Neytendablaðið - 01.03.2004, Síða 13
í gæðakönnun ICRT kom í Ijós að marg-
ar sparperur entust alls ekki í þær 6.000
klst. sem prófunin tók (það jafngildir um
fimm ára venjulegri notkun). Ein gerðin
(Omicron Minitube, 40 vatta) átti að
endast í 10.000 klst. en náði ekki 6.000
stunda markinu. ICRT getur ekki enn
gefið upplýsingar um hvort fyrirheit um
10.000-15.000 klst. endingu ganga eftir
því enn hafa bara farið fram 6.000 klst.
prófanir.
Perugerðir
Sparperur eru til af ýmsum styrkeika og
með margs konar lögun. í könnun ICRT
var áherslan lögð á algengustu gerðirn-
ar, annars vegar þær sem líkjast mest
glóperunum og hins vegar þær sem eru
líkar pinnum í laginu. Þær eru yfirleitt
með tveimur eða þremur pinnum og
eru öflugri og þyngri. Að jafnaði reynd-
ust „pinna"-sparperurnar betur en hinar
perulaga.
Þótt allar sparperurnar í könnuninni hafi
verið hvítar reyndust sumar gefa frá sér
dálitið mismunandi litblæ. Yfirleitt er
hann svo daufur að fólk tekur ekki eftir
honum. Venjulegar glóperur gefa frá sér
rauðleita birtu en Ijósið frá sparperunum
er bláleitara og að því leyti líkara dags-
birtu um miðjan dag.
Hvar henta sparperur?
Sparperur henta ekki alls staðar en flestir
framleiðendur veita litlar eða engar leið-
beiningar í þeim efnum. Helst eru það
General Electric og Philips sem koma
neytandanum til aðstoðar.
Sparperur henta vel:
- Á stöðum þar sem Ijós er látið lifa
nokkrar eða margar klukkustundir í
senn, jafnvel allan sólarhringinn, til dæm-
is í eldhúsi, anddyri og stofu. Líka sem
útiljós við útidyr, gangstéttir eða í garði
að vetrarlagi, en þó þola sumar perurnar
kulda illa.
- í Ijósastæðum þar sem örðugt er að
komast að til að skipta um perur og best
að þurfa að fara þangað sem sjaldnast.
Sparperur henta verr:
- Þar sem Ijós er oft kveikt og slökkt því
slíkt skerðir endingartíma sumra sparper-
anna verulega.
- í miklum kulda. Sparperur endast betur
í S.-Evrópu en N.-Evrópu vegna hitamis-
munarins. Þess vegna nota sumir sparper-
ur ekki sem útiljós eða í bílskúrum.
- í Ijósastæðum með Ijósmagnsstilli
(dimmer) eða tímarofa. Hins vegar eru
sumir framleiðendur að þróa sparperur
sem þola slíkan búnað betur.
Gallar
Sparperur eru smástund að ná fullum
Ijósstyrk. Þær endast verr og Ijósmagn
þeirra minnkar í kulda, sérstaklega í
frosti. Sumar sparperur dofna eftir nokk-
ur ár eða jafnvel mánuði.
Sumar sparperur, sérstaklega 100 vatta
perur, eru þungar miðað við jafnsterkar
glóperur, svo að þær henta ekki í öll
perustæði.
Umhverfisþættir
IKEA reyndist eini framleiðandinn/sölu-
aðilinn sem veitti góð ráð á umbúðum
sparperanna um hvernig má farga þeim
á sem vistvænstan hátt. Sparperur eru
víða á undanþágu vegna eiturefnamagns
sem f þeim er, t.d. kvikasilfurs, en margar
þjóðir vilja banna alla notkun þess. Rétt
er að skila perunum til endurvinnslu-
stöðva því hægt er að endurvinna þær
og nýta aftur kvikasilfur og fosfór þeirra,
en víða vantar raunar búnað og aðstöðu
til slíks. Það tíðkast því, en er ekki til
fyrirmyndar, að láta þær í venjulegt húsa-
sorp. Unnið er að því að þróa vistvænar
sparperur án kvikasilfurs.
© International Consumer Research and Test-
ing - Neytendablaðið 2004.
Vinsamlega getið heimildar ef vitnað er í
fjölmiðlum eða á öðrum vettvangi í efni á
vef NS. Óheimilt er að birta heilar greinar
eða töflur án leyfis NS. Upplýsingar á vef NS
er óheimilt að nota í auglýsingum og við sölu
nema skriflegt leyfi ritstjóra liggi fyrir.
_____ GÆDAEINKUNNIR
Áætlun ICRT um líftíma peru, ár Heildarlengd peru og sökkuls, mm Ending Heildar- Ijósmagn Öryggismál Heildargæða- einkunn f. N.-Evrópu Heildargæða- einkunn f. S.-Evrópu
8 129 3.2 4.3 4.0 3.4 3.4
8 137 3.2 4.8 4.0 3.3 3.3
6 144 3.8 4.4 4.0 3.6 3.7
6 165 2.7 4.9 4.0 3.3 3.5
6 138 2.1 4.3 4.0 2.9 3.0
6 177 2.3 4.9 4.0 3.1 3.3
5 137 2.4 4.4 4.0 3.0 3.1
10 169 3.6 4.5 4.0 3.8 3.8
NEYTENDABLAÐIÐ1. TBL. 2004 13