Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 3

Neytendablaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 3
Frá kvörtunarþjónustunni Góð þjónusta hjá Zikzak tískuhúsi Kvörtunarþjónustan fékk mál inn á borð til sín þar sem mokkajakki hafði skemmst í hreinsun. Efnalaugin taldi jakkann ekki rétt merktan og þar með bæri hún ekki ábyrgð á skemmdinni. Jakkinn hafði verið keyptur í versluninni Zikzak tísku- húsi. Þegar kvörtunarþjónustan fór að spyrjast fyrir um málið hjá versluninni brugðust eigendur vel við og gáfu kon- unni gjafabréf upp á nýjan jakka. Svona þjónustu ber að hrósa. Var spólunni skilaó eða ekki skilað? Það er spurningin... A hverju ári berast Neytendasamtökun- um fjölmargar kvartanir frá neytendum vegna myndbandaleiga. Oftar en ekki snúast málin um það að myndbanda- leigan heldur því fram að spólu hafi ekki verið skilað eða verið skilað of seint en neytandinn kannast ekki við það. Hef- ur þetta vandamál verið viðvarandi um árabil en árið 2000 höfðu Neytenda- samtökin samband við Myndmark þar sem óskað var eftir samræmdum starfs- aðferðum vegna skila á spólum. Stjórn Myndmarks fjallaði um málið og mæltist til þess að starfsferlið yrði á eftirfarandi hátt: 1. Innheimta á skuldum: Fyrst skal hringt í leigutaka, því næst er leigutaka sent bréf þar sem minnt er á skuldina og honum jafnframt tilkynnt að hann verði settur á skuldalista. Sinni leigu- taki hvorki símtali né bréfi er mynd- bandaleigunni óhætt að fela þriðja aðila innheimtuna. 2. Spólum ekki skilað: Ekki skal líba meira en mánuður frá því að spóla er tekin þar til send er tilkynning um að viðkomandi spóla hafi ekki borist til leigunnar. 3. Skil á spólum: Myndbandaleigur skulu gefa kvittun við móttöku á spólum. 4. Hámarkssekt: Skuld vegna hverrar spólu fari ekki yfir kr. 20.000 og vegna tækja kr. 40.000. Eins og oft vill verða bættu sumar mynd- bandaleigur sig mjög eftir umfjöllun stjórnar Myndmarks en aðrar ekki. Kvört- unarþjónustan telur að það ferli sem stjórn Myndmarks lagði til sé sanngjarnt og vill hvetja myndbandaleigur til að fara eftir því. Til neytenda beinir kvörtunar- þjónustan þeim ráðleggingum að óska alltaf eftir skilakvittun þegar myndbands- spólu er skilað, enda má þannig komast hjá óþarfa vandræðum. Leigutaki kvittar fyrir móttöku spól- unnar þegar hann fær hana lánaða og því er jafn sjálfsagt að myndbandaleig- an kvitti sömuleiðis þegar hún fær spól- una til baka. Varð tjónið hjá mér eða ekki? Vandamál tengd bílaleigum koma tölu- vert inn á borð kvörtunarþjónustunnar. Algengasta vandamálið er þegar bíla- leiga gerir kröfu vegna tjóns á bíl eftir að honum hefur verið skilað en neytandinn kannast ekki við að tjón hafi orðið hjá sér. Þetta vandamál er ekki einskorðað við Island því mikið er um að bílar séu teknir á leigu erlendis. Neytendasamtök- in mæla með því að neytendur hugi að eftirfarandi atriðum áður en bíll er tekinn á leigu: • Nauðsynlegt er að lesa vel samning- inn og sömuleiðis verður leigutaki að kynna sér vel gildandi trygginga- skilmála. • Best er að báðir aðilar skoði bílinn bæði við afhendingu og þegar hon- um er skilað. Ef skemmd er á bílnum við afhendingu á að skrá hana inn á samninginn. • Ef leigutaki verður að sækja bílinn sjálfur í bílahús er mikilvægt að hann skoði bílinn vandlega áður en ekið er af stað og sjáist skemmd er brýnt að fara til baka og láta leigusalann vita. Skemmdina ber svo að skrá inn á samninginn. Nýverið var mál af þessu tagi til með- ferðar hjá úrskurðarnefnd í ferðamálum. Málavextir voru þeir að maður fékk bíla- leigubíl í 3 daga meðan hans bíll var á verkstæði eftir árekstur. Skilaði hann bílnum á réttum stað á réttum tíma en 4 dögum síðar fékk hann reikning frá bíla- leigunni vegna tjóns á bílnum. Maðurinn harðneitaði að nokkuð hefði gerst hjá sér en bílaleigan hélt reikningnum til streitu. Staðreynd var að enginn fulltrúi frá bíla- leigunni var á staðnum þegar bílnum var skilað og að bílnum hafði verið ekið frá verkstæðinu til starfsstöðvar bílaleigunn- ar eftir að honum var skilað en áður en tjónið kom í Ijós. Niðurstaða nefndarinn- ar var sú að ekki væri hægt að fullyrða að maðurinn hefði valdið tjóninu og að bílaleigan yrði að bera hallann af þeim óvissutíma sem leið frá því að maðurinn skilaði af sér bílnum þar til bílaleigan skoðaði hann. Manninum var því ekki skylt að greiða reikninginn vegna við- gerðarinnar. Neytendasamtökin eru sátt við þessa niðurstöðu en telja engu að síður baga- legt að einhver óvissutími hafi liðið yfir höfuð. Það er eindregin skoðun samtak- anna að við afhendingu og skil bílaleigu- bíla eigi leigutaki og fulltrúi frá bílaleig- unni ávallt að yfirfara bílinn saman. NEYTENDABLABIÐ 1.TBL. 2004 3

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.