góða orkunýtingu, en orkufrekustu tækin eru merkt G. Þetta gerir neytend- um kleift að gera samanburð á orkuþörf ólíkra tækja og velja á grundvelli þeirra upplýsinga án þess að þurfa að setja sig inn í flókin tækniatriði. Pokasjóður verslunar- innar Margar íslenskar versl- anir bjóða poka merkta Pokasjóði verslunarinn- ar. Hagnaður af sölu þessara poka rennur í sjóð sem úthlutað er úr lil ýmissa verkefna í umhverfis- og líknarmálum. Merki Pokasjóðs segir ekk- ert til um efnainnihald eða umhverfisáhrif pokanna. Endurvinnslumerkið Endurvinnslumerkið (þrjár örvar sem elta hver aðra) þekkja margir vfða um lönd en færri vita að hver ör stendur fyrir lykilatriði skilvirkrar end- urvinnslu: Söfnun efnis til endurvinnslu, endurvinnsluna sjálfa og kaup neytenda á vörum sem eru að einhverju eða öllu leyti úr endurunnu efni. Ef einhver þess- ara þátta er vanræktur er endurvinnslu- hringrásin ófullkomin og endurvinnslan stendur ekki undir sér. 20 NEYTENDABLAÐIÐ1. TBL. 2004

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.