Neytendablaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 6
Gæðakönnun á þráðlausum símum
Smærri og ódýrari en áður
MarkaÖskönnun
Á vef Neytendasamtakanna, www.ns.is,
er markaðskönnun blaðsins með um
40 gerðum af þráðlausum símum sem
fengust hér í janúar og eru á verðbilinu
frá um 4.000 upp í um 27.000 kr. í könn-
uninni eru upplýsingar um 15 atriði varð-
andi hverja gerð.
Lykilorð til að opna læstar síður fyrir
félagsmenn er að finna á bls. 2 f þessu
blaði.
Gæðakönnun
Á vefnum www.ns.is er gæðakönnun
ICRT f heild með tæplega 50 gerðum af
stafrænum símum. Af þeim fengust 10
gerðir hérlendis og eru niðurstöður um
þær birtar hér í töflu.
Panasonic KX-TCD 410BL hlaut háa heildar-
gæðaeinkunn, 4 (af 5,5,) og fékkst á 9.900 kr.
bæði í Elko og Símabæ.
Þráðlausir símar eru nú mun ódýrari og
minni um sig heldur en fyrir nokkrum
misserum þegar notkun þeirra jókst veru-
lega. Stundum er erfitt að þekkja þá frá
GSM-farsímum. Framfarir birtast m.a. í
því að símtólin eru léttari og meðfæri-
legri. Skjáirnir eru skýrari og með val-
myndum og símaskrám. Hringitónarnir
eru margbreytilegir. En þótt sérbúnaður
sé talsverður er ekki rétt að kaupa endi-
lega dýran og velbúinn síma. Aðrir þættir
en fjölhæfnin skipta miklu máli.
Flestir nýir þráðlausir símar eru stafrænir
(digital) en gömlu símarnir eru yfirleitt
hliðrænir (analog). Stafrænir símar geta
verið smærri og veitt meiri hljómgæði,
búa yfir meiri fjölhæfni og meira öryggi.
Truflanir eiga sér síður stað. Stafræna
tæknin býður líka upp á að hægt sé að
nota mörg símtól við sömu móðurstöð.
Mismunandi þarfir
Það getur verið sumum notendum mik-
ilvægt að þráðlausi síminn hafi mikið
drægi og jafnvel hægt að nota hann f
nokkur hundruð metra fjarlægð frá móð-
urstöðinni. Aðrir vilja leggja áherslu á
gott samband og hljómgæði. Enn aðrir
vilja fyrst og fremst að síminn sé sem ein-
faldastur í notkun. Fyrir aldraða, fatlaða
og sjónskerta getur verið mikilvægast að
takkarnir séu nógu stórir og greinilegir.
Litlir og léttir símar henta ekki alltaf slíku
fólki, bæði takkar og skilaboð á skjá
verða kannski full smá fyrir vikið.
Sumir þráðlausir símar eru með sím-
svara. Athugið að upptökutíminn er mis-
munandi langur.
AEC Ventura DW var einn ódýrasti þráðlausi
síminn á markaði hér og fékkst á 5.999 kr. hjá
BT enda fékk hann ekki nema 2,5 (af 5,5) í
heildareinkunn.
Skjár og minni
Stafrænir símar birta á skjá númerið sem
þú hefur hringt í. Hægt er að búa sér til
sérstaka símaskrá í sfmtækinu með því
að vista í minni þess símanúmer. Yfirleitt
er hægt að setja nöfn við númerin. Þetta
hefur það líka í för með sér að ef einhver
í símaskránni hringir birtist nafn hans á
Gæðakönnun International Consumer Research and Testing (ICRT). - Gefnar eru einkunnir á kvarðanum 0,5 - 5,5 þar sem 0,5 er
lakast og 5,5 er best. Raðað er eftir verði skv. markaðskönnun Neytendablaðsins í janúar 2004.
Sumir símarnir fást hjá fleiri en einum seljanda en hér er aðeins birt lægsta verð sem fannst. Verð hjá öllum seljendum er hægt að
bera saman í markaðskönnuninni sem birt er á www.ns.is. Lykilorðið er á bls. 2 í þessu blaði.
Vörumerki Gerð Lægsta verð Seljandi HEILDAR- GÆÐA- EINKUNN Fjölhæfni Rafhlöður Drægi Gæði sam- bands
AEG Ventura D10 5,999 BT 2.5 1.7 4.0 3.3 3.2
PHILIPS Kala 300 6,995 Heimilistæki / Sjón- varpsmiöstöðin 3.7 2.9 3.9 5.2 4.1
KIRK Fuga 6,999 BT 3.1 2.5 4.1 4.5 2.9
PANASONIC KX-TCD 400SP 7,995 Elko 3.6 2.8 3.5 4.8 3.8
TOPCOM Butler 2410 8,900 Svar 3.7 3.5 4.3 2.9 3.8
PANASONIC KX-TCD410BL 9,900 Elko/Símabær 4.0 3.4 3.5 4.3 4.4
SIEMENS Gigaset A200 9,900 Elko 4.0 3.2 4.6 4.9 4.3
DORO 5045 13,980 Síminn 3.5 2.8 3.6 3.4 4.4
SIEMENS Gigaset S100 16,900 Elko / Smith og Norland 4.4 4.5 3.6 4.9 4.4
SIEMENS C250 20,900 Smith og Norland 4.4 4.3 3.1 4.5 4.5
6 NEYTENDABLAÐI0 1.TBL. 2004