Neytendablaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 12
Gæðakönnun - Sparperur
Spara má bæði orku og peninga með sparperum
Markaðskönnun
Á vef Neytendasamtakanna, www.ns.is,
er markaðskönnun blaðsins með yfirliti
yfir 12 gerðir af algengum sparperum
sem fengust hér í janúar. Lykilorð fyrir
félagsmenn til að opna læstar síður er að
finna á bls. 2 í þessu blaði.
Gæðakönnun
Hér er í töflu gæðakönnun International
Consumer Research and Testing (ICRT)
með upplýsingum um þær átta gerðir
sem bæði voru í gæðakönnun ICRT og
fengust hérlendis.
ICRT prófaði alls 122 gerðir af sparper-
um.
Ef þú setur upp 100 vatta sparperu í stað
100 vatta „venjulegrar" glóperu sparar
þú með því á einu ári raforku sem myndi
duga til að sjóða um 210 lítra af vatni en
þeir nægja í um 1.200 kaffibolla. Að
meðaltali fara víða um 20% af rafmagns-
kaupum til lýsingar. Neytandinn getur
dregið úr lýsingarkostnaði um 80% með
því að skipta yfir í sparperur. Rafmagns-
reikningurinn lækkar verulega ef þú
skiptir út öllum glóperum í húsakynnum
þínum og notar eingöngu sparperur. Þó
er rétt að athuga sinn gang í þessu.
_
Tæknin
Flestir neytendur brúka enn perur með
glóðarþráðum. Ljósið myndast þegar
rafstraumi er hleypt á mjóan vír inni í per-
unni, hann hitnar og fer að glóa. Aðeins
5-10% af orkunni sem peran tekur til sín
myndar Ijós, 90-95 % orkunnar er sóað
í rafhitun lofts.
Sparperur komu fyrstá almennan markað
upp úr 1980. Þær eru stundum kallaðar
„litlar flúrperur" (compact fluorescent
lamps, CFL). Þær eru fylltar sérstöku gasi
og hagkvæmari en glóperur því mest af
orkunni fer í að mynda Ijós í stað hita.
Sparperur endast líka lengur. Á venju-
legum glóperum lifir í um 1.000 klst. en
sparperur geta enst í 6.000-15.000 klst.
Mikilvægur munur
Flestir trúa því að 60 vatta glópera gefi
meiri birtu en 25 vatta pera en í raun-
inni segja tölurnar ekki beint til um Ijós-
magnið heldur orkuna sem þær þurfa.
Sparperurnar þurfa minni orku því þær
gefa frá sér meiri birtu á hvert notað vatt.
Fimm vatta sparpera gefur frá sér um það
bil sömu birtu og 25 vatta glópera, og
15 vatta sparpera svipað Ijósmagn og 75
vatta glópera.
Misjöfn gæði
60 vatta sparpera getur kostað 10-15
sinnum meira en 60 vatta glópera, en
verð er þó breytingum háð. Hins vegar
eru glóperurnar dýrari þegar til lengdar
lætur því þær nota meiri orku og lifa
skemur.
Það kemur þó of oft fyrir að fólk kaupir
dýrar sparperur sem endast verr en fram-
leiðandi og söluaðili fullyrtu. Talsvert er
leitað til neytendasamtaka vegna þessa
erlendis.
Könnun: International Consumer Research and Testing (ICRT)
Cefnar eru gæðaeinkunnir á kvarðanum 0,5-5,5 þar sem 0,5 er lakast og 5,5, er best.
Vörumerki Gerð Lægsta verð Hæsta verð Qrka, vött Ljósmagn, lúmen Áætlaður líftími peru, klst.
DULUX EL Fjarðarkaup: Byko:
OSRAM ECONOMY 928 1490 8 400 8000
DULUX EL Elko: Byko:
0SRAM EC0N0MY 1195 1490 12 600 8000
Krónan: Nóatún:
PHILIPS ECONOMY-PL - 6 698 798 11 600 6000
Krónan: Krónan:
PHILIPS ECONOMY-PL - 6 698 698 18 1200 6000
Rafkaup Rvk., Rafkaup Rvk.,
MINI LYNX Raflampar, Ak.: Raflampar, Ak.:
SYLVANIA EC0N0MY 789 789 9 490 6000
MINI LYNX Rafkaup: Lúmex:
SYLVANIA ECONOMY 789 1150 18 1080 6000
Glóey: Glóey:
GE Lighting Electronic Biax Start 1312 1312 11 600 5000
Ikea: Ikea:
IKEA (ekki tilgreind) 690 690 20 1200 10000
12 NEYTENDABLAÐIÐ 1.TBL. 2004